Stj.mál
94 95 96 97 98 99 100 101 102 … 187 ›
Juncker áhyggjufullur vegna ESB Forsætisráðherra Lúxemborgar, Jean Claude Juncker, hefur miklar áhyggjur af framtíð Evrópusambandsins. Á ráðstefnu sem haldin verður dagana 16.-17. júní átti umræðuefnið upphaflega að snúast um efnahag sambandsins en þar sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins, sem ætti að taka gildi í júlí 2006, ekki alls fyrir löngu verða þau mál í brennidrepli. Erlent 13.10.2005 19:20
Landsbankinn traustari en Framsókn Björgólfur Guðmundsson svaraði Valgerði Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, fullum hálsi í útvarpsviðtali á Bylgunni um hádegi í gær. Um morguninn hafði Valgerður sagt það óæskilegt að Björgólfsfeðgar eignuðust Íslandsbanka og sagt að þeir ginu yfir öllu kviku á markaði. Innlent 13.10.2005 19:20
Brottflutningur frá Gasa löglegur Brottflutningur Ísraelsmanna frá Gasa og fjórum stöðum á Vesturbakkanum er löglegur samkvæmt dómi hæstaréttar Ísraels í dag. Andstaða við brottflutninginn fer þó stigmagnandi meðal almennings í Ísrael. Erlent 13.10.2005 19:20
Boðar að flugvöllurinn skuli fara Borgarfulltrúar R-listans boða að flugvöllurinn skuli fara en borgarstjóri vinnur með samgönguráðherra að undirbúningi nýrrar flugstöðvar. Innlent 13.10.2005 19:20
Vafasömum lögum aflétt í Sýrlandi Baath-flokkurinn í Sýrlandi, sem hefur öllu ráðið þar áratugum saman, hefur ákveðið að aflétta neyðarlögum sem hafa verið í gildi í fjörutíu og tvö ár. Þau leyfa yfirvöldum að handtaka borgara og rétta yfir þeim án rökstuðnings eða sjáanlegrar ástæðu. Lögin munu nú aðeins ná yfir brot á lögum sem varða þjóðaröryggi. Erlent 13.10.2005 19:20
Unnið gegn heimilisofbeldi Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur falið verkefnisstjórn um heilsufar kvenna að skoða ákveðna þætti í heilbrigðisþjónustunni til að vinna gegn heimilisofbeldi og bæta þjónustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis. Innlent 13.10.2005 19:20
Stefnan að hafa álverið á Húsavík Iðnaðarráðuneytið hefur sett stefnuna á Húsavík við undirbúning álvers á Norðurlandi og miðast vinna við val virkjanakosta nú við þá staðsetningu. Gert er ráð fyrir að jarðgufuvirkjanir í innan við fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Húsavík geti annað raforkuþörf meðalstórs álvers. Innlent 13.10.2005 19:20
Ólafur sakaður um málþóf Ólafur F. Magnússon lagði í fyrradag til á borgarstjórnarfundi að heimildir til niðurrifs sjö gamalla húsa yrðu dregnar til baka. Húsin eru milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og fimm þeirra eru frá 19. öld. Innlent 13.10.2005 19:20
Tillaga um vítur á Barroso felld Evrópuþingið felldi í dag tillögu um vítur á forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso, fyrir að fara í siglingu á snekkju grísks auðjöfurs. 589 greiddu atkvæði gegn henni en aðeins þrjátíu og fimm með, auk þess sem þrjátíu og fimm sátu hjá. Erlent 13.10.2005 19:19
Margir sækjast eftir efsta sætinu Allt eins getur farið að þrír eða fleiri muni keppa um fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík í haust. Enginn hefur þó lýst því opinberlega yfir að hann gefi kost á sér til forystu fyrir flokkinn í Reykjavík að undanskildum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, oddvita borgarstjórnarflokksins. Innlent 13.10.2005 19:20
Samningum lokið í næsta mánuði? Þriðju samningalotu fríverslunarviðræðna EFTA-ríkjanna og Suður-Kóreu er lokið. Í vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir að gerlegt eigi að vera að ljúka samningum í næstu lotu sem verður í Seúl í byrjun júlí. Innlent 13.10.2005 19:20
Ósætti í fjárlaganefnd Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti í dag, í trássi við vilja stjórnarandstöðunnar, að hætta athugun á einkavæðingu bankanna. Stjórnarandstaðan segir mörgum spurningum enn ósvarað. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður segir að stjórnarandstaðan muni nú íhuga hvort þess verði krafist að þing verði kallað saman vegna málsins. Innlent 13.10.2005 19:20
Landbúnaðarráðherra ekki vanhæfur Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra var ekki vanhæfur þegar hann skipaði í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands, að mati umboðsmanns Alþingis. Umsækjandi sem ekki fékk stöðuna kvartaði til umboðsmanns og taldi að ráðherra hafi verið vanhæfur vegna vinskapar við þann sem fékk stöðuna. Innlent 13.10.2005 19:19
Dagný bendi á dæmi Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að Kristinn H. Gunnarsson flokksbróðir hennar á Alþingi, sé vandamál í Framsóknarflokknum og þingmaðurinn tæti niður mál sem séu flokknum góð og þörf. Þessu hélt Dagný fram í RÚVAK í gær í umræðum um fylgi flokksins og skoðanakannanir. Kristinn H. Gunnarsson segir að orð Dagnýjar þarfnist rökstuðnings. Innlent 13.10.2005 19:20
Fjölmiðlaeinokun aflétt? Sýrlensk yfirvöld lýstu því yfir í dag að til greina kæmi að aflétta einokun Baath-flokksins á fjölmiðlum. Ríkið á nú og rekur þrjú dagblöð á arabísku, eitt sem kemur út á ensku, einu sjónvarpsstöðina og einu útvarpsstöðina sem leyft er að útvarpa pólitísku efni. Erlent 13.10.2005 19:20
Ráðherrar gefa 2/3 mánaðarlauna Ráðherrarnir í ríkisstjórn Afríkuríkisins Níger hafa lofað að gefa tvo þriðju mánaðarlauna sinna til hungraðra í landinu. Það eru um sextíu og fimm þúsund krónur. Forsætisráðherrann ætlar að gefa tvöfalda þá upphæð. Erlent 13.10.2005 19:20
Skuldir Afríkuríkja afskrifaðar George Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, greindu frá því eftir fund þeirra í Washington í gær að þeir væru að leggja drög að áætlun um að allar skuldir fátækustu ríkja Afríku, sem talin væru fylgja umbótastefnu, yrðu afskrifaðar. Erlent 13.10.2005 19:19
N-Kóreumenn gefa eftir Norður-Kóreumenn eru reiðubúnir að mæta á ný til sex ríkja viðræðna um framtíð kjarnorkuáætlunar sinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér í gær. Erlent 13.10.2005 19:19
Fjallar ekki frekar um bankasölu Löngum fundi fjárlaganefndar með ríkisendurskoðanda og framkvæmdanefnd um einkavæðingu lauk í gær með samþykkt meirihlutans um að nefndin fjallaði ekki frekar um málið. "Það kom margt fram á fundinum sem kallaði á frekari útskýringar," sagði Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar eftir fundinn. Innlent 13.10.2005 19:20
Kennedy leitaði lausnar Nýbirt skjöl sýna að John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, reyndi að finna diplómatíska lausn á Víetnamstríðinu með leynilegum samningaviðræðum við Rússa og Norður-Víetnama. Erlent 13.10.2005 19:20
Telur Skerjafjarðarveg óraunhæfan Samgönguráðherra líst illa á hugmyndir Reykjavíkurlistans um hraðbraut yfir Skerjafjörðinn. Álftnesingar segja að borgaryfirvöld hafi ekkert rætt við þau um málið. Ekki er langt síðan hugað var að framkvæmdinni en þá þótti hún óhagkvæm. Innlent 13.10.2005 19:20
Setur ofan í við umboðsmann Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. Innlent 13.10.2005 19:19
Prófkjör síðla hausts Prófkjör vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006 verður haldið mánaðamótin október nóvember næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag og verður prófkjörið lagt til við fulltrúaráðsfund í byrjun september. Innlent 13.10.2005 19:19
Ræða þrískiptingu ríkisvalds Hvernig á að tryggja þrískiptingu ríkisvaldsins? Það er spurningin sem Þjóðarhreyfingin veltir upp á fundi í kvöld að gefnu tilefni og á fundarstað sem ekki er valinn af handahófi. Innlent 13.10.2005 19:19
Undrast aðgerðaleysi stjórnvalda Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitastjóri í Raufarhafnarhreppi, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með lítinn stuðning stjórnvalda, sem vilyrði var gefið fyrir þegar staðurinn gekk í gegnum mikla erfiðleika. "Ég hélt að það væri meira kjöt á þessum beinum ríkisstjórnarinnar, því það hefur ekki farið mikið fyrir þeim stuðningi sem talað var um". Innlent 13.10.2005 19:19
39 hrefnur verði veiddar í ár Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyft verði að veiða 39 hrefnur til vísindarannsókna í ár. Sjávarútvegsráðherra segir að hrefnur verði veiddar þetta sumarið en hefur ekki tekið ákvörðum um hversu margar þær verða. Innlent 13.10.2005 19:19
Alþjóðleg samkeppni um Vatnsmýri Undirbúningur er nú hafinn að alþjóðlegri samkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. "Við teljum að þetta sé einstakt tækifæri til að halda alþjóðlega samkeppni um stórt lykilsvæði í hjarta höfuðborgar," segir Dagur B. Eggertsson. "Þetta hefur allt til að bera til að vekja heimsathygli meðal arkitekta og skipulagsfræðinga." Innlent 13.10.2005 19:19
Kanna jarðhita á Grænlandi Iðnaðarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun samstarfssamning sem gerður hefur verið við Grænland um orkumál. Samningurinn fylgir í kjölfar þess að sveitarfélag á Diskó-eyju á Grænlandi óskaði eftir samstarfi um það hvort og hvernig væri hægt að nýta 19 gráðna heitt vatn sem fundist hefur á eynni. Iðnaðarráðuneytið hefur falið Íslenskum orkurannsóknum að kanna jarðhitann og hefjast jarðfræðirannsóknir í ágúst næstkomandi. Innlent 13.10.2005 19:19
Skipulagsmál helsta kosningamál Tæpu ári fyrir næstu borgarstjórnarkosningar bendir flest til þess að skipulagsmál verði helsta kosningamálið. Fyrir rúmri viku kynntu sjálfstæðismenn hugmyndir um eyjabyggð í Reykjavík en í dag kynnti borgarfulltrúi R-listans tillögu um framtíðarbyggð á Vatnsmýrarsvæðinu með tengingu við Álftanes. Innlent 13.10.2005 19:19
Verður við hátíðahöld í Noregi Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, verða viðstödd hátíðarhöld í Noregi á morgun þar sem þess verður minnst að öld er liðin frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar og endurreisnar konungdæmis í Noregi. Hátíðarsamkoma verður í þinghúsinu í Ósló vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:19