Erlent

Feðginin prófuðu nýjar skamm­byssur

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Kim Ju Ae, dóttir hans og væntanlegur arftaki, heimsóttu á dögunum byssuverksmiðju. Þar prófuðu þau meðal annars nýjar skammbyssur með háttsettum herforingjum i er Norður-Kóreu. Degi áður höfðu þau fylgst saman með tilraunum með nýjar stýriflaugar einræðisríkisins.

Erlent

Út­hýsa aðals­mönnum úr lávarða­deild breska þingsins

Hertogar, jarlar og greifar fá ekki lengur sæti í lávarðadeild breska þingsins í gegnum erfðir eftir að samkomulag náðist um að af afnema það aldagamla fyrirkomulag í gær. Einhverjir þeirra eru þó sagðir fá að sitja áfram í deildinni eftir breytinguna.

Erlent

Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur.

Erlent

Ráðist á þrjú skip á Persa­flóa í nótt

Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest.

Erlent

Segir Ís­land geta klárað við­ræður á einu og hálfu ári

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu.

Erlent

Snúa sér aftur að kjarn­orku fimm­tán árum eftir Fukushima

Í nótt verða fimmtán ár liðin frá því að kjarnakljúfar orkuversins í Fukushima í Japan bræddu úr sér. Það gerðist eftir stóran jarðskjálfta og flóðbylgju sem skall á Japan í kjölfarið og leiddi það til versta kjarnorkuslyss heimsins frá slysinu í Tjernóbil.

Erlent

Gefa ekki eftir fyrr en „ó­vinurinn hefur verið gersigraður“

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið.

Erlent

Íranir enn víg­reifir

Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram.

Erlent

„Höfum ekki unnið nóg“

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. 

Erlent

Vaxandi ótti við lang­varandi á­tök

Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð.

Erlent

Skutu niður eld­flaugar í land­helgi Tyrk­lands

Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. 

Erlent

Rann­saka heimagerða sprengju sem hryðju­verk

Alríkislögregla Bandaríkjanna hafa hafið rannsókn í kjölfar þess að heimagerðri sprengju var kastað nærri heimili borgarstjóra New York-borgar. Hún sprakk ekki en talið er að atburðurinn hafi verið „hryðjuverk innblásið af ISIS“.

Erlent

Felldu sex í á­rás á enn einn bátinn

Bandarískir hermenn gerðu í gær árás á bát á austanverðu Kyrrahafi, undan ströndum Bandaríkjanna, og felldu þar sex menn. Báturinn er sagður hafa verið notaður til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna en fjölmargar sambærilegar árásir hafa verið gerðar á Kyrrahafi og Karíbahafi á undanförnum mánuðum.

Erlent

Eld­haf í Glasgow

Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað.

Erlent

Kveikt í púður­tunnu í Mið-Austurlöndum

Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð.

Erlent

Sonur Khamenei nýr leið­togi Írans

Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar.

Erlent