Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. október 2026 13:43 Halla Gunnarsdóttir er fyrsti varaforseti ASÍ. vísir/anton brink Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, var kjörin fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins sem fer fram á Hilton Reykjavík.
Halla hafði því betur í baráttunni gegn Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, sem gaf einnig kost á sér í embættið. Halla hlaut 182 atkvæði en Sólveig 108. Þetta herma heimildir fréttastofu. Mikil spenna hafði ríkt um kjör fyrsta varaforseta vegna deilna á milli Sólveigar og Höllu sem hafa tekið þó nokkuð pláss í umfjölluninni undanfarið. Miðstjórn ASÍ lagði til að varaforsetum yrði fækkað úr þremur í einn en sú tillaga var naumlega felld í gær. 60 prósent þingfulltrúa greiddu atkvæði með tillögunni en tvo þriðju atkvæða þurfti til að samþykkja tillöguna. Sólveig sagði tillöguna vera tilraun Höllu til að sölsa undir sig völd innan ASÍ og sagði það til skoðunar að Efling myndi draga sig úr sambandinu. Halla hafnaði alfarið ásökunum Sólveigar um valdabrölt og sagði á dögunum að hún myndi draga framboð sitt til fyrsta varaforseta til baka ef Arnaldur Grétarsson myndi verða valinn forseti ASÍ. Eins og var greint frá fyrr í dag var það Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, sem bar sigur úr býtum og tekur við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ. Halla dró því ekki framboð sitt til baka og fagnar sigri í dag. Ekki liggur fyrir hvort Sólveig anna gefi kost á sér í embætti annars varaforseta og þá á eftir að greiða atkvæði um hver verður annar og þriðji varaforseti sambandsins.
ASÍ Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira