FH hélt Selfossi á botninum FH kom sér aftur á sigurbraut í kvöld eftir tapið nauma í Hafnarfjarðarslagnum í síðustu umferð en liðið vann Selfoss á útivelli, 36-31. Handbolti 3.10.2026 21:27
Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Eftir mikil læti sem urðu á milli þjálfara á leik í 3. flokki karla í handbolta á Ísafirði um helgina, og yfirlýsingar á báða bóga, hafa menn nú náð sáttum og ákveðið að mál sé að linni. Handbolti 3.10.2026 20:06
Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Sävehof í sigri í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Íslendingalið Gummersbach mætti Kiel í efstu deild karla í Þýskalandi og Börsungar unnu risasigur gegn Alicante. Fjöldi íslenskra handboltamanna var á ferðinni í dag. Handbolti 3.10.2026 19:28
Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Barcelona hálfan leikinn gegn ungverska liðinu Veszprém í úrslitaleik HM félagsliða í handbolta í Egyptalandi í gær. Hans gamli samstarfsmaður reyndist maður leiksins og var valinn mikilvægastur á mótinu. Viktor og Janus Daði Smárason urðu að sætta sig við silfur. Handbolti 2.10.2026 07:54
Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Afturelding valtaði yfir Fram í Lambhagahöllinni í kvöld. Hákon Daði Styrmisson, hornamaður Aftureldingar, skoraði 17 mörk í átján marka sigri liðsins. Lokatölur 24-42 fyrir gestunum úr Mosó. Handbolti 1.10.2026 22:32
Haukar halda sigurgöngunni áfram Haukar sitja enn á toppi Olís-deildar karla eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Víkingum í kvöld, 38-29. Haukar hafa ekki enn stigið feilspor í deildinni og byrja deildina sterkt. Handbolti 1.10.2026 20:40
KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum KA vann stórsigur á ÍBV í Olísdeild karla í handbolta í landsbyggðarslag kvöldsins. Fyrri hálfleikur leiksins var jafn en heimamennirnir voru mun betri í seinni hálfleik. Handbolti 1.10.2026 19:50
Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Fram var niðurlægt á heimavelli í kvöld í Olís-deildinni. Gestirnir í Aftureldingu gjörsamlega völtuðu yfir heimamenn sem gátu ekki spilað vörn fyrir sitt litla líf, en staðan í hálfleik var 15-22. Lokatölur 24-42 og Fram að tapa þriðja leiknum í röð á meðan Mosfellingar vinna sinn þriðja sigur á tímabilinu og eru komnir í þriðja sæti deildarinnar. Handbolti 1.10.2026 19:46
Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Fram tók á móti Selfossi í Olís-deild kvenna í kvöld þar sem Fram náði að vinna 21-17 sigur. Leikurinn var gríðarlega jafn framan af en lið Fram náði að vera skrefi á undan. Handbolti 1.10.2026 19:31
Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Guðjón Valur Sigurðsson fagnar því að hafa klófest einn af arftökum sínum í íslenska landsliðinu, vinstri hornamanninn Orra Frey Þorkelsson, sem kemur til þýska félagsins Gummersbach næsta sumar. Handbolti 1.10.2026 14:32
Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett FH mætti spænska stórliðinu Bidasoa í Evrópudeild karla í handbolta. Leikurinn var jafn en spænska liðið var með yfirhöndina og á endanum vann 39-37 sigur. Handbolti 30.9.2026 20:24
Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Magdeburg vann mikilvægan sigur gegn Kiel í þýsku úrvaldeild karla í handbolta í kvöld. Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður Magdeburg í sigrinum en leikurinn endaði 32-26. Handbolti 30.9.2026 18:52
Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, kannast ekki við fregnir af krísufundi hjá liði hans í aðdraganda stórsigurs á Mors-Thy frá Danmörku í Evrópudeildinni í gær. Handbolti 30.9.2026 08:53
Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Fjallað er um stórt tap danska úrvalsdeildarfélagsins Mors-Thy hér á landi gegn Val í dönskum miðlum. Einn helsti handboltasérfæðingur Dana segir að um mikil vonbrigði séu að ræða og um leið hrósar hann Björgvini Páli Gústavssyni. Handbolti 30.9.2026 07:01
„Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ „Ég held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld. Þetta er frábært handboltalið, spilar frábæran handbolta og er mjög rútínerað. Að vinna svona lið með ellefu mörkum er ekkert grín,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, eftir sigur á heimavelli í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Evrópudeildinni. Danska liðið Mors-Thy lá í valnum í kvöld, en um er að ræða lið sem endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 39-28 fyrir Val. Handbolti 29.9.2026 21:50
Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Valur vann í kvöld stórsigur á danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar. Ellefu marka sigur var niðurstaðan í leik sem heimamenn léku við hvurn sinn fingur. Lokatölur 39-28 og Valsmenn byrja tímabilið í Evrópudeildinni af krafti. Handbolti 29.9.2026 18:01
Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handknattleiksdeild Harðar sendi í morgun frá sér yfirlýsingu vegna máls sem kom upp í leik við Stjörnuna og greint var frá á Vísi í morgun. Þar segir að stjórn Stjörnunnar segi ósatt um málið. Handbolti 29.9.2026 10:03
Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handknattleiksdeild Stjörnunnar sakar þjálfara Harðar á Ísafirði um að hafa veist að þjálfara Stjörnunnar og haft í hótunum við hann, í leik í 3. flokki karla á Ísafirði um helgina. Handbolti 29.9.2026 08:22
Elvar með sex mörk í toppslagnum Elvar Ásgeirsson var með bestu mönnum Ribe-Esbjerg í fimm marka tapi liðsins gegn toppliði GOG í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 36-31, sigur GOG. Handbolti 28.9.2026 19:58
Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Viggó Kristjánsson leikmaður Erlangen, skoraði tvö mörk í sigri liðsins gegn Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 28-19 sigur Erlangen. Handbolti 28.9.2026 19:30
Minden keypti Erling af ÍBV Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni. Handbolti 28.9.2026 10:49
Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í liði Gummersbach höfðu betur gegn liði Bergischer sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur 38-38 sigur Gummersbach. Handbolti 27.9.2026 16:13
Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Baldur Fritz Bjarnason var markahæstur í liði Kristianstad sem vann fimm marka sigur, 33-28, á Önnereds HK í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Handbolti 27.9.2026 15:28
Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Haukur Þrastarson og félagar í Rhein-Neckar Löwen náðu að hefna sín á Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta karla í kvöld. Leikurinn endaði með 30-28 sigri Löwen en Melsungen vann liðið í framlengdum leik fyrr í vikunni. Handbolti 26.9.2026 21:02