
Viðskipti

Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar
Hagfræðideild Landsbankans segir það hugsanlegt að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli í október eða nóvember. Það fari allt eftir því hvenær verðbólga og verðbólguvæntingar benda til frekari hjöðnunar.

Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is
Samgöngustofa hefur tengst stafrænu pósthólfi á Ísland.is og nýtir nú pósthólfið til að minna eigendur ökutækja á skoðunartíma ökutækisins. Í tilkynningu frá Samgöngustofu segir að með því að tengjast pósthólfinu voni þau að þeim gefist kostur á aukinni skilvirkni og betri þjónustu við viðskiptavini.

Alvotech reiknar með tíföldum tekjum
Alvotech reiknar með að heildartekjur annars ársfjórðungs verði á bilinu 196 til 201 milljón dala. Áætlaðar heildartekjur á fyrri helmingi ársins eru þá 233 til 238 milljónir dala sem eru um tífaldar tekjur sama tímabils í fyrra.

Áhersla á öryggi viðskiptavina
Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa fyrir umferðarátaki í sumar og er Bílaleiga Akureyrar einn þeirra samstarfsaðila sem taka þátt í átakinu.

Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup
Fanneyju Friðriksdóttur má með réttu kalla hagsýna húsmóður eftir að hafa helmingað kostnað við matarkaup á einum mánuði. Sjónvarpsþættirnir Viltu finna milljón voru innblástur til Fanneyjar sem notaðist við snjallverslun Krónunnar til að kaupa engan óþarfa.

Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát
Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum.

Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar
Útflutningur á eldislaxi hefur undanfarin fimm ár skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum sem fluttar eru frá Íslandi. Þorskurinn trónir þar á toppnum, en heilt á litið hefur loðnan skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum á þessari öld. Síðustu fimm ár hefur laxinn þó tekið fram úr loðnunni.

Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina
Um helgina verður fyrstu gestunum hleypt ofan í nýjan baðstað í Kerlingarfjöllum. Í böðunum eru meðal annars heitar setlaugar, kaldur pottur og glæsileg sauna með útsýni yfir fjallgarðinn.

Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa
Ölgerðin tilkynnti í gær að staða aðstoðarforstjóra hafi verið lögð niður og Gunnari B. Sigurgeirssyni, sem gegnt hefur þeirri stöðu, hafi verið sagt upp störfum. Daginn áður birti félagið ársfjórðungsuppgjör og lækkaði afkomuspá.

Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir
Arion banki hefur gert sátt við Seðlabanka Íslands og verður gert að greiða sekt að fjárhæð 585 milljóna króna ásamt því að skuldbinda sig til úrbætur vegna brota gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Rannveig hættir í Seðlabankanum
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hefur óskað eftir því við forsætisráðherra að láta af störfum í lok ársins þegar fimm ára skipunartíma hennar lýkur.

Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja
Ný íslensk hugbúnaðarlausn sem kallast GreenSenze gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að greina og fylgjast með kolefnisspori í innkaupum. Lausnin er hönnuð og búin til af KPMG og Origo. Í tilkynningu segir að algengt sé að íslensk fyrirtæki geti aðeins gert grein fyrir 30 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda í sinni starfsemi.

Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir verulega sem allra fyrst. Seðlabankinn segir að ekki sé til skoðunar að flýta næstu vaxtaákvörðun.

Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði
Páll Pálsson fasteignasali segir enga dramatík á fasteignamarkaði eins og er. Það sé um 30 prósent meiri sala en í fyrra, á sama tíma, en síðasta ár hafi verið lélegt. Hann segir að það hafi orðið um 8,4 prósenta hækkun á fasteignaverði síðasta árið en að stór hluti hækkunarinnar sé tilkomin á þessu ári.

Betra en ekki að viðurkenna mistökin
Við erum öll að leggja okkur fram við að gera ekki mistök. Svo mikið reyndar, að oftast áttum við okkur ekki einu sinni á því að við séum að gera mistök. Til dæmis að okkur yfirsjáist eitthvað í vinnunni. Gott dæmi um eitthvað sem við föttum ekki fyrr en eftir á og þá jafnvel vegna þess að einhver annar bendir á það.

Ýmir Örn fer frá N1
Ýmir Örn Finnbogason lætur af störfum sem framkvæmdastjóri N1 í dag. Hann mun jafnframt stíga úr framkvæmdastjórn Festis.

Ómar fær fyrir ferðina
Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta.

Verðbólga nú 5,8 prósent
Verðbólga mælist nú 5,8 prósent miðað við vísitölu neysluverðs síðustu tólf mánuði. Hún var 6,2 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga var mest í febrúar 2023 þegar hún var 10,3 prósent. Frá þessu er greint í nýrri tilkynningu frá Hagstofunni.

Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því
„Það eru mörg fyrirtæki að gera geggjaða hluti nú þegar, án þess endilega að átta sig á því að margt af því telst nú þegar til sjálfbærninnar,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu og gestgjafi í Sjálfbærniskólanum sem hefst í haust í Opna háskólanum, Háskóla Reykjavíkur.

Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds
Þýska flugsamsteypan Lufthansa, eitt stærsta flugfélag heims, hefur ákveðið að leggja sérstakt umhverfisgjald á selda flugmiða félagsins innan Evrópu. Þetta er gert til að mæta auknum kostnaði sem kemur til vegna umhverfismarkmiða Evrópusambandsins.

Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga
Neytendastofa hefur sektað sex fyrirtæki fyrir brot gegn auglýsingabanni á nikotínvörum. Fyrirtækin sex eru Djákninn, FVN, Gryfjan, Innflutningur og dreifing, Nicopods og SH Import. Sektirnar eru frá 100 þúsund krónum að 400 þúsund.

Icelandair kaupir Airbus flughermi
Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu. Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training.

Oddur tekur við stjórnartaumunum hjá Eldum rétt
Oddur Örnólfsson mun taka við stöðu framkvæmdastjóra Eldum rétt frá og með 1.júlí næstkomandi. Oddur, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2015, tekur við keflinu af Val Hermannssyni en Valur er einn af stofnendum Eldum rétt.

Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins
Hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi verða nú fyrirferðarmikil á vegum landsins enda frábær leið til að elta góða veðrið í sumarfríinu. Margt þarf að hafa í huga þegar ekið er með eftirvagna og gæta fyllsta öryggis.

Í maí voru 5800 atvinnulausir
Í maí á þessu ári voru 5800 einstaklingar atvinnulausir. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra einstaklinga var 2,5 prósent, hlutfall starfandi var áttatíu prósent og atvinnuþátttaka 82 prósent.

Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn
„Við finnum það að þetta nýtist vissulega vel í þessa umræðu um Ísland. Það er búin að vera mjög viðkvæm umræða um Ísland og eldvirknina. Það birtust fjölmargar greinar um Ísland í erlendum fjölmiðlum með röngum upplýsingum og fólk varð smeykt að ferðast til Íslands.“

Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki
„Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust.

Kjarnorkubréf Einsteins til sölu
Bréf sem Albert Einstein skrifaði til Franklíns D. Roosevelt Bandaríkjaforseta árið 1939 verður falt á uppboði. Í bréfinu hvatti Einstein forsetann til að hefja þróun á kjarnorkusprengjum þar sem að Þýskaland nasismans væri farið að gera það.

Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni
Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið líta mál þar sem kolsýrutæki sprakk með þeim afleiðingum að neytandi hlaut skaða á hendi alvarlegum augum. Hann segist hafa ítrekað starfsreglur og sent tækið til útlanda í skoðun hjá sérfræðingum.

Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024
Viðskiptafræðingur ársins 2024 er Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar og formaður Viðskiptaráðs Íslands. Félag viðskipta- og hagfræðinga (FVH) veitti honum þennan titil fyrir framúrskarandi störf sín og þátttöku í íslensku viðskiptalífi.