

Olympique Lyon hefur forystu í frönsku 1. deildinni eftir 1-0 sigur á Nancy í gærkvöldi. Claudio Cacapa skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lyon er með 10 stig eftir fjórar umferðir en Lens, Bordeaux og Paris St. Germain eru með 9 stig. Parísarmenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og mæta Troyes í kvöld og geta þá endurheimt fyrsta sætið.
Marcus Bent tryggði Everton 0-1 útisigur á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði hann á 52. mínútu og dugði Everton til að næla í sín fyrstu stig í deildinni á tímabilinu en liðið er með 3 stig eftir tvo leiki. Kl. 15:00 hefst stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge í London.
Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið skipt af velli fyrir nýliðann Michael Essien í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Essien sem kom frá Lyon á 26 milljónir punda er að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið og var skipt inn fyrir Eið á 59. mínútu. Staðan í leinum sem hófst kl. 15 er ennþá markalaus.
Kári Árnason lék síðustu 8 mínúturnar í liði Djurgården sem endurheimti toppsætið með sigri á Kalmar, 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad sem steinlá fyrir Gefle, 1-4.
Dóra María Lárusdóttir hefur komið Íslandi yfir gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 1-0. Mark Dóru kom á 31. mínútu eftir sendingu frá Ólínu Viðarsdóttur. Leikurinn hófst kl. 14:00 og hefur íslenska liðið verið með meiri yfirburði þó Hvít Rússarnir hafi átt skot í neðanverða þverslá íslenska marksins snemma í leiknum.
Dóra María Lárusdóttir var að koma Íslandi í 3-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli, aðeins 2 mínútum efir mark Margrétar Láru. Dóra er þar með búin að skora tvívegis í leiknum. Yfirburðir Íslands eru algerir og ráða stelpurnar auðveldlega gangi leiksins.
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi í 2-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli. Markið sem kom á 56. mínútu var einstaklega gæsilegt og er tólfta mark Margrétar í 16 leikjum með landsliðinu.
Internazionale í Mílano sigraði Juventus í framlengdum leik í ítölsku meistarakeppninni. Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skoraði sigurmarkið á 6. mínútu í framlengingu. Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi.
Didier Drogba hefur komið Chelsea yfir gegn Arsenal í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið kom á 73. mínútu og var þó nokkur heppnisstimpill yfir því.
Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar, sem lék með landsliði sínu gegn Íslendingum á Laugardalsvelli á miðvikudag, skoraði fyrra mark Ajax sem sigraði Roosendaal 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Svíinn Markus Roosenberg skoraði seinna markið. Þetta var fyrsti leikur Ajax í deildinni
Real Betis sigraði Barcelona með tveimur mörkum gegn einu í seinni leik liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og því 4-2 samtals. Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið á 15. mínútu en Dani skoraði síðan tvívegis á fimm mínútna kafla um miðjan hálfleikinn.
Nú klukkan 14 hófst á Laugardalsvelli leikur Íslands og Hvíta Rússlands í undankeppni HM 2007 í knattspyrnu kvenna og hefur Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið Íslands en Ásthildur Helgadóttir er snúin til baka eftir erfið meiðsli og er hún fyrirliði liðsins í dag.
Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho var skilinn útundan og ekki hafður í 16 manna leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho knattspyrnustjóri er ekki þekktur fyrir að taka hlutina neinum vettlingatökum og notaði tækifærið í dag og útskyrði fjarveru varnarmannsins í ræðu sinni fyrir leikinn í dag.
Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda.
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur skorað fyrir Leicester gegn Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta þar sem staðan er 2-2. Jóhannes skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 60. mínútu.
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Charlton sem sigraði nýliða Wigan 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Charlton hefur þar með unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni á tímabilinu. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður í liði Fulham sem tapaði 2-1 fyrir Blackburn.
Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 3. deildinni gerði 1-1 jafntefli við Stockport í dag. Mark County var sjálfsmark og kom strákunum hans Guðjóns yfir í leiknum á 14. mínútu en heimamenn jöfnuðu á 35. mínútu. Notts County er í 5. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir og hefur ekki enn tapaði leik.
Brasilíski miðjumaðurinn Edu sem gekk í raði spænska knattspyrnuliðsins Valencia frá Arsenal á dögunum meiddist alvarlega á æfingu í dag og missir fyrir vikið af nær öllu tímabilinu á Spáni. Edu sleit krossband í vinstra hné í dag og þarf nú að gangast undir uppskurð að sögn læknis félagsins.
Man. Utd, Tottenham og Charlton hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann fyrsta sigurinn en Newcastle á enn eftir að skora. Tottenham vann annan leikinn í röð 2-0 og er á toppnum á markatölu og ekki gladdi það stuðningsmenn Spurs minna að sjá Edgar Davids spila sinn fyrsta leik með liðinu.
Man Utd vann 1-0 sigur á Aston Villa á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmarkið á 66. mínútu eftir skalla frá Olof Mellberg varnarmanni Villa sem ætlaði að hreinsa boltann frá eftir sendingu inn í teig frá Christiano Ronaldo. Man Utd hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu.
Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag sinn eina heimaleik í ár gegn Hvíta-Rússlandi. Jörundur Áki þjálfari segir andann í íslenska liðinu vera góðan. Þetta er fyrsti leikur liðsins í riðli fyrir undankeppni HM 2007 en auk Íslands og Hvíta Rússlands eru Portúgal, Svíþjóð og Tékkland í riðlinum.
Stjarnan laumaði sér á topp 2. deildar karla í fótbolta í dag þegar Garðabæjarliðið sótti 3-5 útisigur til Seyðisfjarðar gegn Hugin. Stjarnan er nú komin í 30 stig með tveggja stiga forskot á Leikni sem reyndar á leik til góða gegn botnliði Leiftri/Dalvík í dag kl. 16.
Fyrsti risaslagur ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili fer fram í dag en þá mætast Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal. Liðin mættust fyrir tveimur vikum síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn en þá var það Didier Drogba sem stal senunni og skoraði bæði mörk Chelsea sem hrósaði sigri í leiknum.
Hermann Hreiðarsson er að vanda í byrjunarliði Charlton sem mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikir dagsins á Englandi hefjast kl 14. Þá er Heiðar Helguson á varamannabekk Fulham sem heimsækir Blackburn. Þá vekur athygli að Gylfi Einarsson er í byrjunarliði Leeds sem mætir Wolves í ensku 1. deildinni.
Fylkir tryggði sér í gærkvöldi sigur í A-riðli 1. deildar kvenna þegar liðið sigraði Þrótt 4-0. Fylkir fékk 28 stig en Haukar sem mæta Víði í dag eru í öðru sæti með 23 stig og geta ekki náð Fylki að stigum. Í B-riðli hefur sameiginlegt lið Þórs, KA og KS fyrir löngu tryggt sér sigur. Liðið hefur unnið alla 11 leiki sína og spilar á morgun síðasta leik sinn í riðlinum við Sindra.
Búlgarska knattspyrnufélagið CSKA Sofia hefur verið sektað um 19.500 evrur vegna kynþáttaeineltis sem sóknarmaður Liverpool, Djibril Cisse varð fyrir í leik liðanna á dögunum. Sektin jafngildir um einni og hálfri milljón íslenskra króna.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik í viðureign Manchester United og Aston Villa sem nú stendur yfir á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hálfleikur stendur nú yfir og staðan því 0-0 en leikurinn hófst kl. 11:45.
Í 2. deild karla í knattspyrnu sigraði Tindastóll Fjarðbyggð 1-0. Tindastóll komst þar með í sjöunda sætið, er með 15 stig en Fjarðabyggð er í 4. sæti með 23 stig.
Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Leicester sem gerði 2-2 jafntefli við Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Mark Jóhannesar kom úr vítaspyrnu á 60. mínútu en hann lék allan leikinn. Gylfi Einarsson lék allan leikinn í liði Leeds sem sigraði Wolves 2-0.
Xabi Alonso tryggði Liverpool 1-0 sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikurinn hófst 15 mínútum seinna en aðrir leikir. Liverpool er þar með komið með 4 stig í deildinni en liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrogh í 1. umferðinni um síðustu helgi.