Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís. Neytendur 21.8.2026 14:34
Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Kortavelta Íslendinga jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu minna innanlands en aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu landsmanna farið fram erlendis. Neytendur 18.8.2026 12:18
Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu. Neytendur 17.8.2026 21:23
Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“. Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Neytendur 6.8.2026 08:43
Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel. Neytendur 4.8.2026 13:01
Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Flugfélagið EasyJet segir engar líkur á því að átt hafi verið viljandi við töskumátara sem notaður eru til að athuga hvort handfarangurstöskur rúmi innan stærðartakmarkana á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Neytendur 2.8.2026 15:42
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28.7.2026 16:55
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Neytendur 24.7.2026 13:12
Arion banki hækkar gjöld Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent. Neytendur 24.7.2026 12:17
Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki „Ef markmiðið með forsenduákvæðinu var að tryggja kaupmátt þá held ég að allt bendi til þess að það hafi gengið eftir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Neytendur 23.7.2026 13:28
Kalla inn fæðubótarefni Heilsubúðin og Heildsalan Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage. Neytendur 21.7.2026 12:52
Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Ísband hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á tveimur tegundum Jeep tengiltvinnbíla vegna eldhættu í háspennurafhlöðu. Innköllunin nær til 130 bíla af sex árgerðum. Neytendur 17.7.2026 16:36
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14.7.2026 08:19
Vekja athygli á innköllun leikfangs HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Neytendur 13.7.2026 11:32
Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Bapao beef frá Tjendrawasih þar sem óvissa er um öryggi kjöts sem notað var í vöruna. Neytendur 13.7.2026 10:11
Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Á undanförnum árum virðist nýtt æði hafa rutt sér til rúms á íslenskum áfengismarkaði: svokallaður „lite“-bjór, eða léttur bjór. Næringarfræðingur segir léttan bjór ekki vera mikið hollari heldur en venjulegan bjór þó hann innihaldi færri hitaeiningar. Hollasta leiðin til að drekka bjór sé einfaldlega að drekka minna af honum. Neytendur 10.7.2026 19:14
Kalla inn súkkulaðibitakökur Gæðabakstur-Ömmubakstur hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla súkkulaðibitaköku vegna ofnæmisvalda. Neytendur 10.7.2026 15:52
Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Matvælastofnun varar neytendur við notkun steypujárnspönnu frá kínverska Napoleon, sem seld er í Byko, vegna flæðis þungmálma. „Vinsamlegast hættu að nota hana strax,“ segir í tilkynningu frá Byko. Neytendur 10.7.2026 14:51
Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu. Neytendur 3.7.2026 20:32
Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Verð fyrir gistinótt eins fullorðins á tjaldsvæðum landsins hefur hækkað að meðaltali um tæp sjö prósent á milli ára en verð á rafmagni um rúm ellefu prósent. Þegar litið er á meðalverð landshluta er dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu en ódýrast á Vesturlandi. Neytendur 3.7.2026 15:03
Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, þykir ófaglegt að Samkeppniseftirlitið hafi gefið út umræðuskjal um eldsneytismarkað sem að hans mati innihalda ávirðingar í garð olíufélaganna. Neytendur 2.7.2026 22:10
Thule lækkar í prósentu Bjórinn Thule mun lækka í prósentu. Hann hættir að vera 5 prósenta bjór og verður frekar 4,4 prósenta „lite“ bjór. Hann mun samt áfram heita Thule. Coca Cola á Íslandi segist gera þetta til að mæta breyttum áherslum neytenda sem leiti í auknum mæli að léttari bjór. Neytendur 1.7.2026 10:59
Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Söluaðila hefur verið gert að afhenda viðskiptavini nýjan eyrnahreinsi sem búinn er myndavél, eftir að ekki tókst að hlaða hreinsinn sex dögum eftir kaupin og hann metinn ónothæfur. Neytendur 27.6.2026 22:16
Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Alþýðusambandið segir lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni ekki hafa skilað sér í lægra lítraverði á bensínstöðvum á Íslandi. Neytendur 26.6.2026 12:13