Ofbeldi á Vopnafirði
Ekkert ökklaband fyrir brot á nálgunarbanni þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara Þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara fyrir tæpu ári hefur enginn ennþá þurft að bera ökklaband vegna ítrekaðra brota gegn nálgunarbanni því búnaðurinn er ekki til. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir þetta vonbrigði og spyr eftir hverju sé verið að bíða. Innlent 26.1.2025 21:00
Segist ekki muna eftir atburðunum Karlmaður á sextugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að ráðsast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði, sagðist ekki muna eftir atvikinu sem málið varðar þegar það var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í vikunni. Hann neitaði sök, og til vara fór lögmaður hans fram á að honum yrði ekki refsað þar sem hann hafi ekki stjórnað gjörðum sínum. Innlent 25.1.2025 14:28
Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði. Honum er gefið að sök að hafa reynt að svipta konuna lífi, en hann er grunaður um að ráðast á hana með hættulegu verkfæri. Innlent 21.1.2025 11:36
Tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ Hafdísi Karlmaður sem grunaður er um endurtekin ofbeldisverk þar á meðal tilraun til manndráps á hendur fyrrverandi sambýliskonu sinni tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ konunni. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum. Innlent 13.12.2024 21:00
Framlengja gæsluvarðhald vegna árásar á Vopnafirði Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni þar til 10. janúar á næsta ári. Það staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari. Maðurinn hefur verið í varðhaldi frá því í október þegar hann var handtekinn. Innlent 11.12.2024 13:39
Óttaðist um líf sitt Kona sem lýsir heimilisofbeldi af hálfu manns, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segir réttarkerfið og lögreglu hafa brugðist í baráttu við manninn. Til marks um það er höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum, nokkrum klukkustundum áður en hann veittist að henni á lífshættulegan hátt. Hann losnar úr gæsluvarðhaldi eftir tvo sólarhringa. Innlent 9.12.2024 22:36
Sá hvítt eftir árás með járnkarli Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini. Innlent 20.11.2024 10:55
Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði. Innlent 9.11.2024 11:19
Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir sakborningi sem grunaður er um líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu á Vopnafirði á miðvikudag. Innlent 19.10.2024 19:04
Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Einstaklingur var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu. Innlent 19.10.2024 12:41
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti
Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar: Sagði bílinn fluttan inn vegna kvikmyndaverkefnis Innlent