Tíska og hönnun

Ný lína Kanye West floppar

Rapparinn Kanye West sýndi nýju fatalínuna sína, KW, á tískuvikunni í París. Eins og sjá má á myndunum sátu leikkonurnar Lindsay Lohan og Olsen tvíburarnir á fremsta bekk. Burtséð frá því vakti sýningin í heild sinni lukku að frátöldum fötunum. Fatalína rapparans fær falleinkunn í tískuheiminum. Því er hins vegar fagnað að rapparinn hafi fengið sér dagvinnu við að hanna fatnað á konur. Dæmi hver fyrir sig. Sjá myndir hér.

Tíska og hönnun

Leyndardómsfullur fatahönnuður

Hönnuðurinn Tom Ford sýndi sína aðra línu í Victoria í London fyrir skemmstu. Mikil leynd hvíldi yfir þessari sýningu eins og þeirri fyrstu og fengu aðeins fáir útvaldir að vera viðstaddir hana. Meðal þeirra sem sóttu sýninguna voru nöfn eins og Anna Wintour, Anna Dello Russo, Carine Roitfeld og Glenda Bailey. Carmen Kass, Anja Rubik og Abbey Lee voru á meðal þeirra fyrirsæta sem sýndu fyrir Ford.

Tíska og hönnun

Þjóðararfur er framtíðin

Ragna Fróðadóttir starfar hjá Trend Union í New York, sem leggur línurnar fyrir hönnunarfyrirtæki tvö ár fram í tímann. Hún sýnir íslenska þjóðbúninginn úr amerískum efnum á Norræna tískutvíæringnum.

Tíska og hönnun

Glaðlegt & skært í New York

Tískuvikunni í New York lauk fyrir skemmstu en þar kynntu hönnuðir vorlínur sínar fyrir árið 2012. Gulur, rauður og sítruslitir voru víða áberandi á tískupöllunum og má því búast við að sjá þá liti í fataverslunum næsta vor.

Tíska og hönnun

Meðal fimm fremstu

Friðrik Steinn Friðriksson útskrifaðist sem vöruhönnuður frá LHÍ í vor. Hann braut upp staðlað form fótboltamarksins í útskriftarverkefni sínu og vakti með því athygli virts hönnunartímarits.

Tíska og hönnun

Dömulegt í London

Það var aðeins öðruvísi blær yfir sumartískunni í London en þeirri sem maður sá í New York í seinustu viku. Dömulegur fatnaður þar sem hnésíddin var áberandi í buxum, pilsum og kjólum en með sportlegu ívafi. Það er greinilegt að íþróttalegur blær verður yfir sumartískunni 2012.

Tíska og hönnun

Fær faðmlög frá viðskiptavinum

Vöruhönnuðurinn Sesselja Thorberg rekur ráðgjafarfyrirtækið Fröken Fix, sem sérhæfir sig í innanhúss- og skipulagsráðgjöf fyrir heimilið. Fyrirtækið stofnaði hún í fyrra og síðan þá hefur hún haft í nægu að snúast.

Tíska og hönnun

Katrín Ólína og töframaðurinn Miklimeir

Á morgun opnar ný sýning hönnuðarins Katrínar Ólínu í Spark Design Space að Klapparstíg 33. Á sýningunni er töframaðurinn Miklimeir kynntur til leiks og frásögn af honum útfærð á teppi, en aldagömul hefð er fyrir því að skrásetja sögur með slíkum hætti.

Tíska og hönnun

Skrifstofustóll innblásinn af Golden Gate

Húsgagnaframleiðandinn Herman Miller, sá næststærsti í heiminum, fékk nýlega svissneska iðnhönnuðinn Yves Béhar til að hanna fyrir sig Sayl-skrifstofustólinn. Stóllinn átti að vera afburða fallegur, sterkur, þægilegur og hannaður með fyrsta flokks vinnuvistfræði og virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi.

Tíska og hönnun

Klikkað útsýni

Húsið, sem er í Suður Afríku, er byggt sem sumarhús fyrir einstakling sem býður gestum oftar en ekki í heimsókn. Eigandinn vildi nútímalegt hús þar sem hann gæti notið loftslagsins með opið útsýni úr flestum rýmum hússins. Opin færa íbúum ekki bara útsýni til allra átta heldur skapa náttúrulega loftkælingu þar sem golunni frá hafinu er beint í gegnum allt húsið með verkfræðilegri hugmyndafræði náttúrunnar sem sér til þess að þarna verði aldrei og of heitt eða kalt. Hugmyndin á bakvið þessa hönnun gengur út á það að skapa hús í nánum samskiptum við náttúruna. Þetta er meðal annars er gert með því að nota sundlaugina til þessa að tengja húsið og hafið með sjónrænum áhrifum.

Tíska og hönnun

Kvenleikinn í fyrirrúmi

Meðfylgjandi má sjá haustlínu bandaríska hönnuðarins Prabal Gurung í ár. Hann hefur hannað á konur eins og Michelle Obama, Demi Moore, Zoe Saldana og Oprah Winfrey. Eins og sjá má á myndunum hér er kvenleikinn í fyrirrúmi hjá hönnuðinum og litagleðin að sama skapi. Hér má sjá Sex and The City stjörnuna, Söruh Jessicu Parker, í bleikum Prabal Gurung buxum.

Tíska og hönnun

Úr sófanum beint í sundlaugina

Það er engin kreppa hjá heppnum eiganda þessarar nýbyggðu lúxusvillu í Singapúr. Nútímaleg villa með sundlaug sem flæðir nánast úr garðinum og inn í húsið. Það er því hægt að stinga sér til sunds beint úr sófanum og synda út í garð. Athyglisverð hugmynd og örugglega frábært fyrir fólk í þessu heita loftslagi að geta kælt sig með því að rúlla sér úr sjónvarpssófanum í stofunni og beint ofan í ískalda sundlaug. Spurning er svo hvort klórlyktin úr lauginni sé svo endilega sá stofuilmurinn sem allir myndur vilja kjósa sér.

Tíska og hönnun

Gluggar í lykilhlutverki

Húsið sem staðsett er í Ástralíu var hannað fyrir fjölskyldu sem óskaði eftir einföldu notalegu einbýlishúsi. Fjölskyldan lagði áherslu á að húsið væri hlýlegt, nútímalegt en jafnframt þannig að umhverfið yrði stór hluti af stemningunni. Hönnuðurinn lætur stóra gluggana skapa rómantíska stemmningu í þessu fallega rými. Algengt er í hönnun nútímalegra einbýlishúsa að upplifunin sé sú að rýmið sé opið og flæði um allt húsið eins og sjá má í umræddu húsi.

Tíska og hönnun

Marc Jacobs orðaður við Dior

Enn velta menn því fyrir sér hver verði arftaki Johns Galliano hjá Dior-tískuhúsinu. Líkt og kunnugt er orðið var Galliano vikið frá störfum eftir að hann var kærður fyrir kynþáttahatur.

Tíska og hönnun

Vann eftirsótt verðlaun

Vöruhönnuðurinn Brynjar Sigurðarson vann eftirsótt hönnunarverðlaun í Frakklandi á dögunum. Brynjar fékk verðlaunin fyrir ljós og Húsgögn frá Vopnafirði, línu sem hann gerði fyrir lokaverkefni sitt í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Brynjar tók þátt í sýningu ungra hönnuða í Villa Noailles í franska strandbænum Hyères í suðurhluta Frakklands.

Tíska og hönnun

Mundi frestar bambustískusýningu

Tískuhönnuðurinn Mundi Vondi hefur frestað tískusýningu sem hann ætlaði að halda í Gamla bíói á föstudagskvöld. Ástæðan er sú að hann er upptekinn við búningahönnun fyrir leikritið Axlar-Björn auk þess sem Airwaves-tónlistar-hátíðin er á næsta leiti.

Tíska og hönnun

Sólarljósið nýtt að fullu

Bóndabýli í Michigan í Bandaríkjunum var breytt í hlýlegt heimili þar sem sólarbirtan er nýtt að fullu og sömuleiðis mikil lofthæð hússins. Íbúarnir, fimm manna fjölskylda, lögðu sérstaka áherslu á að bærinn rammaði inn notalega hlýju þar sem sólarljósið fengi að njóta sín. Eins og sjá má á myndunum tókst það svo sannarlega.

Tíska og hönnun

Baksviðs á tískuviku

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs þegar ástralska tískuvikan hófst formlega í Sydney í Ástralíu. Eins og sjá má var stemningin ekki síðri baksviðs en á sýningarpöllunum. Fyrirsæturnar sýndu fatnað eftir fjölda hönnuða.

Tíska og hönnun