Stj.mál
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 187 ›
Efling vegagerðar með veggjöldum Gerð verður úttekt á kostum til að auka fjárfestingar í vegagerð með veggjöldum ef þingsályktunartillaga Einars K. Guðfinnssonar og Halldórs Blöndal, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, verður samþykkt. Innlent 13.10.2005 15:28
Sakar stjórnvöld um sofandahátt Sofandaháttur stjórnvalda hefur skapað gróðrarstíu fyrir ófyrirleitnar starfsmannaleigur sem grefur undan samfélagsgerðinni, sagði formaður Samfylkingarinnar í umræðu á Alþingi í dag um félagsleg undirboð á vinnumarkaði. Stjórnarliðar lýstu einnig áhyggjum af þróun mála. Innlent 13.10.2005 15:28
Rjúpnaveiði hefst að nýju Rjúpnaveiði hefst að nýju næsta haust ef frumvarp Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra verður að lögum. Frumvarpið hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Innlent 13.10.2005 15:28
Sofið á verðinum? Félagsmálaráðherra vill reyna til þrautar að leysa deiluna við Impregilo og segir að starfshópur eigi að fjalla um stöðu erlendra starfsmannaleiga. Formaður Samfylkingarinnar telur að stjórnvöld hafi sofið á verðinum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:28
Segir við orkufyrirtækin að sakast Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir verðhækkanir á raforku í kjölfar nýrra raforkulaga bersýnilega stafa af því að orkufyrirtækin hafi notað tækifærið til að bæta hag sinn. Þetta kom fram á Alþingi í dag. Þar boðaði ráðherrann jafnframt auknar niðurgreiðslur ríkissjóðs til að milda verðhækkanir í strjálbýli þannig að þær færu ekki upp fyrir tíu prósent. Innlent 13.10.2005 15:28
Gerðu athugasemdir við vinnubrögð Þingmenn Samfylkingarinnar gerðu alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð ráðherra ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær og gagnrýndu þá fyrir að svara fyrirspurnum seint, illa eða alls ekki. Innlent 13.10.2005 15:28
Frétt dregin til baka Í frétt Stöðvar tvö í gærkvöldi um að Ísland hefði verið komið á lista hinna viljugu þjóða fyrir ríkisstjórnarfund þann 18. mars 2003 voru gerð þau mistök að tímasetning fréttar CNN um atburðinn var mislesin. Sú ályktun sem dregin var af tímasetningunni er því röng. Fréttastofan dregur því frétt sína til baka og biðst velvirðingar á þessum mistökum. Innlent 13.10.2005 15:28
Fólk ætti að fá að brugga Leyfa verður fólki að framleiða léttvín og líkjöra, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á þingfundi Alþingis í gær. Innlent 13.10.2005 15:27
Á listann fyrir ríkisstjórnarfund Ísland var komið á lista hinna viljugu áður en ríkisstjórnarfundur var haldinn þann 18. mars 2003. Forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu á dögunum að ákvörðun um að styðja innrásina hefði verið tekin í kjölfar fundarins. Innlent 13.10.2005 15:27
Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 15:28
Mengunarkvótar skapa skriffinsku Ekki er ástæða til að setja mengunarkvóta á losunarheimildir fyrirtækja á innanlandsmarkaði, sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra á þingfundi Alþingis í gær. Innlent 13.10.2005 15:27
Verðhækkanir komu á óvart Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforkuverð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þingmaður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:27
Rétt að fá álit nefndar Sigurður Líndal lagaprófessor segir að sér finnist að rétt hefði verið að fá álit utanríkismálanefndar vegna Íraksmálsins en vill ekkert fullyrða um lögbrot í því sambandi. Innlent 13.10.2005 15:27
Landsfundur Samfylkingar í vor Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 22.-23. maí í vor. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í gærkvöldi eftir umræður um að halda fundinn jafnvel fyrr. Í upphafi fundarins verður tilkynnt um hver verður formaður flokksins, að undangenginni póstkosningu, en varaformaður verður kjörinn á fundinum sjálfum. Innlent 13.10.2005 15:27
Heilbrigðisvottorða krafist EES borgarar hafa forgang að vinnu hér, heilbrigðisvottorða verður krafist með umsókninni og reglugerð flýtt. Þannig bregst félagsmálaráðherra við gagnrýni ASÍ á Impregilo og atvinnuleyfin. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:27
Þróunarhjálp í stað öryggisráðsins Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að það geti verið allt eins skynsamlegt að verja meiri fjármunum til þróunarhjálpar í stað þess að eyða allt að milljarði til að reyna að komast í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Innlent 13.10.2005 15:27
Stjórnin framdi stjórnarskrárbrot Stjórnvöld frömdu stjórnarskrárbrot með því að heimila notkun landsins til árásar á Írak segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hann hyggst krefja forsætisráðherra skýringa á því hvers vegna herir bandamanna fengu leyfi til að hafa hér viðdvöl vegna árásarinnar, löngu áður en listi hinna staðföstu þjóða varð að veruleika. Innlent 13.10.2005 15:27
Óeðlileg yfirlýsing Gylfa Þingflokkur Frjálslynda flokksins telur óeðlilegt að forsvarsmenn samtaka launamanna lýsi því yfir að einn forystumaður í stjórnmálaflokki sé öðrum fremri, eins og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, kaus að gera. Gylfi sagði stuðning verkalýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ótvíræðan. Innlent 13.10.2005 15:27
Vill fund Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingunni, skýrði frá því á Alþingi í gær að hann hefði beðið formann utanríkismálanefndar um að halda fund í nefndinni fyrir hvatningu forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 15:27
Kosningarnar breyta litlu Kosningarnar í Írak á sunnudag eru aðeins þær fyrstu af þremur sem eru fyrirhugaðar í landinu fyrir árslok. Ekki er talið að þær breyti miklu enda sitja þingmennirnir sem verða kosnir aðeins til bráðabirgða. Erlent 13.10.2005 15:27
Grafið undan embætti umboðsmanns Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnvöld og sérstaklega dómsmálaráðherra hafi með ummælum sínum grafið undan embætti Umboðsmanns Alþingis og virðingu þess. Innlent 13.10.2005 15:27
Ráðuneyti bíður svars frá Kópavogi "Umsögn borgarstjóra við beiðninni var send Kópavogsbæ og yfirvöldum þar gefið tækifæri til að bregðast við röksemdum borgarinnar. Við búmst við svörum innan tveggja vikna og tökum efnislega afstöðu í framhaldinu," segir Pétur Örn Sigurðsson, lögfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, um lögnámsbeiðni Kópavogsbæjar á landi í Vatnsendakrika. Innlent 13.10.2005 15:27
Grjóthörð láglaunapólitík Almennir starfsmenn Hafnarfjarðar vilja að bærinn taki upp sjálfstæða launastefnu gagnvart þeim og hætti að láta launanefnd sveitarfélaganna semja um kjör þeirra á milli. Innlent 13.10.2005 15:27
Þingið ítrekað samþykkt gölluð lög Eftirlaunafrumvarpið er ekki eina lagasetningin sem hefur verið samþykkt á Alþingi og reynst gölluð eftir á. Ríkisstjórnin hefur tapað þó nokkrum fjölda mála fyrir dómstólum er varða nýsamþykkt lög. Stjórnarþingmaður segir að Alþingi verði að vanda sig betur. Innlent 13.10.2005 15:27
Pólitísk endalok Ingibjargar? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir mögulegt að hún hætti í stjórnmálum bíði hún ósigur fyrir Össuri Skarphéðinssyni í formannskosningu í Samfylkingunni. Hún segir að komið sé að hugmyndafræðilegri endurnýjun í flokknum. Innlent 13.10.2005 15:27
Gaf leyfi til yfirflugs Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti á Alþingi í gær að veitt hefði verið leyfi til yfirflugs yfir Ísland þremur vikum áður en ráðist var inn í Írak. Hann segir þetta ekki hafa verið stuðning við stríð. Innlent 13.10.2005 15:27
Afhendir ekki minnisblöð Stjórnarandstaðan krafði forsætisráðherra svara við því á Alþingi í dag hvort íslensk stjórnvöld hefðu leyft aðgang að lofthelgi og flugvelli vegna innrásar í Írak, þremur vikum áður en nafn Íslands var birt á lista yfir hinar viljugu þjóðir. Utanríkisráðuneytið vill ekki veita aðgang að minnisblöðum vegna þessa þar sem um sé að ræða samskipti við erlent ríki. Innlent 13.10.2005 15:27
Ekki skoðanir verkalýðsmálaráðs Sex menn úr forystu verkalýðshreyfinga og allir fulltrúar í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar sendu í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að skoðanir Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra ASÍ, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær séu ekki skoðanir verkalýðsmálaráðsins. Innlent 13.10.2005 15:26
Utanríkismálanefnd má birta gögnin Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að utanríkismálanefnd mætti sín vegna birta það sem henni sýndist um umræður um aðdraganda stríðsins í Írak. Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, skoraði á Halldór að hreinsa loftið með því að aflétta trúnaði af eigin ummælum í fundargerðum nefndarinnar. Innlent 13.10.2005 15:26
Halldór neitar ásökunum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið. Innlent 13.10.2005 15:26