Handbolti
289 290 291 292 293 ›
Spánverjar sigruðu Frakka Spánverjar sigruðu Frakka 29-26 í B-riðli EM í Sviss í dag og eru því komnir áfram í milliriðla. Sigur heimsmeistraranna var í raun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna, því liðið náði mest 11 marka forystu í leiknum og hafði undirtökin allan tíman. Sport 28.1.2006 16:48
Þjóðverjar áfram Landslið Þjóðverja hefur tryggt sér sæti í milliriðlum á Evrópumótinu í Sviss eftir að liðið lagði Slóvakíu 31-26 í fyrsta leik dagsins, en þjóðirnar leika í B-riðli. Nú standa yfir leikir Sviss og Póllands og Spánverja og Frakka. Sport 28.1.2006 15:10
Viggó mjög ánægður Hann var misjafn tóninn í mönnum hjá íslenska landsliðinu í handbolta í kvöld eftir að liðið gerði jafntefli við Dani 28-28 í C-riðli. Stigið þýðir að Ísland er komið áfram í milliriðla og Viggó Sigurðsson var afar kátur með niðurstöðuna, en Snorri Steinn Guðjónsson var ekki jafn sáttur. Sport 27.1.2006 22:28
Jafnt hjá Íslendingum og Dönum Íslendingar og Danir gerðu jafntefli 28-28 í leik sínum í C-riðli EM í Sviss í kvöld. Íslenska liðið fékk tækifæri til að gera út um leikinn í síðustu sókn leiksins en það tókst ekki og niðurstaðan því jafntefli. Íslenska liðið hafði frumkvæðið lengst af leik, en getur ef til vill vel við unað með jafnteflið þar sem liðið var án Ólafs Stefánssonar og fékk aðeins eitt mark frá Guðjóni Val Sigurðssyni í kvöld. Sport 27.1.2006 20:47
Ísland yfir í hálfleik Íslendingar hafa yfir 15-14 gegn Dönum í leik þjóðanna sem nú stendur yfir í C-riðli EM í Sviss. Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað fimm mörk fyrir íslenska liðið, Arnór Atlason er með fjögur og Sigfús Sigurðsson hefur skorað þrjú. Þá hefur Birkir Ívar varið vel í markinu og er kominn með yfir tíu varin skot í hálfleiknum. Sport 27.1.2006 19:53
Serbar lögðu Ungverja Serbar hlutu sín fyrstu stig í C-riðlinum á EM í Sviss í kvöld þegar liðið lagði Ungverja að velli 29-24. Serbar hafa því hlotið tvö stig í riðlinum eins og Íslendingar og Danir, en frændþjóðirnar mætast nú klukkan 19:15. Ungverjar eru á botni riðilsins með ekkert stig og mæta íslenska liðinu á sunnudag. Sport 27.1.2006 18:28
Ólafur verður með á móti Ungverjum Þær fréttir voru að berast úr herbúðum íslenska landsliðsins í Sviss að Ólafur Stefánsson er ekki með brákuð rifbein eins og óttast var og mun hann því verða með á móti Ungverjum í síðasta leik íslenska liðsins í C-riðli á sunnudag. Ólafur er nokkuð þjáður af meiðslunum, en ætlar að reyna allt sem hann getur til að spila. Sport 27.1.2006 15:20
Ólafur Stefánsson ekki með gegn Dönum Ólafur Stefánsson getur ekki leikið með íslenska landsliðinu í gegn Dönum á EM í Sviss í kvöld en óttast er að hann sé með brákað rifbein eftir átökin við Serbana í gær. Svo gæti farið að Ólafur yrði ekki meira með í keppninni. Sport 27.1.2006 12:17
Danir sigruðu Ungverja Danir lögðu Ungverja á EM í handbolta í kvöld 29-25, en liðin eru með okkur Íslendingum í C-riðli. Þá lögðu Slóvenar Svisslendinga 29-25 í A-riðli og Rússar lögðu Norðmenn 24-21 í D-riðlinum. Sport 26.1.2006 21:48
Viggó kátur með sína menn Landsliðsþálfarinn Viggó Sigurðsson var kampakátur með sína menn í kvöld eftir að íslenska landsliðið bar sigurorð af Serbum í fyrsta leik á EM. Viggó var fyrst og fremst ánægður með leik liðsins í fyrri hálfleik, en sagðist hafa búist við grófum leik og sú hafi orðið raunin. Sport 26.1.2006 20:25
Úrslit dagsins Nokkrum leikjum er þegar lokið á EM í handbolta í dag. Þjóðverjar og Spánverjar gerðu jafntefli 31-31 í opnunarleik mótsins, en liðin keppa í B-riðli. Í öðrum leik riðilsins burstuðu Frakkar Slóvaka 35-21. Sport 26.1.2006 18:56
Góður sigur á Serbum í fyrsta leik Íslenska landsliðið í handbolta vann frækinn sigur á Serbum í fyrsta leik sínum í C-riðli Evrópumótsins í handbolta í kvöld 36-31, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-11. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, þar af þrjú úr vítaköstum. Sport 26.1.2006 18:38
Ísland yfir í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 16-11 í hálfleik gegn Serbum í fyrsta leik sínum á EM í handbolta í Sviss. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa skoraði 5 mörk hvor. Sport 26.1.2006 17:40
Jafnt hjá Spánverjum og Þjóðverjum Opnunarleikurinn á EM í Sviss var æsispennandi en honum lauk með jafntefli Spánverja og Þjóðverja 31-31 í B-riðli. Spánverjar höfðu raunar ágæta möguleika að ná öllum stigunum úr leiknum á síðustu mínútunni, en sterk vörn Þjóðverja hélt í lokin. Klukkan 17 eigast svo Íslendingar og Serbar við í C-riðli. Sport 26.1.2006 16:23
Svissneskir dómarar dæma í kvöld Dómarar í leik Íslands og Serbíu síðar í dag koma frá Sviss og heita Falcone og Ratz en eftirlitsmennirnir koma frá Þýskalandi og Ísrael. Íslensku dómararnir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson verða einnig í eldlínunni í dag en þeir dæma leik Frakka og Slóvaka í Basel. Sport 26.1.2006 15:36
Garcia farinn til Þýskalands Landsliðsmaðurinn Jaliesky Garcia mun ekki leika með íslenska landsliðinu í handbolta á EM í Sviss vegna meiðsla og hefur hann því snúið aftur til Stuttgart í Þýskalandi þar sem lið hans Göppingen er við æfingar. Sport 25.1.2006 15:05
Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach til ársins 2009. Guðjón hefur farið á kostum með liðinu í vetur og hefur verið markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar undanfarnar vikur. Kóreumaðurinn Shin Yoon hefur hinsvegar neitað að framlengja samning sinn við félagið og leikur því ekki með Gummersbach á næstu leiktíð. Sport 19.1.2006 20:16
Ungverjar lögðu Þjóðverja Ungverjar sem verða í riðli með Íslandi á Evrópumótinu í handbolta í lok mánaðarins, unnu Þjóðverja í dag, 34-30 á fjögurra þjóða móti í Króatíu í dag. Slóvenar og Króatar leika til úrslita í kvöld. Sport 15.1.2006 19:24
Alfreð látinn fara Alfreð Gíslasyni hefur verið vikið úr starfi sem þjálfara úrvalsdeildarliðsins Magdeburg, þar sem hann hefur verið við störf síðan 1999. Alfreð hefur náð góðum árangri á þessum tíma með liðið, en gengi liðsins hefur þó verið upp og niður í vetur. Alfreð hefur þegar gert samning um að taka við liði Gummersbach árið 2007. Sport 5.1.2006 14:10
Þórir skoraði tíu mörk fyrir Lubbecke Fimm leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þórir Ólafsson skoraði tíu mörk fyrir lið sitt Lubbecke þegar það burstaði Delitzsch 40-25. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði níu mörk fyrir Gummersbach í sigri liðsins á Minden, Róbert Gunnarsson bætti við þremur mörkum fyriri Gummersbach, en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Minden. Sport 30.12.2005 21:05
Ólafur og félagar bikarmeistarar Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real tryggðu sér sigur í deildarbikarkeppninni á Spáni, þriðja árið í röð í fyrrakvöld þegar liðið sigraði Portland San Antonio í úrslitaleik 31-23. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Ciudad vinnur þennan titil. Sport 30.12.2005 13:32
Þrír leikir í kvöld Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Grosswallstadt sigraði Kronau Ostringen 27-26 þar sem Alexander Petersson skoraði sex mörk fyrir Grosswallstadt. Nordhorn sigraði Dusseldorf 30-29 og Göppingen lagði Hamburg 34-29. Sport 29.12.2005 22:00
Kiel lagði Gummersbach Kiel lagði Gummersbach í stórleik kvöldsins í þýska handboltanum 34-32. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarson fjögur. Þá burstaði Flensburg lið Delitzsch 32-22, en leik Hamburg og Wetzlar er enn ekki lokið. Sport 27.12.2005 19:49
Gummersbach undir gegn Kiel Nú er kominn hálfleikur í stórleik Gummersbach og Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Kiel hefur tveggja marka forystu í hálfleik 16-14. Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað tvö mörk fyrir Gummersbach, annað úr víti og Róbert Gunnarsson línumaður hefur sömuleiðis skorað tvö mörk. Sport 27.12.2005 18:54
Einar Hólmgeirsson í stuði Nokkrir leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Einar Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson 7 þegar liðið lagði Lemgo 33-29. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2 mörk fyrir Lemgo. Magdeburg sigraði Minden 31-27, þar sem Sigfús Sigurðsson skoraði 3 mörk og Arnór Atlason 1, en Snorri Steinn Guðjónsson gat ekki leikið með Minden vegna meiðsla. Sport 26.12.2005 18:36
Gummersbach - Kiel í beinni Það verður enginn smá leikur í beinni útsendingu á Sýn á morgun þegar Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og félagar í Gummersbach taka á móti stórliði Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Gummersbach gekk um helgina frá samningi við tvo nýja leikmenn til að styrkja sig í toppbaráttunni en þetta eru skyttan Denis Zacharov og markvörðurinn Nandor Fazekas. Sport 26.12.2005 16:11
Ciudad Real tapaði fyrir Portland San Antonio Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real töpuðu naumlega fyrir Portland San Antonio í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi 28-27. Ólafur skoraði þrjú mörk í leiknum. Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 28 stig, Portland San Antonio er í öðru sæti með 27 stig og Ciudad í því þriðja með 24 stig. Einar Örn Jónsson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Torrevieja í 29-23 sigri liðsins á Cangas. Sport 22.12.2005 16:52
Sögulegt stórtap hjá Magdeburg Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Magdeburg voru teknir í kennslustund af Kiel í gærkvöldi þegar liðið tapaði 54-34 fyrir toppliðinu á útivelli, en Kiel er ógnarsterkt í ljónagryfunni heimafyrir. Þetta var hæsta markaskor í leik í sögu deildarinnar. Sigfús Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í leiknum. Sport 21.12.2005 15:57
Magdeburg stöðvaði Gummersbach Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg stöðvuðu í gærkvöld sigurgöngu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni, þegar liðið vann sigur 38-28. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með tvö. Þetta var fysta tap Guðjóns og félaga á leiktíðinni. Sport 18.12.2005 11:52
Ciudad tapaði fyrir Barcelona Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real töpuðu fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær 26-24, en Ólafur skoraði eitt mark í leiknum. Barcelona skaust í annað sæti deildarinnar með sigrinum og hefur tveggja stiga forystu á Ciudad sem er í því þriðja. Portland San Antonio er sem fyrr í efsta sætinu. Sport 15.12.2005 14:01