Fréttir
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
Holtavörðuheiði gæti lokast með stuttum fyrirvara Óvissustig er í gildi á Holtavörðuheiði. Vegagerðin varar við að hún gæti lokast með stuttum fyrirvara meðan versta veðrið gengur yfir í dag. Innlent 27.1.2024 10:49
Olíuflutningaskip í ljósum logum eftir loftárás Húta Breskt olíuflutningaskip stendur í ljósum logum í Adenflóa eftir að Hútar skutu eldflaug að því í gærkvöldi. Árásin er samkvæmt Hútum viðbragð við auknum árásum Breta og Bandaríkjamanna á Jemen síðastliðnar vikur. Erlent 27.1.2024 10:31
Þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni fyrir notkun á uppfinningu Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Íslenskar orkurannsóknir, eða ÍSOR, þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum fyrir notkun á uppfinningum sem starfsmaðurinn fann upp á þegar hann var starfsmaður stofnunarinnar. Innlent 27.1.2024 10:26
Búist við lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum Fyrripartinn í dag mun allhvass vindur með dimmum éljum ganga yfir, fyrst á sunnanverðu landinu, og síðan vestantil. Búast má við lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum í éljunum. Innlent 27.1.2024 08:23
Lagði sig á hringtorgi í Kópavogi í nístingskulda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í gærkvöldi eða nótt um ölvaðan einstakling sem hafði ákveðið að leggja sig á hringtorgi í Kópavogi. Hiti var undir frostmarki á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en þar hefur jafnframt snjóað talsvert undanfarið. Lögreglan ók manninum heim til sín. Innlent 27.1.2024 08:03
„Ef við þurfum að sleppa nammideginum, þá er það bara þannig“ Afar athyglisverðar og hispurslausar umræður voru í Pallborði Vísis þar sem farið var yfir hugsanlega þátttöku Íslands í Eurovision. Innlent 27.1.2024 08:01
Skjálfti við Bláfjöll fannst á höfuðborgarsvæðinu Klukkan um hálfsexleytið í morgun var skjálfti sem mældist 3,1 að stærð fimm kílómetrum norðvestur af Bláfjallaskála. Hann fannst um höfuðborgarsvæðið. Innlent 27.1.2024 07:34
Ómar bjargaði lífi fimm einstaklinga Ómar Andrés Ottósson var einungis tvítugur að aldri og verðandi stúdent í Kaupmannahöfn þegar hann varð bráðkvaddur vegna heilablæðingar. Aðstandendur hans, sem sátu eftir harmi slegnir, tóku þá ákvörðun að gefa líffæri hans, enda þótti það í anda Ómars að enda jarðvist sína með slíkri gjöf. Andlát Ómars leiddi þannig til þess að hvorki meira né minna en fimm einstaklingar fengu nýtt og betra líf. Innlent 27.1.2024 07:00
Ákærður fyrir að leggja átta manns í lífshættu í ábataskyni Maður hefur verið ákærður fyrir láta útbúa búseturými í atvinnuhúsnæði án tilskilinna leyfa og án nauðsynlegra brunavarnaráðstafanna. Fram kemur í ákæru að maðurinn hafi leigt húsnæðið og leigt það út til annarra, en í að minnsta kosti átta menn bjuggu í því. Með því huga ekki að brunavörnum er hann sagður hafa stefnt lífi mannanna í hættu. Innlent 27.1.2024 07:00
Trump gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir dala Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna verður gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir bandaríkjadala í fyrir ærumeiðingar sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna. Erlent 26.1.2024 22:57
Færeyingar gefa Grindvíkingum tíu milljónir Færeyski Rauði krossinn hefur undanfarna viku staðið fyrir fjársöfnun til að styðja við Grindvíkinga vegna hamfaranna. Rauði krossinn tilkynnti í dag að hann muni gefa 250 þúsund danskar krónur. Innlent 26.1.2024 21:41
Biðlar til fólks að sýna samfélagslega ábyrgð Hópur Grindvíkinga hefur hafið undirskriftasöfnun á Ísland.is þar sem þess er krafist að Grindvíkingar fái að halda borgaralegan fund með bæjarstjórninni um þær aðgerðir sem eru í smíðum fyrir Grindvíkinga. Innlent 26.1.2024 21:13
Dagdvöl á Selfossi lokað í fimm vikur vegna sparnaðar Eldri borgarar á Selfossi, sem nýta sér þjónustu Árbliks, sem er dagdvöl er miður sín yfir því að loka eigi dagdvölinni í fimm vikur í sumar í sparnaðarskyni hjá Sveitarfélaginu Árborg. „Ég veit ekki hvernig við eigum að vera ein heima í fleiri vikur“, segir óhress eldri borgari á staðnum. Innlent 26.1.2024 20:30
Alþjóðadómstóllinn telji trúanlegt að hópmorð sé í gangi Kári Hólmar Ragnarsson lektor í þjóðarrétti við Háskóla Íslands segir að bráðabirgðaúrskurður í máli Suður-Afríku gegn Ísrael sýni fram á að dómurinn telji trúanlegt að hópmorð sé að eiga sér stað í Palestínu. Erlent 26.1.2024 20:05
„Það er allt undir“ Fulltrúar fagfélaganna héldu áfram að funda hjá Ríkissáttasemjara í karphúsinu í dag. Um var að ræða þriðja fund þeirra og Samtaka atvinnulífsins síðan deilunni var vísað til sáttasemjara fyrir tíu dögum síðan. Innlent 26.1.2024 20:01
Skoða að nota skattalega hvata til að auka framboð á húsnæði Verið er að undirbúa fjölda aðgerða til að auka framboð á húsnæði fyrir Grindvíkinga að sögn ráðherra í ríkisstjórninni. Þær miði að því að halda niðri verðbólgu. Forsætisráðherra segir ekki búið að ákveða hvort förgunargjald í altjóni verði afnumið en áhersla sé lögð á jafnræði íbúa. Innlent 26.1.2024 20:01
„Þetta er hreinasti skáldskapur“ Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti segist ekkert skilja í sögusögnum sem fóru af stað í kjölfar lögregluaðgerðar við skólann í gær. Maður sem hótaði að gera árás í skólanum kom aldrei inn fyrir veggi hans þennan dag. Innlent 26.1.2024 18:40
Brot á alþjóðalögum að framfylgja ekki skipunum Alþjóðadómstólsins Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sem er menntuð í alþjóða- og Evrópulögum sem og mannréttindum og alþjóðlegum refsirétti, segir bráðabirgðaniðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag vera ofboðslega mikilvæga fyrir íbúa á Gasa og hafa mikla þýðingu. Innlent 26.1.2024 18:37
Lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 Daníel E. Arnarsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78 í sumar. Hann tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í dag. Hann mun þá hafa gegnt embættinu í sjö ár. Innlent 26.1.2024 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ísrael þarf að gera meira til að koma í veg fyrir mannfall almennra borgara á Gasasvæðinu og tryggja mannúðaraðstoð. Þetta kemur fram í bráðabirgðarniðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag. Ísraelsher er þó ekki gert að hætta árásum á svæðinu. Við rýnum í stöðuna með sérfræðingi í beinni útsendingu. Innlent 26.1.2024 18:08
Eigandi WWE sakaður um mansal Fyrrverandi starfsmaður fjölbragðaglímusambandsins WWE, World Wrestling Entertainement, hefur sakað forstjóra fyrirtækisins hann Vince McMahon um mansal. Erlent 26.1.2024 17:50
LHÍ hafnar með öllu að kyn hafi skipt máli við ráðninguna Listaháskóli Íslands hafnar því með öllu að kyn umsækjenda hafi haft nokkuð með það að gera þegar kona var ráðin lektor í sviðslistafræðum við sviðslistadeild skólans árið 2022. Þá hafi kærunefnd jafnréttismála ekki leitað eftir upplýsingum um aðkomu rektors í málinu sem skipti sköpum í úrskurði nefndarinnar. Innlent 26.1.2024 17:15
Rafmagn komið á í Skerjafirði Rafmagnslaust er í Skerjafirði og í nágrenni við Reykjavíkurflugvöll vegna háspennubilunar. Innlent 26.1.2024 16:50
Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club. Innlent 26.1.2024 16:35
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna bendlaðir við árásirnar 7. október Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir yfirvöld í Ísrael hafa útvegað stofnuninni gögn sem bendli starfsmenn hennar við árásir Hamas-samtakanna á Ísrael þann 7. október. Um er að ræða tólf starfsmenn sem Philippe Lazzarini, yfirmaður UNRWA, segir að hafi verið reknir. Erlent 26.1.2024 15:41
Ræða veru bandarískra hermanna í Írak Ráðamenn í Bandaríkjunum og Írak munu á næstunni hefja viðræður um að binda enda á bandalagið gegn Íslamska ríkinu, sem stofnað var til að berjast gegn vígamönnum hryðjuverkasamtakanna í Írak. Meðal þess sem ræða á um er hvort bandarískir hermenn verða áfram í landinu og þá hve umfangsmikil viðvera þeirra verður. Erlent 26.1.2024 14:59
Áfram samið á þingi þó Trump mótmæli Samningaviðræðum um mögulegar aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó annars vegar og hernaðaraðstoð handa Úkraínu og öðrum ríkjum hefur ekki verið hætt á bandaríska þinginu. Talið er að koma muni í ljós á næstu dögum hvort samkomulag sé mögulegt. Erlent 26.1.2024 14:01
Blæs á sögusagnir og segir algjöra ró hafa verið innan veggja skólans Skólastjórnendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti segja allt hafa verið með kyrrum kjörum í skólanum í gær eftir að honum var lokað í kjölfar þess að stjórnendum bárust upplýsingar um að fyrrverandi nemandi hyggðist koma í skólann og valda miska. Innlent 26.1.2024 13:58
Íslendingur handtekinn fyrir að ljúga um árás á Tenerife Íslenskur ferðamaður á Tenerife hefur verið handtekinn grunaður um ljúga til um árás sem hann sagðist hafa orðið fyrir og reyna svíkja út fé vegna þess. Um er að ræða karlmann sem er 66 ára gamall, en handtakan fór fram á hóteli mannsins á suðurhluta eyjunnar. Innlent 26.1.2024 13:33
Komast ekki heim í dag og mögulega ekki um helgina Ljóst er að Grindvíkingar fá ekki að fara heim til að sækja eigur sínar í dag og Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna er heldur ekki bjartsýn á að þeir muni geta það heldur um helgina. Innlent 26.1.2024 12:56