Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Bjarki Sigurðsson skrifar 16. september 2026 09:38 Ökumenn sparneytnari bíla greiða himinhátt verð fyrir eldsneytislítrann miðað við útreikninga Visku. Vísir/Vilhelm Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent.
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 2027 er gert ráð fyrir að kílómetragjald verði hækkað um 15,9 prósent. Í dag greiða ökumenn flestra ökutækja 6,95 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra og verður gjaldið því um 8,1 krónur eftir áramót. Ökumenn ökutækja þyngri en 3.500 kíló greiða svo enn hærra gjald sem fer stigmagnandi eftir hækkandi þyngd. Þegar kílómetragjaldið var innleitt um síðustu áramót lækkaði verð neytenda á dælu umtalsvert. Til að mynda kostaði lítrinn af bensíni 308,5 krónur á dælu hjá Orkunni 31. desember 2025 og 1. janúar 2026 kostaði lítrinn 212 krónur. Neytendum birtist þannig lækkun á dælu um 96,5 krónur. Hins vegar hóf ríkið þá að rukka gjald fyrir hvern ekinn kílómetra í staðinn og eldsneytið því ekki endilega mikið ódýrara. Sparneytnari bílar greiða meira Stéttarfélagið Viska bar kílómetragjaldskerfið saman við eldra kerfi eldsneytisskatta og umreiknaði það í jafngildi skatts á hvern lítra eldsneytis. Því sparneytnari sem bíllinn er, því hærri upphæð greiðir ökumaður fyrir hvern tank. Reiknað var með að flestir bílar eyði á bilinu fjórum til tólf lítrum á hundraðið. Þeir bílar sem eyða tólf lítrum, það er að segja eyðslumeiri bílar, greiða á næsta ári, þegar kílómetragjald hefur verið hækkað, 317 krónur fyrir bensínlítrann og 352 krónur fyrir dísillítrann. Einnig var tekið tillit til gengisþróunar og núverandi heimsmarkaðsverðs. Dýrasti lítri Evrópu Eyðsluminni bílar greiða þó umtalsvert meira fyrir lítrann, 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann. Bensínlítrinn er aðeins dýrari í Hong Kong þar sem neytendur borga 511 krónur. Norðmenn greiða 378 krónur, Danir 357 krónur og í Finnlandi kostar lítrinn 309 krónur. Hér fyrir neðan má sjá graf frá Visku með eldsneytisverði í dýrustu löndum heims. „Þyngsti skatturinn á heimilin um þessar mundir er verðbólgan og í því ljósi telur Viska það hagstjórnarlegan afleik að verðtryggja krónutölugjöld og hækka kílómetragjaldið um 15,9%. Áhrifin felast ekki aðeins í beinu framlagi þessara hækkana til verðbólgu heldur setja hækkanirnar fordæmi fyrir atvinnulífið og næra verðbólguvæntingar. Ríkið getur ekki ætlast til verðstöðugleika af atvinnulífinu á sama tíma og það verðtryggir eigin gjaldskrár,“ segir í greiningu Visku. Leggja til mótvægisaðgerðir Stéttarfélagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Ríkisstjórnin getur fjármagnað tekjutapið að hluta með eftirfarandi fimm aðgerðum sem hvorki fela í sér aukinn halla né koma niður á grunnþjónustu. Þannig má halda fast í markmiðið um hallalaus fjárlög án þess að ríkið sjálft ýti undir verðbólgu eða auki enn frekar álögur á vinnandi fólk,“ segir í greiningunni. Þá eru lagðar fram fimm mótvægisaðgerðir sem skoða má á myndinni hér fyrir neðan.
Stéttarfélög Skattar, tollar og gjöld Kílómetragjald Bílar Samgöngumál Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Sjá meira