Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með. Innlent 18.8.2026 23:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18.8.2026 21:03
Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Þrýst var á fulltrúa fjögurra hreyfinga að opna bókhaldið, með misjöfnum árangri, í Pallborðinu. Já til að sjá gerir ráð fyrir að eyða allt að 75 milljónum en fátt var um svör frá Áfram Íslandi. Andstæðingar samtakanna áætla að þau hafi úr allt að 300 milljónum að spila. Innlent 18.8.2026 17:11
Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Regnbogafánar og lausaganga flokksgæðinga komu við sögu þegar oddvitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum umræðum við kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum. Innlent 30. apríl 2026 07:00
Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna. Innlent 29. apríl 2026 10:05
Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í dag. Innlent 21. apríl 2026 20:25
Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Innlent 21. apríl 2026 11:57
Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. Innlent 14. apríl 2026 16:51
Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Nú þegar fjórar vikur og fjórir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga blásum við á fréttastofunni til kosningapallborðs þar sem oddvitar Reykjanesbæjar munu eiga sviðið. Innlent 14. apríl 2026 12:46
Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi. Innlent 8. apríl 2026 17:27
Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar mæta í fyrsta kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 14.00 í dag. Innlent 8. apríl 2026 13:43
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. Innlent 12. febrúar 2026 16:50
Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. Innlent 12. febrúar 2026 12:54
Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Frambjóðendur til oddvita Viðreisnar í Reykjavíkurborg tókust á í Pallborðinu í dag. Farið var yfir óbirta spurningu í skoðanakönnun og Airbnb-mál fyrrverandi bæjarstjóra. Enginn frambjóðandi gat valið hvern hann myndi velja í oddvitasætið fyrir utan sig sjálfan. Innlent 29. janúar 2026 17:07
Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Fjögur sækjast eftir oddvitasætinu hjá Viðreisn í borgarstjórnarkosningum í vor. Þau mættust í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi í dag. Innlent 29. janúar 2026 13:08
Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun. Innlent 23. janúar 2026 11:31
Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Þau tvö sem sækjast eftir oddvitasætinu hjá Samfylkingunni í borginni í sveitarstjórnarkosningum mætast í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi á morgun. Lesendur Vísis eru hvattir til að beina spurningum til frambjóðendanna. Innlent 22. janúar 2026 15:24
Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Íslendingar eyða tugum milljarða á ári á ólöglegum veðmálasíðum. Eigendur þeirra greiða enga skatta eða gjöld hér á landi vegna úreltra laga sem hefur ekki verið breytt síðan árið 2005. Dómsmálaráðherra vill breytingar en í hvaða átt skal fara? Leyfa eða banna? Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 23. október 2025 12:02
„Margir tittir í þessum hópi og máttum ekki við því að missa stóran mann“ Meiðsli Hauks Helga Pálssonar munu hafa mikil áhrif á leik íslenska landsliðsins á EM í körfubolta, að mati Sigurðar Péturssonar og Ólafs Ólafssonar. Þeir segja landsliðshópinn heldur lágvaxinn en eru vissir um að liðið bæti upp fyrir það með öðrum hætti. Körfubolti 27. ágúst 2025 17:17
Svona var EM-Pallborðið Íslenska landsliðið hefur leik á EM í körfubolta í hádeginu á morgun með leik gegn Ísrael. Hitað var upp fyrir leik morgundagsins og mótið allt í EM-Pallborðinu sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Sigurður Pétursson og Ólafur Ólafsson mættu í settið. Körfubolti 27. ágúst 2025 15:00
Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér „Það er verið að gera öllum upp einhvern annarlegan ásetning og það er óþolandi,“ segir Karen Kjartansdóttir almannatengill um þær skotgrafir sem myndast reglulega í þjóðfélagsumræðu á samfélagsmiðlum. Innlent 10. apríl 2025 22:42
Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Hugtakið „woke“ hefur verið til mikillar umræðu í vikunni og virðist hver og einn skilgreina hugtakið á sinn hátt. Sumir vilja meina að hugtakið snúist um umburðarlyndi en aðrir segja það einkennast af einræðislegri hugmyndafræði. Innlent 10. apríl 2025 11:01
Börn hafi reynt að drepa önnur börn Hermann Arnar Austmar, foreldri í Breiðholti, segir að það hafi komið upp atvik tengd ofbeldisöldu ungmenna í hverfinu, sem hefur verið sérstaklega tengd Breiðholtsskóla, þar sem hann telur að börn hafi reynt að ráða önnur börn af dögum. Innlent 20. mars 2025 16:55
Svona var Pallborðið um ofbeldisöldu hjá ungmennum Undanfarnar vikur hefur mikið verið fjallað um ástand í Breiðholtsskóla þar sem hópur stráka í sjöunda bekk ásamt fleiri úr öðrum skólum hafa haldið hverfinu í heljargreipum. Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 20. mars 2025 11:31