Viðskipti erlent
221 222 223 224 225 226 227 228 229 … 334 ›
Vændishneyksli skekur Wall Street Lögreglan í New York hefur upprætt vændishring sem sérhæfði sig í að veita sterkefnuðum fjármálamönnum á Wall Street þjónustu sína. Viðskipti erlent 21.7.2011 09:08
Líkur á samkomulagi um skuldaþak aukast Líkur á því að samkomulag náist um skuldaþak Bandaríkjanna hafa aukist töluvert eftir að Barack Obama Bandaríkjaforseti ákvað að gefa eftir í deilum sínum við bandaríska þingmenn um málið. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:22
Merkel og Sarkozy ná samkomulagi fyrir leiðtogafund Angela Merkel kanslari Þýskalands og Nicolas Sarkozy forseti Frakklands hafa náð samkomulagi um hvernig eigi að taka á skuldakreppunni á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:17
Ræða um aukna sölu olíu úr neyðarbirgðum Umræða er hafin um hvort Alþjóðlega orkumálastofnunin eigi að setja meira af neyðarbirgðum sínum af olíu á markaðinn til að reyna að halda verðinu í skefjum. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:00
Nýr iPhone kynntur í september? Apple-aðdáendur bíða margir hverjir gríðarlegar spenntir eftir fimmtu útgáfunni iPhone símanum. Nú hafa netverjar fullyrt að nýi síminn verður kynntur til leiks í september. Áður var því haldið fram að hann kæmi í byrjun ágúst. Talið er víst að í símanum verði ný uppfærsla á stýrikerfinu, iOS 5, en iPhone 4 er iOS 4 stýrikerfið. Viðskipti erlent 20.7.2011 16:03
Vextir á grískum skuldabréfum yfir 40% Ávöxtunarkrafan á grískum ríkisskuldabréfum til tveggja ára fór yfir 40% í morgun. Svo há krafa hefur ekki áður sést á grískum skuldabréfum. Þegar leið á morguninn lækkaði þessi krafa aðeins og stendur nú í kringum 38%. Viðskipti erlent 20.7.2011 10:11
Uppgjör Goldman Sachs veldur vonbrigðum Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs skilaði mun minni hagnaði á öðrum ársfjórðungi ársins en spáð hafði verið. Hagnaðurinn nam rétt rúmlega 1 milljarði dollara eða 185 sent á hlut en spár gerðu ráð fyrir að hagnaðurinn yrði 230 sent á hlut. Viðskipti erlent 20.7.2011 09:39
Svört vinna kostar danska skattinn tugi milljarða Ný rannsókn sýnir að svört vinna á vegum erlendra byggingaverktaka í Danmörku er talin kosta danska skattinn tugi milljarða króna á hverju ári. Viðskipti erlent 20.7.2011 07:47
Methagnaður hjá Apple Bandaríski tölvurisinn Apple skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 7,3 milljörðum dollara eða um 860 milljörðum kr. Jókst hagnaðurinn um 125% frá sama tímabili í fyrra. Viðskipti erlent 20.7.2011 07:21
Óvissa í efnahagsmálum beggja vegna Atlantshafs Ótti hefur gripið um sig beggja vegna Atlantsála um að ný fjármálakreppa sé í aðsigi. Í Evrópu er skuldafarg að sliga nokkur ríki evrusvæðisins og björgunaraðgerðir hinna ESB-ríkjanna virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Í Bandaríkjunum er vandinn af öðrum toga en þar er komið upp pólitískt þrátefli sem gæti, ef allt fer á versta veg, valdið greiðslufalli bandaríska ríkisins. Viðskipti erlent 20.7.2011 06:00
Schmeichel betri í markinu en á markaðinum Hinn þekkti danski markmaður Peter Schmeichel þénaði milljarða á ferli sínum, einkum hjá enska félaginu Manchester United. Þeir milljarðar eru að stórum hluta að gufa upp því fjárfestingar markmannsins hafa gengið einstaklega illa í gegnum tíðina. Schmeichel reyndist mun betri í markinu en á markaðinum. Viðskipti erlent 19.7.2011 10:51
Vopnaðir vaktmenn komu í veg fyrir sjórán Vopnaðir vaktmenn um borð í danska gasflutningaskipinu Stella Kosan komu í veg fyrir sjórán í gærdag. Viðskipti erlent 19.7.2011 09:43
Norðmenn töpuðu stórt á að selja gullforða sinn Seðlabanki Noregs hefur tapað miklum fjárhæðum á því að hafa selt megnið af gullforða sínum árið 2004. Viðskipti erlent 19.7.2011 09:36
Enn hækkar verð á gulli Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og var í morgun komið í tæpa 1.605 dollara á únsuna. Verðið fór yfir 1.600 dollara í fyrsta sinn í sögunni í gærdag. Viðskipti erlent 19.7.2011 08:44
Cisco segir yfir 11.000 starfsmönnum upp Tölvufyrirtækið Cisco, sem er umsvifamesti framleiðandi á netbúnaði í heiminum, hefur tilkynnt að það muni segja upp yfir 11.000 manns eða um 15% af öllum starfsmönnum sínum. Viðskipti erlent 19.7.2011 07:44
Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir Dani Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir nú dönsk tölvufyrirtæki. Samkvæmt frétt um málið í Jyllandsposten er talið að það vanti hátt í 4.000 slíka til starfa í Danmörku. Viðskipti erlent 19.7.2011 07:40
Verð á gulli hækkar enn Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka. Verðið fór í 1.600 dollara á únsuna í framvirkum viðskiptum í gærmorgun og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 19.7.2011 00:00
Merkel útilokar ekki skuldaafskriftir Angela Merkel, Þýskalandskanslari, segir nú allt reynt til að koma í veg fyrir að fella þurfi niður eitthvað af skuldum gríska ríkisins. Hún útilokar þó ekki lengur að til þess þurfi að koma. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að standa stíf á því að Grikkir þurfi að greiða allar skuldirnar, en segir nú kannað hvort einhverjir lánardrottnar Grikkja bjóðist til að fella niður eitthvað af skuldum þeirra. Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, segir að Merkel sé með einstrengingslegri afstöðu sinni að eyðileggja það Evrópusamstarf, sem hann barðist alla tíð fyrir. Viðskipti erlent 18.7.2011 20:30
Skerst í odda milli Facebook og Google í netstríðinu mikla Tæknifyrirtækin Google og Facebook hafa undanfarið háð hljóðlátt stríð sín á milli um yfirráð í netheimum. Átökin fara nú harðnandi með tilkomu Google+, nýs tengslavefs Google, sem beint er gegn Facebook. Viðskipti erlent 18.7.2011 20:30
Leggur til að skuldaþakið verði afnumið Matsfyrirtækið Moody´s leggur til að Bandaríkjamenn afnemi skuldaþak sitt. Slíkt myndi draga úr óvissunni hjá þeim sem fjárfesta í bandarískum skuldabréfum. Viðskipti erlent 18.7.2011 10:04
Harry Potter sló met og halaði inn 20 milljörðum Síðasta myndin um galdrastrákinn Harry Potter sló öll met í miðasölu um helgina en talið er að hún hafi halað inn 168 milljónir bandaríkjadollara, eða tæplega 20 milljarðra íslenskra króna. Það er það lang mesta sem hefur komið í kassann á frumsýningarhelgi bíómyndar en fyrir helgina var Batmanmyndin Dark Knight í fyrsta sæti með 158 milljónir dollara. Viðskipti erlent 18.7.2011 09:54
Heimsmarkaðsverð á gulli komi í 1.600 dollara Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að slá met. Verðið fór í 1.600 dollara á únsuna í framvirkum viðskiptum í morgun og hefur verðið aldrei verið hærra í sögunni. Viðskipti erlent 18.7.2011 09:00
Rothschild aðstoðar Walker við kaupin á Iceland Malcolm Walker forstjóri og stofnandi Iceland Foods verslunarkeðjunnar hefur ráðið Rothschild bankann til að aðstoða sig við að kaupa keðjuna af skilanefnd Landsbankans Viðskipti erlent 18.7.2011 07:25
Spá mikilli fjölgun borgarbúa í Danmörku Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá dönsku hagstofunnar mun fólki í borgum landsins fjölga gífurlega á næstu árum á kostnað landsbyggðarinnar. Viðskipti erlent 18.7.2011 07:23
Skuldir Grikklands á mörkum þess að vera viðráðanlegar Skuldir Grikklands eru viðráðanlegar en samt alveg á mörkum þess að vera það, segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Verið er að veita ríkissjóði um 110 milljarða evra björgunarpakka en fjárfestar eru samt hræddir um að ríkið lendi í greiðsluþroti. Viðskipti erlent 17.7.2011 16:15
Google metið á 22 þúsund milljarða Hlutabréf í Google snarhækkuðu á föstudaginn þegar ársfjórðungsuppgjör fyrirtækisins var kynnt. Viðskipti erlent 17.7.2011 15:54
Miðar á Harry Potter seldir fyrir milljarða Nýja myndin um Harry Potter þénaði metfé fyrsta daginn sem hún var sýnd í amerískum kvikmyndahúsum. Dreifingafyrirtækið Warner Bros segir að kvikmyndin hafi halað inn 92 milljónum bandaríkjadala, tæpum 11 milljörðum íslenskra króna. Þetta er 20 milljónum dölum, eða 2,3 milljörðum, meira en The Twilight Saga: New Moon halaði inn fyrir tveimur árum. Viðskipti erlent 16.7.2011 17:44
Strauss-Kahn slakar á undir dönskum fiðluleik Fiðlutónleikar með danska fiðluleikaranum Nikolaj Znaider gáfu Dominque Strauss-Kahn fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tækifæri til að slaka aðeins á í annars alvarlegri stöðu sinni. Viðskipti erlent 16.7.2011 15:12
Álagsprófið sýnir 13.000 milljarða gat Álagspróf fjármálaeftirlits Evrópu á 90 banka innan ESB sýnir 80 milljarða evra eða rúmlega 13.000 milljarða kr. gat í bókhaldi þeirra. Ef réttar forsendur hefðu verið notaðar í prófinu hefðu 25 topp bankar í Evrópu fallið á því auk þeirra 8 sem náðu ekki prófinu. Viðskipti erlent 16.7.2011 14:26
Átta bankar féllu á álagsprófi Fjármálaeftirlit Evrópusambandsins segir að átta af 91 banka hafi fallið á álagsprófi, sem var gert til að komast að því hvernig þeim myndi reiða af í nýrri kreppu. Sextán bankar að auki rétt skriðu í gegnum prófið. Viðskipti erlent 16.7.2011 06:56