Fréttir
91 92 93 94 95 96 97 98 99 … 334 ›
Geimvísindastofnun Íslands stóð fyrir fundi í Grósku Opinn fundur Alþjóðlega vinnuhópsins um kannanir reikistjörnunnar Mars (IMEWG) fór fram í Grósku í kvöld. IMEWG kom saman hér á landi í boði Geimvísindastofnun Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem fundurinn er opinn almenningi. Innlent 2.9.2024 21:49
Lögðu hald á einkaþotu Venesúelaforseta Bandarísk yfirvöld lögðu hald á einkaþotu sem Nicolas Maduro forseti Venesúela hefur nýverið flogið með í Dóminíska lýðveldinu í dag. Flugvélinni var í framhaldinu flogið til Flórída en bandamenn Maduro eru grunaðir um að hafa fest kaup á henni með ólögmætum hætti. Erlent 2.9.2024 21:11
Húseigendur og leigjendur vilja nýja löggjöf og kalla eftir samráði Leigjendur og húseigendur lýsa yfir mikilli óánægju með breytingu á húsaleigulögum. Forsvarsfólk þeirra segir að lítið sem ekkert samráð hafi verið haft við þau meðan lögin voru í smíðum. Kallað er eftir nýrri húsaleigulöggjöf. Innlent 2.9.2024 21:00
Mega ekki leita að vopnum í töskum og fatnaði barnanna Vopnaburður grunnskólabarna og unglinga hefur aukist á síðustu árum segir formaður Skólastjórafélags Íslands. Enn uggvænlegri þróun hafi orðið nýlega í þá átt að ungmenni eru farin að beita vopnunum. Samfélagið sé komið á alvarlegan stað og nú þurfi að spyrna við fótum. Innlent 2.9.2024 20:00
Viðauki við samning SÍ og SÁÁ hluti af aðgerðum gegn ópíóðavandanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Innlent 2.9.2024 19:14
Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi „Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“ Innlent 2.9.2024 18:38
Vopnaburður ungmenna ekki nýr af nálinni Formaður skólastjórafélags Íslands segir ekki nýtt af nálinni að börn og ungmenni gangi um með vopn. Það sem hafi breyst sé vilji þeirra til að beita þeim. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.9.2024 18:12
Þræleðlilegt að reka ríkissjóð í halla í heimi „Litla-Miðflokksins“ Þingmaður Viðreisnar segir furðulegt að hafa fylgst með flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fór fram um helgina. Hún gagnrýnir ábyrgðarleysi á sögulega lágu fylgi flokksins í því sem hún kallar „Litla-Miðflokknum“. Innlent 2.9.2024 17:57
Segir Sigurjón Kjartansson ekki ofbjóða sér Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur fettir fingur út í það sem honum þykir einfeldningsleg nálgun á gríni. Hann segist hafa rekið augu í að enn og aftur sé hún hafin umræðan um hvort gera megi grín að hræðilegum hlutum. Innlent 2.9.2024 16:36
Elsti karlmaður landsins fallinn frá Karl Sigurðsson, elsti íslenski karlmaðurinn, er fallinn frá 106 ára að aldri. Karl fæddist á Ísafirði þann 14. maí 1918 og var skírður 1. desember 1918 á sama degi og Ísland varð fullvalda. Karl lætur eftir sig stóran hóp afkomenda. Innlent 2.9.2024 16:33
Eldflaugum frá Norður-Kóreu skotið að Úkraínu Rússar sendu í nótt fjölda dróna og eldflauga að skotmörkum í Úkraínu. Notast var við 35 stýri- og skotflaugar auk 26 Shahed-dróna, samkvæmt Úkraínumönnum, og segjast þeir hafa skotið niður níu skotflaugar, þrettán stýriflaugar og tuttugu dróna. Erlent 2.9.2024 16:09
Dyraverðir vilja fá að nota handjárn: „Það er orðið svo mikið ofbeldi niðri í bæ“ Dyraverðir kalla eftir því að fá heimild til að nota handjárn í þágu aukins öryggis. Dyravörður sem stendur fyrir undirskriftasöfnun þess efnis segir aukið ofbeldi í miðborginni kalla á breytingar á lögum sem heimili dyravörðum, með skilyrðum, að bera og beita handjárnum. Sjálfur hafi hann í tvígang lent í því á undanförnum mánuðum að ráðist var að honum með eggvopni. Innlent 2.9.2024 16:01
Tvö þúsund ferðamenn án sambands: „Við erum mjög stressaðir yfir þessu“ Rafmagnsleysi í Mýrdal olli því að símasambandslaust var á stóru svæði í Mýrdal, þar á meðal í Reynisfjöru og Reynishverfi, fram eftir degi. Landeigandi á svæðinu segir óboðlegt að símasamband detti út á svæðinu svo lengi, sér í lagi í ljósi þess fjölda ferðamanna sem sækir Reynisfjöru. Innlent 2.9.2024 15:36
„Þetta er aðför að veikum rétti leigjenda“ Formaður samtaka leigjenda gagnrýnir harðlega breytingu á húsaleigulögum sem tók gildi nú um mánaðarmótin. Um sé að ræða aðför að leigjendum þar sem staða leigusalans sé fyrst og fremst styrkt. Ekki hafi verið tekið tillit til krafna samtakanna við breytingu laganna heldur þvert á móti. Innlent 2.9.2024 13:55
Verkföllin úrskurðuð ólögleg Dómstóll í Ísrael hefur komist að þeirri niðurstöðu að verkföll þar í landi, sem farið hefur verið í samhliða mótmælum þar sem fjöldi fólks hefur kallað eftir því að gert verði vopnahlé við leiðtoga Hamas í skiptum fyrir þá gísla sem vígamenn samtakanna halda enn, séu ólögleg. Erlent 2.9.2024 13:00
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. Innlent 2.9.2024 11:45
Leigjendur ósáttir við ný lög Í hádegisfréttum verður rætt við formann Samtaka leigjenda sem gagnrýnir harðlega nýgerðar breytingar á húsaleigulögum sem tóku gildi nú um mánaðarmótin. Innlent 2.9.2024 11:37
Laxaseiði úr landeldisstöð sluppu í sjó Allt að þrjú hundruð laxaseiði sluppu í sjó á Kópaskeri í júlí. Ekki tókst að fanga neitt hinna stroknu seiða eftir að ljóst varð um óhappið sem leiddi til stroks laxfiska úr landeldisstöð. Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík ehf. tilkynnti Matvælastofnun um óhappið þriðjudaginn 30. júlí en seiðin sluppu í sjó við dælingu laxaseiða úr eldisstöð fyrirtækisins á Röndinni á Kópaskeri yfir í brunnbátinn Ronja Fjord. Innlent 2.9.2024 11:14
Geimfarið snýr aftur til jarðar en geimfararnir verða eftir Starliner geimfari Boeing verður flogið aftur til jarðar á föstudaginn en geimfararnir sem fóru með því til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í júní verða eftir. Upprunalega átti geimferð þeirra Butch Wilmore og Suni Williams eingöngu að taka átta daga en vonast er til að þau geti snúið aftur til jarðar í febrúar. Erlent 2.9.2024 11:13
Slökktu minniháttar eld í Litlatúni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti útkalli í verslunarkjarnanum í Litlatúni í Garðabæ, þar sem minniháttar eldur kviknaði í rafmagnstöflu. Innlent 2.9.2024 11:06
Blöskrar grín árum saman að þjáningum kvenna Stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segir grín að nauðgunum ýta undir kynbundið ofbeldi. Hún tínir til dæmi frá mörgum helstu skemmtikröftum þjóðarinnar og segir tíma til kominn til að hætta að gera lítið úr ofbeldi. Innlent 2.9.2024 10:53
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. Innlent 2.9.2024 10:10
Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“ Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga. Innlent 2.9.2024 09:21
Játaði á sig hundruð brota gegn 60 barnungum stúlkum Barnaníðingur að nafni Ashley Paul Griffith hefur játað að hafa brotið gegn um það bil 60 stúlkum í Brisbane í Ástralíu og á Ítalíu á árunum 2007 til 2022. Hann hefur þegar verið dæmdur sekur en bíður þess að vera gerð refsing. Erlent 2.9.2024 08:55
Á leið í flug og vildarpunktarnir eru útrunnir Óánægju gætir meðal ungra Sjálfstæðismanna í garð forystu flokksins ef marka má skrif Franklíns Ernis Kristjánssonar, sem situr í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Innlent 2.9.2024 08:35
Handtekin grunuð um innbrot á 22 lúxus heimili á Ibiza Lögregluyfirvöld á Spáni hafa handtekið þrjá, tvo menn og konu, sem eru grunuð um að hafa brotist inn í fjölda íbúða á Ibiza og notað gas til að slæva heimilisfólk. Erlent 2.9.2024 08:01
Hringirnir áfram á Eiffel og sitt sýnist hverjum Ágreiningur er kominn upp í Frakklandi eftir að Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, sagðist hafa tekið þá ákvörðun að hafa Ólympíuhringina áfram á Eiffel-turninum. Erlent 2.9.2024 07:30
Spáð mildu veðri í dag Smám saman mun draga úr krafti lægðarinnar á Grænlandshafi sem stýrði veðrinu á landinu um helgina. Veður 2.9.2024 07:17
Unnið að því að gera við alvarlega rafmagnsbilun í Mýrdal Alvarleg rafmagnsbilun er í gangi í Mýrdal, en samkvæmt tilkynningu hjá RARIK er búið að staðsetja bilunina og unnið að viðgerð. Innlent 2.9.2024 07:05
Þeim fjölgar sem ná ekki lestrarviðmiðum í 1. bekk „Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ef börn hafa ekki náð nægilegri færni í 3. bekk þá næst hún sjaldnast. Þá ná þau í rauninni aldrei jafnöldrum sínum og sitja einfaldlega eftir.“ Innlent 2.9.2024 07:02