Handbolti

Lærisveinar Geirs skotnir í kaf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Geir er á sínu öðru tímabili við stjórnvölinn hjá Magdeburg.
Geir er á sínu öðru tímabili við stjórnvölinn hjá Magdeburg. vísir/getty
Geir Sveinsson horfði upp á lærisveina sína í Magdeburg tapa með átta marka mun, 32-24, fyrir Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Magdeburg er í 11. sæti deildarinnar með 18 stig en liðið hefur ekki sýnt mikinn stöðugleika í vetur.

Stórskyttan Laus Kaufmann skoraði 10 mörk fyrir Göppingen sem leiddi allan leikinn og vann sanngjarnan sigur.

Marko Bezjak og Michael Damgaard skoruðu fimm mörk hvor fyrir Magdeburg sem mætir Hamburg í næsta deildarleik sínum.


Tengdar fréttir

Langþráður sigur Bergischer

Björgvin Páll Gústavsson varði 12 skot í marki Bergischer sem vann eins marks sigur, 31-30, á Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×