Fréttir

Vendingar í borginni, vand­ræði vegna verk­taka og Pepsi-sátt

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hið nýja Vinstri gæti náð inn tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri. Í kvöldfréttum mætir stjórnmálafræðingur í myndver og rýnir í stöðuna í borginni.

Innlent

Fram­sókn sviptir hulunni af fram­boðs­lista í Mosó

Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur samþykkt framboðslista flokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann og þau Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs og Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur verma annað og þriðja sæti listans.

Innlent

Rósin á­fram í hnappagati Sam­fylkingarinnar

Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar.

Innlent

Sakfelling hjúkrunar­fræðingsins sé sorg­leg

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings sorglega. Áhrifin sem slíkur dómur kynni að hafa á stéttina séu gríðarleg. Hún gagnrýnir jafnframt að ákvæðum, sem varða rannsóknir lögreglu á atvikum í heilbrigðisþjónustu, hafi ekki verið fylgt eftir af stjórnvöldum.

Innlent

„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar.

Innlent

Neita að heimila Pentagon að nota gervi­greindina í fjöldaeftirlit

Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna.

Erlent

Reykja­dalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna

Inga Sæland segir það hafa verið sér kjaftshögg að lesa í fjölmiðlum að seglin yrðu dregin saman í Reykjadal í sumar vegna skorts á fjárframlögum frá ráðuneytum hennar og Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þau muni styrkja samtökin um 58 milljónir króna, á sama tíma og skorið verður niður í fjárveitingum til annarra félagasamtaka.

Innlent

Páll Winkel varð fyrir valinu

Páll Winkel hefur verið skipaður í embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Sex sóttu um embættið, sem Bryndís Helgadóttir hefur gegnt síðan Haukur Guðmundsson lét af störfum í nóvember.

Innlent

Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum

Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor.

Innlent

Síðustu strandaglóparnir komust til Kefla­víkur í nótt

Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki.

Innlent

„Þetta kom okkur al­gjör­lega í opna skjöldu“

Reykjavíkurborg harmar hvernig staðið var að uppsögn verktaka í Ölduselsskóla, en starfsmenn skólans urðu vitni að orðaskaki fulltrúa beggja aðila í kjölfar uppsagnar. Verktakinn hafnar því að borgin hafi margoft krafist úrbóta. 

Innlent

Íris kveður stjórn­málin í Eyjum

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru.

Innlent

Kveður Þor­gerði og snýr sér að Guði

Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, hefur ákveðið að láta af störfum eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann bauð sig fram í oddvitasæti Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar en laut í lægra haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur.

Innlent

Segja verktakann hafa fallið á prófinu

Reykjavíkurborg segir að verktaki sem kom að framkvæmdum í Ölduselsskóla í Breiðholti hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu. Vegna þessa var ákveðið að slaufa samstarfinu og fá annan í staðinn. Hættuástand skapaðist við skólann eftir að verktakinn tók saman búnað sinn í gær. Til stendur að hefja skólastarf samkvæmt stundatöflu á mánudag.

Innlent

Hafa til sunnu­dags að breyta dvalar­tíma upp á nýju gjöldin

Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík verða að breyta dvalartíma barna sinna fyrir miðnætti á sunnudag vilji þau að greiðsluseðill í apríl taki mið af breyttri gjaldskrá. Sviðsstjóri á skóla- og frístundasviði segir borgina vinna að því að finna aðrar leiðir og ekki sé þörf á panikki. Umsóknarkerfið verður fryst á mánudag í sex vikur vegna „stóru innritunarinnar“ fyrir haustið.

Innlent