Viðskipti innlent

Nýr kok­teil­bar opnaður á Hverfis­götu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“

Kokteilbarinn Resident Room er opnaður í dag, miðvikudaginn 8. júlí, dyr sínar að Hverfisgötu 26 þar sem veitingastaðurinn Matbar var áður til húsa. Það eru útvarpsþáttastjórnandinn Daníel Jón Baróns sem starfar á Rás 2 og barþjónninn Ásgeir Már Björnsson, sem er nýfluttur aftur heim eftir að hafa starfað lengi erlendis, sem stýra barnum en þeir ætla sér að „hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni“.

Viðskipti innlent

Fá AA- í ein­kunn

Scope Ratings, evrópskt lánhæfismatsfyrirtæki, hefur veitt ríkissjóði Íslands lánhæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt. Horfurnar eru taldar stöðugar.

Viðskipti innlent

Neytendastofa tæklar bílastæðamálin

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum.  Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 

Viðskipti innlent

Loka Te og kaffi á Suður­lands­braut

Loka á kaffihúsi Te og kaffi á Suðurlandsbraut um miðjan júlímánuð. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir reksturinn aldrei hafa náð þeim hæðum sem þau hafi viljað og því fari þau nú þegar leigusamningur rennur út.

Viðskipti innlent

Of snemmt að draga fram heyk­víslar

„Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 pró­sent, þá er það náttúru­lega alveg galið,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­takanna um full­yrðingar Sam­keppnis­eftir­litsins sem fram komu í um­ræðu­skjali um stöðu elds­neytis­markaðarins. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrir­tækja­sam­stæðurnar á dag­vöru- og elds­neytis­markaði sýni betur hvar arð­semi þeirra verður til.

Viðskipti innlent

Gul við­vörun hjá öllum og fjöru­tíu pró­sent á rauðu

„Það er gul viðvörun á öllum en kannski svona 30 til 40 prósent eru á rauðu.“ Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) aðspurður hversu mörg veitingahús á höfuðborgarsvæðinu hann telji vera í hættu. Verðlagshækkanir, há leiga, síðustu kjarasamningar og lán vegna heimsfaraldursins séu meðal þess sem plagi veitingafólk.

Viðskipti innlent

Nýr fram­kvæmda­stjóri Kalon

Aldís Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Kalon og hefur þegar hafið störf. Kalon sameinar heildsölu Icepharma á sviði heilsu og íþrótta og fer með umboð fyrir fjölda þekktra vörumerkja, þar á meðal Nike, NOW, MUNA, Speedo, Curaprox og Sonett.

Viðskipti innlent

Áfengisgjaldið tvö­falt hærra en veiðigjaldið en varla rætt

Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn eigenda Röntgens, Skreiðar og Bullseye í Austurbæjarbíói, segir áfengisgjöldin komin langt úr hófi og eiga stóran þátt í háu verði á börum.„Þessi áfengisskattur er kominn út í algjört rugl,“ segir Steinþór í hlaðvarpinu Eftirvaktinni, þar sem fjallað er um veitinga- og skemmtanabransann á Íslandi.

Viðskipti innlent

„Maður er reiður og sár“

Páll Pálsson fasteignasali má ekki reka samnefnda fasteignasölu samkvæmt lögbanni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Páll hefur rekið Pálsson fasteignasölu í gegnum félagið PP Fasteignasala ehf. frá árinu 2022 og er með sautján starfsmenn. Í október var nýtt félag stofnað undir sama nafni og í kjölfarið farið fram á að Páll myndi hætta notkun eftirnafnsins.

Viðskipti innlent

Verð­hækkanirnar von­brigði

Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda.

Viðskipti innlent