Viðskipti
83 84 85 86 87 88 89 90 91 … 334 ›
Bjóða almenningi á þvernorrænt hakkaþon um framtíð hafsvæða Íslenski sjávarklasinn skipuleggur „hakkaþon“ næstu daga þar sem einstaklingar hvaðanæva af Norðurlöndum koma saman til að þróa sjálfbæra leið til að deila hafsvæðum. Að sögn framkvæmdastjóra Sjávarklasans kann að vera stutt í að stjórnvöld þurfi að meta hvernig svæðum á hafinu verði ráðstafað. Almenningi er boðið á föstudag kl. 17:00 að berja afrakstur hakkaþonsins augum. Viðskipti innlent 4.10.2023 06:46
Ráðherra fékk fyrsta gjafakort sinnar tegundar í heimunum Kringlan er fyrsta verslunarmiðstöð í heiminum til að gera viðskiptavinum kleift að vera með eitt stafrænt gjafakort fyrir alla verslunar – og þjónustuaðila Kringlunnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók formlega við fyrsta gjafakorti Kringlunnar í dag og verslaði með því í snyrtivörudeild Hagkaupa. Viðskipti innlent 3.10.2023 21:32
Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23
Kaupmáttur dróst saman í fyrsta skipti í ellefu ár Kaupmáttur á mann dróst saman um 0,1 prósent árið 2022 og á öðrum ársfjórðungi þesssa árs dróst hann saman um 5,2 prósent. Viðskipti innlent 3.10.2023 17:40
Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxinum stafa hætta af laxeldi Fjórtán prósent landsmanna eru jákvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallup um viðhorf til laxeldis í opnum sjókvíum. Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxastofninum stafa hætta af laxeldi í opnum sjókvíum. Níu prósent telja að frekar lítil hætta eða allt að engin stafi að villta íslenska laxinum. Viðskipti innlent 3.10.2023 14:45
Fimmtán hundruð krónur fyrir Facebook án auglýsinga Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, íhuga að bjóða notendum Instagram og Facebook í Evrópu að borga tæplega fimmtán hundruð krónur fyrir áskrift. Í staðinn myndi fyrirtækið ekki nota persónuupplýsingar samfélagsmiðlanotenda til að sýna notendunum auglýsingar. Viðskipti erlent 3.10.2023 14:08
Síðasta veiðiferð Múlabergsins og tólf skipverjum sagt upp Togarinn Múlabergið á Siglufirði hefur farið í sína síðustu veiðiferð. Upp kom leki í ferðinni sem talið er of kostnaðarsamt að gera við. Tólf skipverjar hafa fengið uppsagnarbréf frá Ísfélaginu sem gerir út togarann. Viðskipti innlent 3.10.2023 13:46
Milljarðar í óþarfa kostnað fyrir neytendur Tryggja þarf aukið eftirlit á bankamarkaði til að tryggja aukna samkeppni. Þetta kom fram í morgun á málþingi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna. Formaður Neytendasamtakanna segir innlenda greiðslumiðlun mikilvæga í þessu tilliti. Neytendur 3.10.2023 13:07
Haukur Örn og Ingvar Smári opna lögmannsstofu FIRMA lögmenn hafa tekið til starfa í Reykjavík. Eigendur lögmannsstofunnar eru Haukur Örn Birgisson hrl. og Ingvar Smári Birgisson, lögmaður, en þeir störfuðu áður saman á Íslensku lögfræðistofunni. FIRMA lögmenn veita alhliða lögfræðiþjónustu með sérhæfingu í þjónustu við atvinnulífið. Viðskipti innlent 3.10.2023 10:10
Bein útsending: Tengsl á tímum Teams Stjórnvísi hefur hugtakið tengsl sem þema og rauðan þráð gegnum starfsárið 2023-2024. Þemað var ákveðið af nýkjörinni stjórn félagsins í nánum takti við óskir stjórna faghópa félagsins um að unnið verði betur í tengslamyndun í félaginu á tímum fjarvinnu, rafrænna fundahalda og streymis frá viðburðum. Viðskipti innlent 3.10.2023 08:15
Bein útsending: Íslenska bankakerfið - okur eða almannahagur? ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna sem stendur milli klukkan 8:30 og 10:30. Viðskipti innlent 3.10.2023 08:00
Pjúra lúxus í öllum atriðum Sænski bílaframleiðandinn Polestar ætlar sér stóra hluti í rafbílavæðingu heimsbyggðarinnar og vill flýta fyrir breytingum til sjálfbærra ferðamáta með hágæða hönnun og tækni. Fyrirtækið stefnir á að vera með fimm tegundir rafbíla í vörulínu sinni árið 2026. Samstarf 2.10.2023 14:49
Ráðin framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels Eva Guðrún Torfadóttir verkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels og kemur á sama tíma inn í framkvæmdastjórn Festi hf. Viðskipti innlent 2.10.2023 10:53
María Rut verður framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar Stjórn Tónlistarmiðstöðvar Íslands hefur ráðið Maríu Rut Reynisdóttur, skrifstofustjóra menningarmála hjá Reykjavíkurborg sem framkvæmdastjóra nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarmiðstöð. Viðskipti innlent 2.10.2023 10:51
Tekur við ritstjórn Lifðu núna Steingerður Steinarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Vikunnar, hefur tekið við stöðu ritstjóra Lifðu núna. Hún tók við stöðunni um mánaðamótin. Viðskipti innlent 2.10.2023 10:23
71 sagt upp í fjórum hópuppsögnum Fjórar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum septembermánuði þar sem 71 starfsmönnum var sagt upp störfum. Viðskipti innlent 2.10.2023 09:52
Töldu sig svikna eftir milljarða sölu og stefndu Helga Helgi Hermannsson, stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, var í sumar dæmdur til að greiða fjórum hönnuðum samanlagt 67 milljónir króna. Starfsmennirnir stefndu Helga sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir höfðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í. Viðskipti innlent 2.10.2023 09:01
Ekki lengur hægt að kaupa bensín á Litlu kaffistofunni Hætt hefur verið að selja bensín á Litlu kaffistofunni á Sandskeiði. Rúmlega 63 ára sögu bensínsölu þar er því lokið. Neytendur 2.10.2023 08:13
Lilja ráðin deildarstjóri Auðlindastýringar HS Orku Lilja Magnúsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Auðlindastýringar HS Orku. Hún var áður yfirforðafræðingur HS Orku og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 2020. Viðskipti innlent 2.10.2023 07:40
„En hvers vegna þurfum við að vera feimin?“ „Það er ekkert óalgengt að fólk sé með fyrirlestur hér og þar og segi frá því sem vinnustaðurinn er að gera eða takast á við. En þegar kemur að því að bjóða fólki „heim“ er eins og við verðum eitthvað feimnari,“ segir Margrét Tryggvadóttir skemmtana- og forstjóri Nova. Atvinnulíf 2.10.2023 07:00
Samrunaviðræður Eikar og Reita í strand Fasteignafélögin Eik og Reitir hafa hætt viðræðum um mögulegan samruna fasteignafélaganna tveggja. Viðskipti innlent 1.10.2023 19:21
Segja heita síma Apple ekki skrifast á nýja hönnun Forsvarsmenn Apple segja það ekki nýrri hönnun iPhone 15 að kenna að símarnir eigi það til að hitna, heldur sé að mestu um hugbúnaðargalla að ræða. Til stendur að laga þennan galla í nýrri uppfærslu fyrir iOS 17, stýrikerfi Apple. Viðskipti innlent 1.10.2023 12:15
Vinkonurnar með nammipoka að horfa á Santa Barbara og Leiðarljós Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands og stjórnarkona í Vísindagörðum HÍ, rifjar upp þá gósentíð sem hófst þegar Dallas var ljósið í myrkrinu og sápuóperur eins og Santa Barbara og Leiðarljós hófu sýningar í íslensku sjónvarpi. Atvinnulíf 30.9.2023 10:00
Spá 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%. Viðskipti innlent 29.9.2023 16:08
Móðurfélag Arnarlax mætt First North-markaðinn Icelandic Salmon AS, móðurfélag laxeldisfyrirtækisins Arnarlax, var skráð á Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Félagið verður með auðkennið ISLAX. Viðskipti innlent 29.9.2023 14:56
„Ég þoli ekki að bíða eftir þóknanlegum viðbrögðum frá einhverjum yfirmanni“ „Ég þarf að vera hluti af lausninni fyrir íslenskt samfélag, en ekki vandamálið,“ segir Snorri Másson fjölmiðlamaður, býsna brattur. Viðskipti innlent 29.9.2023 10:48
Tap Isavia var 221 milljón á fyrri árshelmingi Heildarafkoma Isavia á fyrri árshelmingi var neikvæð um 221 milljón króna samanborið við jákvæða afkomu upp á 501 milljón króna fyrir sama tímabil í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 28.9.2023 19:57
Sjá fram á 550 milljóna króna hagnað á þriðja ársfjórðungi Flugfélagið Play sér fram á að skila hagnaði sem nemur um 550 milljónum króna, eða því sem nemur fjórum milljónum Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu félagsins. Viðskipti innlent 28.9.2023 18:51
Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar heimiluð Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar án skilyrða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ljósleiðaranum. Viðskipti innlent 28.9.2023 18:15
Vivaldi bítur í Eplið Vafrinn Vivaldi er nú aðgengilegur notendum snjalltækja Apple. Búið er að gera útgáfu af vafranum fyrir iOS stýrikerfið sem hægt er að nálgast í App Store. Viðskipti innlent 28.9.2023 15:13