Innlent

Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma

Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar varar við stefnuleysi í uppbyggingu gagnavera. Það verði að vera skýrt hvaða gögn gagnaver á Íslandi geymi og hvort að gögn sem séu Íslendingum samfélagslega mikilvæg séu. Björg Eva segir í aðsendri grein náttúru Íslands eiga betra skilið en „stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans“.

Innlent

Vara við „perra­gler­augum“

Evrópska persónuverndarráðið hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd. Gleraugun verða sívinsælli víða um heim og eru gjarnan kölluð „perrugleraugu“ þar sem fólk notar þau í að taka fólk myndbönd af fólki á götum úti án þeirra vitundar og birta á netinu.

Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gær að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þeim hafði þá borist tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. 

Innlent

Kannast ekki við lýsingar Jóns

Dómsmálaráðherra segist ekki kannast við það að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt, líkt og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hélt fram í gær. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að hann kjósi að ganga úr þingflokknum. 

Innlent

Bakar til góðs næsta sólar­hringinn

Núna klukkan tólf hófst svokallað bakstursmaraþon en fjölskylda úr Kópavogi ætlar að baka næstu 24 klukkutímana til styrktar góðu málefni. Yfirbakarinn hvetur fólk til að kíkja við. 

Innlent

Þakplötur að losna af í­þrótta­húsi í Grundar­firði

Þakplötur eru byrjaðar að losna af íþróttahúsinu í Grundarfirði. Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins segir í samtali við Vísi að það sé orðið verulega hvasst en verktaki sé á svæðinu að skoða málið. Björgunarsveitin Klakkur hefur verið kölluð til. 

Innlent

Skoða við­brögð við rann­sókn á Öl­gerðinni

Lífeyrissjóður verzlunarmanna íhugar að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á fyrirtækinu. Sjóðurinn er einn tíu lífeyrissjóða sem eiga samanlagt tæplega helming í móðurfélagi Ölgerðarinnar. Brot á samkeppnislögum samræmist ekki stefnu sjóðsins og gæti haft afleiðingar. 

Innlent

Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var í nótt kallað út vegna bruna í lyftara í Straumsvík. Í tilkynningu á Facebook kemur fram að slökkvilið hafi farið í sams konar útkall fyrir viku síðan.

Innlent

„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“

Moskítóflugan virðist ekki láta íslenska vetrarfrostið á sig fá en skordýraáhugamaður í Kjósinni fann flugu í garðinum hjá sér í vikunni. Hann hafði í sumar leitað að lirfum en án árangurs og átt ekki von á því að finna fleiri flugur. Nú bíður hann spenntur eftir því að sjá hvort fleiri stingi upp kollinum.

Innlent

Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn

Á þriðja tug kvenna kusu að fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi á árunum 2022 til 2025. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands telur aukinn fjölda mæðra sem kjósa þessa leið vera tilkominn vegna áhrifa frá Bandaríkjunum þar sem konur þurfa að borga fyrir aðkomu ljósmæðra. Þá hafi hún áhyggjur af ljósmæðrum sem séu settar inn í slíkar aðstæður of seint.

Innlent

Hand­tekinn fyrir að ausa fúk­yrðum yfir hóp fólks

Aðstoðar lögreglu var óskað vegna manns sem var með ógnandi tilburði neðst á Skólavörðustíg í gær en hann var að endingu handtekinn. Þá mátti á myndbandi heyra til hans öskra á fólk sem virtist vera að taka hann upp á símana sína.

Innlent

Að­gengið gott en gefur ekki upp synjanirnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir íslenska fjölmiðla hafa afar gott aðgengi að sér. Hvorki kemur þó fram hversu mörgum viðtalsbeiðnum hún hefur hafnað á kjörtímabilinu né hvaða miðlar hafa fengið synjun.

Innlent

„Eigum ekki að bíða eftir al­var­legu at­viki“

Skólastjórar í Hafnarfirði vilja takmarka aðgang að skólum og fá fjármagn til öryggisúrbóta. Í Reykjavík hafa einstaklingar eða hópar farið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, eins og Vísir greindi frá í vikunni. Kolbrún Magnúsdóttir bæjarfulltrúi segir að ekki eigi að bíða eftir alvarlegu atviki áður en ráðist sé í nauðsynlegar úrbætur í Hafnarfirði.

Innlent

Jafnlaunavottunin af­numin en starfs­fólkinu fækkar ekki

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir að starfsfólki Jafnréttisstofu hafi ekki fækkað eftir afnám jafnlaunavottunar. Hún segir Viðreisn hafa talað hátt um hagræðingu hjá ríkinu en látið tækifæri til hennar fram hjá sér fara.

Innlent

Ekki á­stæða til að rýma bankann

Undanfarna daga hefur fyrirtækjum og stofnunum borist óljósar sprengjuhótanir erlendis frá, þar á meðal er Íslandsbanki. Bankinn lét lögregluna vita umsvifalaust og hefur unnið náið með henni að málinu.

Innlent

Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað

Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allt virðist mega ef rætt sé um BDSM.

Innlent

Sjö ára dómur

Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokallaða. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. 

Innlent

Nýr for­seti ASÍ, um­deildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ fyrir rétt rúmri klukkustund. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæðum á móti 127 atkvæðum, Arnaldar Grétarssonar, mannfræðings. Georg tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin. Bjarki Sigurðsson fréttamaður fylgdist með í beinni útsendingu frá þingi og kemur með nýjustu tíðindi af ASÍ þingi í hádegisfréttum Bylgjunnar, en mikil spenna er einnig fyrir kosningu varaformanna síðar í dag. 

Innlent

„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingis­manna“

Ýmsir hafa lagt orð í belg á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Ákvörðunin er sögð áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu Viðreisnar á meðan einhverjir vilja meina að augljóst sé að Jón sé ekki hópíþróttamaður og að hann eigi eftir að bregðast ríkisstjórninni og sínum fyrrverandi flokki.

Innlent

Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót

Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla í nóvember og desember með greiðsluþátttöku ríkisins. Samkomulag hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd aðgerðanna, en sjúklingar þurfa að uppfylla skilyrði stofnunarinnar.

Innlent

Georg Páll er næsti for­seti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin.

Innlent

Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu

„Veðurstofan þarf að brjóta odd af oflæti sínu og fara að gefa staðbundnari litakvarðaðar viðvaranir. Í dag er þeim „smurt út“ yfir heil spásvæði. Í gær var þannig allt Suðurland á appelsínugulu vegna hávaðaroks og sviptivinda í Eyjum og undir Eyjafjöllum. Einu staðbundnu viðvaranirnar eru fyrir höfuðborgarsvæðið!“

Innlent