Lægðin fyrr á ferðinni Allt lítur út fyrir að lægðin sem hefur verið sýnileg í langtímaspám komi fyrr til landsins en fyrstu spár reiknuðu með að sögn veðurfræðings. Feykihvasst verði á fimmtudag með suðaustan- eða austanátt gangi spár eftir. Veður 25.10.2026 15:13
Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Í dag má búast við norðan kalda eða strekkingi víðast hvar en austan Öræfa má reikna með allhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi. Á láglendi er búist við rigningu eða slyddu en snjókomu til fjalla. Veður 25.10.2026 07:20
Lægðardrag á leiðinni Í dag er búist við bjartviðri víða á vesturhluta landsins en skúrum og slydduéljum austanlands og með norðurströnd landsins. Útlit er fyrir að það hvessi suðaustan- og austanlands í kvöld. Hiti er á bilinu eitt til sex stig en frystir víða inn til landsins. Veður 24.10.2026 07:33
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði en þar er mestu uppsafnaðri úrkomunni spáð. Tvær lægðir áttu að fara yfir landið um helgina, sú fyrri í gær og sú seinni í dag. Ekki er talin hætta í byggð en skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum. Veður 18.10.2026 07:30
Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar. Veður 18.10.2026 07:22
Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Vegagerðin vekur athygli á því að vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar á norðanverðu Snæfellsnesi upp úr hádegi gæti komið til lokana á vegum með stuttum fyrirvara. Búast má við hviðum allt að 45 metrum á sekúndu á svæðinu. Veður 17.10.2026 10:13
Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag þegar næsta lægð gengur yfir landið. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Suður-Grænland sé alldjúp og víðáttumikil lægð sem stjórni veðrinu hjá okkur í dag. Það verði vaxandi sunnan- og suðaustanátt, hvassviðri eða stormur síðdegis með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands. Veður 17.10.2026 07:40
Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir á landinu öllu, en þær taka ýmist gildi á morgun laugardag eða á sunnudag. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi annað kvöld á suðvestan- og vestanverðu landinu. Gul viðvörun hefur svo verið gefin út fyrir landið allt seinni partinn á sunnudag. Veður 16.10.2026 11:36
Talsverð rigning næstu daga Suðvestan átta til þrettán metrar á sekúndu og lítilsháttar skúrir en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti á bilinu fjögur til tíu stig. Veður 16.10.2026 07:10
Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir eru í gildi víða um land vegna lægðar sem nálgast landið úr suðri. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi í Breiðafirði, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í kvöld og í nótt. Veður 14.10.2026 10:24
Viðvaranir á viðvaranir ofan Hringveginum verður lokað undir Eyjafjöllum og alveg að Öræfum frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan níu hið minnsta vegna óveðursins fram undan. Spáð er norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi og stöku hviðum upp á 40 metra á sekúndu fyrir sunnan. Veður 13.10.2026 22:54
Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi. Veður 12.10.2026 13:52
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Skil fóru yfir landið í nótt með hvassviðri og stormi sem fara norður af landinu um hádegisbil. Í dag og á morgun er spáð skúrum en á miðvikudag er von á annari lægð og þá er spáð snjókomu fyrir norðan. Veður 12.10.2026 07:20
Suðaustan stormur og gul viðvörun Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi. Veður 11.10.2026 07:36
Milt og blautt í dag Við erum á milli veðrakerfa í dag samkvæmt veðurfræðingi og hæg breytileg átt því ríkjandi og dálitlar skúrir í flestum hlutum landsins. Hitinn er frá þremur og upp í tíu stig. Veður 10.10.2026 07:25
Allmikil lægð þokast meðfram landinu Vindar verða fremur hægir í dag en norðan- og norðvestanstrekkingur úti við norðvestur- og suðvesturströndina. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands fylgir þessu rigning með köflum eða skúrir. Veður 9.10.2026 07:03
Mikil rigning og allhvass vindur Skil eru á leið yfir landið og með þeim fylgir allhvass eða hvass vindur af suðaustri og mikil rigning sunnan- og vestantil á landinu. Það lægir seinnipartinn. Veður 8.10.2026 07:00
Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Smálægð skammt norðvestur af landinu stjórnar veðrinu í dag og verður áttin því suðlæg eða breytileg. Það fyrsti allvíða í nótt en hiti yfir daginn verður á milli tveggja og níu stiga. Veður 7.10.2026 06:51
Næturfrost víða Kraftlitlar smálægðir eru á sveimi í kringum landið og verður því áttin breytileg í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Það frysti víða í nótt. Veður 6.10.2026 06:59
Slydda og snjókoma til fjalla Búast má við rigningu í norðausturfjórðungi landins en bjartviðri og norðanátt upp á þrjá til átta metra á sekúndu á vestanverðu landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Veður 5.10.2026 06:31
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið. Veður 4.10.2026 07:15
Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig. Veður 3.10.2026 08:30
Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna suðaustan storms á norðaustanverðu landinu í nótt og fram á morgundaginn. Viðvaranir eru þegar í gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu vegna mikillar úrkomu. Veður 30.9.2026 08:48
Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur fram að talsverðri til mikilli úrkomu sé spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld. Veður 30.9.2026 07:29