Fékk frelsi við hönnun E-label 9. júlí 2012 10:00 Ýr Þrastardóttir hannar nýja línu fyrir E-label. Að því loknu bíður hennar starf við gerð kvikmyndarinnar Noah í leikstjórn Darren Aronofsky. fréttablaðið/valli
Ýr Þrastardóttir fatahönnuður hannar nýja línu fyrir tískumerkið E-label. Línan er væntanleg í haust og samkvæmt hönnuðinum sjálfum er hún ætluð konum sem vilja áberandi og öðruvísi föt. ?Forstöðumenn fyrirtækisins voru mjög hrifin af línunni sem ég sýndi á Reykjavík Fashion Festival í vetur og því var ég fengin til að hanna fyrir merkið. Línan sem ég gerði fyrir E-label er í raun afsprengi minnar línu, nema söluvænlegri,? segir Ýr og bætir við að það sé gaman að fá tækifæri til að hanna undir öðru merki en sínu eigin. ?Í raun eru mjög fáir sem hafa efni á að kaupa flíkur frá YR og ég vil auðvitað að sem flestar konur geti klæðst fötum eftir mig. Ég fékk mikið frelsi við hönnunina fyrir E-label og merkið hefur breyst mikið frá því það var stofnað. Við erum meðal annars að skoða aðra framleiðendur í sameiningu því það er ýmislegt sem ekki var hægt að framleiða í gömlu verksmiðjunni.? Auk þess að hanna fyrir E-label vinnur Ýr að nýrri línu undir eigin nafni og er sú væntanleg í haust. ?Nýja línan verður talsvert ólík þeim fyrri. Merkið mitt er meira fyrir sköpunargleðina en gróða. Markaðurinn fyrir vandaða hönnunarvöru er frekar lítill hér heima og margir að berjast um bitann. Mér hefur verið boðið að selja í hinum ýmsu búðum bæði hér, í New York og í Evrópu en alltaf á þeim forsendum að ég beri framleiðslukostnaðinn. Ég er ekki í aðstöðu til að taka þannig áhættu.? Innt eftir því hvað taki við að þessu tvennu loknu segist hún hafa fengið einstakt atvinnutækifæri við gerð kvikmyndarinnar Noah í leikstjórn Darren Aronofsky. ?Ég er að fara um borð í Örkina hans Nóa, risa Hollywood verkefni með framúrskarandi leikstjóra. Þar verð ég að aðstoða Margréti Einarsdóttur búningahönnuð,? segir hún að lokum. Línan er væntanleg í verslun E-label við Laugaveg 32 í haust ásamt öðrum vörum. -sm
RFF Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira