Erlent

Skaut konu sína, börn og barna­börn

Samúel Karl Ólason skrifar
Nágrannar fyrir utan húsið urædda á föstudaginn.
Nágrannar fyrir utan húsið urædda á föstudaginn. AP/Matt Barnum, WJET

Maður sem skaut átta manns til bana í Bandaríkjunum um helgina, þar á meðal tvö börn og ólétta konu, er sagður hafa verið höfuð fjölskyldunnar sem flest fórnarlömb hans og árásarmaðurinn sjálfur tilheyrðu.

Hann var 45 ára gamall og var skyldur sjö af átta fórnarlömbum sínum. Áttunda fórnarlambið var vinkona óléttu konunnar sem mun hafa verið í heimsókn. Ólétta konan var komin átta mánuði á leið.

Ódæðið átti sér stað í Erie í Pennsylvaníu á föstudagskvöldið. Þá er maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, sagður hafa gengið inn í hús þar sem fólkið var samankomið og byrjað að skjóta fjölskyldumeðlimi sína.

AP-fréttaveitan hefur eftir lögreglunni að upptökur af vettvangi sýni manninn ganga inn í húsið og skothríð heyrist þar inni. Í kjölfarið komi tvær konur öskrandi og byrji að berja á dyrnar. Þá gekk maðurinn út úr húsinu, skaut þær til bana og fór aftur inn þar sem hann beindi byssu sinni að sjálfum sér.

Lögregluþjónar á leið inn í húsið á föstudaginn. Maðurinn hafði skotið fjölskyldu sína og sjálfan sig áður en fyrstu lögregluþónana bar að garði.AP/Matt Barnum, WJET

Þegar lögregluþjóna bar að garði komu þeir að líkum kvennanna fyrir utan. Á neðstu hæð hússins fundu þeir lík fimm ára drengs og eins árs stúlku. Lík tveggja kvenna til viðbótar og tveggja ungra manna fundust í stiga hússins og lík mannsins á efri hæðinni.

Í samtali við fjölmiðla sagði Rick Lorah, lögreglustjóri Erie, að hann vildi ekki ræða tilefni ódæðisins að svo stöddu en gaf til kynna að geðheilsa mannsins hefði spilað eitthvað inn í. Hann sagði rannsóknina meðal annars snúast um að ræða við aðra ættingja og skoða snjalltæki kvennanna sem skotnar voru fyrir utan húsið.

„Þær vissu að eitthvað gekk á í þessu húsi. Við verðum að komast að því hvað það var.“

Nágrannar kveikja á kertum fyrir utan húsið þar sem morðin voru framin.AP/Ted Shaffrey

„Hvernig getur þú gert þetta?“

Blaðamaður AP ræddi við tvær konur sem sögðust vinkonur einnar kvennanna sem dóu í húsinu. Þær sögðust hafa þekkt fjölskylduna í um þrjátíu ár og að árásarmaðurinn hefði verið hinn ljúfasti, áður fyrr. Hann hefði lent í vandræðum undanfarið.

Ein konan sagðist ekki skilja hvernig nokkur maður gæti gert sinni eigin fjölskyldu þetta.

„Þetta hefði aldrei átt að koma fyrir hana, börnin eða nokkurn. Hans eigin barnabörn, börnin hans. Hvernig getur þú gert þetta?“


Tengdar fréttir

Níu létust eftir skotárás

Átta voru skotnir til bana í gærkvöldi í borginni Erie í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfar skotárásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×