Efnahagsmál
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 71 ›
Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél Kristófer Már Maronsson, hagfræðingur og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir galla í reiknivél TR hafa valdið því að útreikningar hans á ráðstöfunartekjum einstæðrar móður á örorkubótum voru kolrangir. Hann hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum með greininni. Innlent 11.9.2024 19:18
Gögn sem ekki er hægt að TReysta Í gær birti ég hér grein undir nafninu “Þið mótmælið… afleiðingum eigin gjörða”. Greinin var svargrein við hluta af grein formanns VR og þingmanns Flokks fólksins þar sem þau boðuðu fólk með sér til mótmæla á Austurvelli. Í upphafi greinar tók ég dæmi þeirra af einstæðri móður í erfiðri stöðu og reyndi að átta mig á forsendunum. Til þess notaði ég m.a. reiknivél sem var að finna á vef TR (Tryggingastofnunar Ríkisins), opinberrar stofnunar, til þess að reyna að áætla hvaða ráðstöfunartekjur einstæða móðirin hefði. Það voru mistök, enda komst ég að því eftir á að reiknivélin var gölluð. Skoðun 11.9.2024 18:33
Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun Arion banka um að hækka vexti á verðtryggðum lánum með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi, sem hann segir hafa fengið að viðgangast á íslenskum fjármálamarkaði um árabil. Neytendur 11.9.2024 16:39
Einstæð tveggja barna mamma fái alls ekki 421 þúsund krónur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gerir grein starfsmanns Sjálfstæðisflokksins, Kristófers Más Maronssonar á Vísi, að umfjöllunarefni í pistli á Facebook. Hann segir þar hverja rangfærsluna reka aðra en víst er að margir ráku upp stór augu þegar þeir virtu fyrir sér útreikninga Kristófers Más. Villa í reiknivél Tryggingastofnunar virðist leika lykilhlutverk. Innlent 11.9.2024 10:13
Ríkið þyrfti að „rifa seglin“ enn meira og minnka umsvif sín á lánsfjármarkaði Þótt boðaður sé minni útgjaldavöxtur en áður í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár dugar það ekki til að slá á þenslu, að mati sérfræðinga á skuldabréfamarkaði, og ríkið þyrfti að „rifa seglin“ enn meira til að ná fram nauðsynlegri kólnun í hagkerfinu og minnka umsvif sín á lánsfjármarkaði. Útlit er fyrir mikla útgáfuþörf ríkissjóðs á árinu 2025, sem gæti orðið nálægt 200 milljörðum, og hún kann að reynast þung með tilheyrandi hækkun á markaðsvöxtum ef ekki tekst að laða erlenda fjárfesta inn á skuldabréfamarkaðinn. Innherji 11.9.2024 06:31
Ríkisútgjöld aukast um tugi milljarða á næsta ári Útgjöld ríkisins aukast um 55 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Innlent 10.9.2024 19:21
Fjármálaráðherra segir engar kollsteypur í fjárlagafrumvarpinu Útgjöld ríkissjóðs halda áfram að aukast að raungildi á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í morgun. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við markmið Seðlabankans um hjöðun verðbólgu og lækkun vaxta. Innlent 10.9.2024 11:45
Ekki „blússandi gangur“ á rafvörumarkaði eins og gögn RSV gefi til kynna Forstjóri Ormsson segir að gögn Rannsóknarseturs verslunarinnar, sem peningastefnunefnd Seðlabankans horfi meðal annars til við mat á umfangi einkaneyslu þegar stýrivextir eru ákveðnir, séu röng. Þau gögn leiði í ljós að það sé „blússandi gangur“ í hagkerfinu en því sé hins vegar ekki fyrir að fara á rafvörumarkaði. Horfur séu á að tekjur Ormsson verði á pari milli ára, mögulega einhver aukning, en forstjóri félagsins segist óttast að Seðlabankinn sé að taka ákvarðanir út frá röngum gögnum. Innherji 10.9.2024 11:00
Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs dragist saman um sextán milljarða króna á milli ára og nemi 41 milljarði króna árið 2025 samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þar er boðað aðhald til þess að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Viðskipti innlent 10.9.2024 09:31
Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Fjármálaráðherra Þýskalands hafnaði metnaðarfullum tillögum fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu um efnahagslega endurreisn álfunnar aðeins örfáum klukkustundum eftir að þær voru lagðar fram í gær. Nær útilokað virðist að þær nái fram að ganga. Viðskipti erlent 10.9.2024 08:54
Svona var kynning Sigurðar Inga á fjárlagafrumvarpinu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra boðar til fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 09 í dag. Á fundinum kynnir ráðherra fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025. Innlent 10.9.2024 08:31
Gætu þurft að taka fram fyrir hendur Seðlabankans Stjórnvöld verða að grípa inn í, hafi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki hug á því að lækka vexti í bráð. Þetta segir þingmaður Flokks fólksins sem hvetur fólkið til þess að mótmæla við þingsetningu á morgun. Innlent 9.9.2024 23:17
Segja að ekkert muni breytast nema fólkið sýni samstöðu Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. Innlent 9.9.2024 20:02
Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Efnahagsleg hnignun Evrópu þýðir að lífsgæði íbúa álfunnar skerðast ef ekkert verður að gert. Marshall-aðstoðin eftir seinna stríð bliknar í samanburði við þá fjárfestingu sem Evrópa þarf að ráðast í samkvæmt nýrri skýrslu fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu. Viðskipti erlent 9.9.2024 14:20
Krefjast þess að ríkisstjórn vakni af blundi á „sögulegum“ mótmælum Meginkrafa mótmæla stærstu heildarsamtaka launafólks landsins á morgun er að ríkisstjórnin vakni af blundi og ráðist í markvissar aðgerðir gegn háu vaxtastigi og verðbólgu, að sögn formanns VR. Hann segir mótmælin söguleg. Innlent 9.9.2024 10:05
Við mótmælum… Einstæð móðir á örorkubótum hefur með harðfylgi og útsjónarsemi náð að eignast og halda íbúð. Hún festi vexti fyrir nokkrum árum og hefur greitt 120.000 krónur á mánuði af lánunum. En svo „féll snjóhengjan“, vextirnir losnuðu og núna á hún að greiða 270.000 krónur í hverjum mánuði. Skoðun 9.9.2024 09:01
Hefur „miklar áhyggjur“ af viðvarandi háum verðbólguvæntingum Nýlega birtir þjóðhagsreikningar gefa til kynna að það sé jafnvel enn meiri kraftur í innlendri eftirspurn en peningastefnunefnd Seðlabankans taldi í liðnum mánuði, að sögn varaseðlabankastjóra, en þar hafi bæði samneyslan og fjárfesting verið umfram spár bankans. Viðvarandi háar verðbólguvæntingar séu „mikið áhyggjuefni“ og það þarf skýrari merki um að þær séu að ganga niður til að hægt sé að hefja vaxtalækkunarferlið. Innherji 8.9.2024 15:56
Greiðslubyrði húsnæðislána lækkar um helming! Frekari lækkana að vænta á næstu mánuðum Með nánast einu pennastriki væri hægt að raungera fyrirsögnina hér að ofan. Með einu pennastriki væri hægt að hrinda í framkvæmd breytingu sem myndi á afar skömmum tíma, örfáum mánuðum, skila einhverjum mestu umbótum fyrir íslensk heimili og fyrirtæki sem um getur. Skoðun 8.9.2024 14:33
Kærur ekki hugsaðar til að ná fram pólitískum markmiðum Deilur um tekjur af fasteignagjöldum af vindorkuveri í Búrfelli gætu tafið framkvæmdir Landsvirkjunar um allt að tvö ár. Umhverfis- og orkumálaráðherra segir kæruleiðir ekki hugsaðar til að ná fram pólitískum markmiðum. Innlent 5.9.2024 19:01
Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað samfélagið Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda. Innlent 5.9.2024 12:16
Krónan gefur eftir þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum Þegar ljóst varð að væntingar um að gjaldeyrisinnstreymi samtímis háönn ferðaþjónustunnar myndi ýta undir gengisstyrkingu krónunnar væru ekki að raungerast fóru fjárfestar að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum um tugi milljarða á nokkrum vikum. Lokanir á þeim stöðum með krónunni hafa átt mestan þátt í því að hún hefur núna ekki verið lægri gagnvart evru í næstum eitt ár, að sögn gjaldeyrismiðlara, og sé líklega búin að færast á nýtt jafnvægisgildi en viðskiptahalli þjóðarbúsins jókst verulega á milli ára á fyrri árshelmingi. Innherji 5.9.2024 06:32
Íslendingar eiga met í fjölgun innflytjenda Íslendingar hafa einstakt tækifæri til að koma að koma í veg fyrir menningarárekstra í framtíðinni með því að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Hvergi innan ríkja OECD hefur innflytjendum fjölgað jafn hratt og mikið og á Íslandi. Innlent 4.9.2024 19:20
Allir sammála um óbreytta vexti Allir meðlimir peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands voru sammála seðlabankastjóra um að halda vöxtum óbreyttum, þegar þeir höfðu þegar staðið í 9,25 prósentum í heilt ár. Viðskipti innlent 4.9.2024 16:43
Öll ríki Evrópu eru smáríki í alþjóðlegu samhengi Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu segir öll ríki Evrópu vera smáríki, sem verði undir í alþjóðlegri samkeppni vinni þau ekki nánar saman. Mikilvægi Íslands og Noregs hafi aukist eftir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Innlent 3.9.2024 19:21
Fjórar myndir af Íslandi Á undanförnum árum hefur ríkisstjórnin hrósað sér í hástert fyrir að hafa bætt ráðstöfunartekjur og kaupmátt fólks í landinu. Nýlega kom út skýrsla Nordregio sem sýnir þróun kaupmáttar á Norðurlöndunum. Skoðun 3.9.2024 18:31
Afneitun alkans Mér finnst ég oft geta heimfært afneitun alkóhólistans upp á íslenskt samfélag. Þá sérstaklega þegar rætt er um íslensku krónuna og hvort hún geti mögulega verið rót þeirra vandamála sem upp koma í íslensku samfélagi aftur og aftur. Skoðun 3.9.2024 11:30
Breyttar aðstæður frá því að AGS sagði aðhald í opinberum rekstri væri hæfilegt Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagði að aðhald í opinberum rekstri væri hæfilegt var það byggt á gögnum sem sýndu fram á að hagkerfið væri kaldara en síðar hefur komið í ljós. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að í ljósi upplýsinga um meiri þrótt í hagkerfinu og þrálátari verðbólgu en fyrirséð var í vor þegar álitið var gert, þá kalli það á meira aðhald í ríkisfjármálum. Endurskoða þurfi mat á hvað sé hæfilegt aðhald hjá ríkissjóði. Innherji 30.8.2024 11:58
Líkur á vaxtalækkun í nóvember aukist vegna minni verðbólgu Líkur hafa aukist á vaxtalækkun í nóvember enda gæti verðbólga hafa hjaðnað í 5,6 prósent í október. Matvælaverðbólga dróst saman hraustlega í nýrri mælingu. „Þótt freistandi sé að þakka innkomu Prís þessa lækkun þykir okkur líklegra að óvænt hækkun liðarins i júlí hafi einfaldlega verið frávik vegna tímabundinna þátta“ sem hafi gengið til ágústmælingu verðbólgu, segir í viðbrögðum frá markaðsviðskiptum Kviku banka. Innherji 29.8.2024 16:12
Verð á matvöru lækkar í fyrsta sinn í þrjú ár Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09 prósent milli mánaða en lækkaði um 0,16 prósent ef húsnæðisliðurinn er tekinn út. Viðskipti innlent 29.8.2024 09:17
Hagstjórn á verðbólgutímum Verðbólgan hjaðnar hægar en vonir stóðu til og þrátt fyrir hátt vaxtastig er markmið Seðlabankans um 2,5% verðbólgu ekki í sjónmáli. Hvers vegna gengur ekki betur að ná tökum á verðbólgunni og hvað er til ráða? Skoðun 28.8.2024 09:30