Neytendur

Fréttamynd

Fækka heim­sóknum til muna með einni breytingu

Sýslumenn um land allt búast nú við færri heimsóknum eftir breytingu sem leiðir til þess að umsækjendur þurfa ekki að mæta til sýslumanns til að skila inn mynd. Nú er hægt að nota mynd úr vegabréfi í öllum stafrænum umsóknum.

Neytendur

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kostar allt að 580 þúsund

Nýr iPhone tæknirisans Apple kemur í almenna sölu hér á landi á föstudag. Ódýrasta útgáfa símans kostar 360 þúsund krónur og sú dýrasta 580 þúsund. Síminn seldist upp í forsölu.

Neytendur
Fréttamynd

Gapti þegar hún sá heimilis­bók­haldið hjá Röggu nagla

„Ég varð bara mjög afbrýðisöm að heyra af Ragnhildi Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga nagli, sem einhvern veginn er búin að borga niður sextán milljónir króna af íbúðarláninu sínu sem hún tók fyrir tíu árum síðan,“ segir Helga Arnardóttir fjölmiðlakona en Ragnhildur er búsett í Danmörku.

Neytendur
Fréttamynd

Hekla innkallar 2.610 bíla

Volkswagensamstæðan hefur tilkynnt um innköllun á ákveðnum gerðum Volkswagen, Skoda og Audi ökutækja í varúðarskyni vegna mögulegrar tæringar á bolta, sem festir stýrisvél við undirvagn.

Neytendur
Fréttamynd

Lækka verð á þúsund vörum

Verð hefur verið lækkað tímabundið á um þúsund vörum í verslunum Bónuss og Hagkaups. Með þessu vilja Hagar, eigandi verslananna, styðja við samstöðu aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um að ná niður verðbólgu og vöxtum. 

Neytendur
Fréttamynd

Prís neitar að frysta verð en heldur verði á­fram lágu

Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna.

Neytendur
Fréttamynd

Hægst á verð­hækkun á mat­vöru

Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Neytendur
Fréttamynd

Krónan frystir verð til ára­móta

Frá og með deginum í dag frystir Krónan verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin stendur til og með 31. desember 2026.

Neytendur
Fréttamynd

Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“

Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið.

Neytendur
Fréttamynd

Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana.

Neytendur
Fréttamynd

Tíma­mót hjá Heklu: Kveðja Lauga­veginn eftir rúma sex ára­tugi

Bílaumboðinu Heklu hefur verið lokað á Laugaveginum en á mánudag opnar fyrirtækið á nýjum stað í Þorraholti í Garðabænum. Flutningarnir eru mikil tímamót í sögu umboðsins en verslunin hafði staðið í 65 ár við Laugaveg og var þar áður á Hverfisgötu. Nú lýkur því rúmlega 90 ára skeiði sem reksturinn hafði búsetu í Reykjavík og nýir tímar taka við.

Neytendur
Fréttamynd

Fengu ekki bætur þrátt fyrir ó­hreint her­bergi

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur fimm manna hóp ekki eiga rétt á bótum frá ferðaskrifstofu eftir að hótelgistingu þeirra reyndist ábótavant. Hópurinn taldi sig eiga rétt á bótum og sagði hótelíbúðina hafa verið óhreina, ýmis tæki biluð, gat hafi verið á hurðinni og ljósaperur vantaði í mörg ljós.

Neytendur
Fréttamynd

Upp­færsla setti strik í hleðslureikninginn

Eigendur rafbíla lentu margir hverjir í vandræðum með að hlaða bílinn í gærkvöldi og í nótt þar sem fram fór uppfærsla á forriti Orku náttúrunnar. Forstöðumaður segir að notendur eigi að geta tekið gleði sína á ný í dag, um uppfærslu sé að ræða sem gjörbreyti forritinu.

Neytendur
Fréttamynd

Bensín­lítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðslu­minni bíla

Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent. 

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla svefntæki fyrir ung­börn vegna bruna­hættu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur innkallað Love to Dream-svefntæki fyrir ungbörn vegna framleiðslugalla. Notkun vörunnar með tilteknum hleðslutækjum getur valdið því að rafhlaðan ofhitni sem getur leitt til bruna og hættu á alvarlegum brunasárum og eignatjóni. 

Neytendur
Fréttamynd

Jólin gengin í garð í verslunum Bónus

Einhverjir ráku eflaust upp stór augu á dögunum þegar við þeim blöstu staflar af jólapiparkökukössum en þeir fóru að birtast í Bónus-verslunum þann 1. september. Framkvæmdastjórinn segir söluna hafna fyrr en tíðkast hefur en það sé tilkomið vegna mikillar eftirspurnar.

Neytendur
Fréttamynd

Dauð­brá þegar hún beit ó­vænt í gler­brot

Línu Björgu Tryggvadóttur brá verulega í gærkvöldi þegar hún beit óvænt í glerbrot þegar hún var að borða beyglu. Hún segir að ónotatilfinning hafi gripið um sig eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði kyngt glerbroti. Hún hafi verið heillengi að veiða glerbrot úr kjaftinum.

Neytendur
Fréttamynd

Sveru dósirnar snúa aftur

Nú er hægt að kaupa Kristal, Pepsi Max og Appelsín í gömlu sveru dósunum sjö árum eftir breytingu. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir breytinguna þó eingöngu tímabundna og að hoj og slank dósirnar muni snúa aftur innan skamms. 

Neytendur