Viðskipti innlent

Nýtt gjald hefur á­hrif á ís­lenska selj­endur

Agnar Már Másson skrifar
Það mun kosta meira að senda vörur til ESB. Mynd tengist frétt ekki með beinum hætti.
Það mun kosta meira að senda vörur til ESB. Mynd tengist frétt ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Íslensk fyrirtæki sem senda vörur til Evrópusambandsins munu frá og með morgundeginum, 1. nóvember, þurfa að greiða tollvinnslugjald fyrir hverja vörutegund í sendingu til ESB.

Á morgun, sunnudaginn 1. nóvember, tekur ný reglugerð Evrópusambandsins gildi sem kveður á um tveggja evra gjald á allar vörutegundir sem koma frá fyrirtækjum utan ESB.

Gjaldið, sem jafngildir 272 krónum, leggst einnig á vörur sem koma frá EES-löndum og hefur áhrif á íslensk fyrirtæki sem senda vörur til Evrópusambandsins.

Íslandspóstur vakti athygli á gjaldinu fyrr í vikunni. Þar segir að tollvinnslugjaldið sé gjald sem tollurinn í móttökulandi fær.

Þetta gjald bætist við þriggja evra bráðabirgðagjald (408 krónur) sem tók gildi 1. júlí og lagðist á allar smærri vörusendingar að verðmæti allt að 150 evrum. Gjaldið sem tók gildi í sumar var bráðabirgðalausn til ársins 2028 þar sem unnið er að breytingum á tollakerfi ESB, en innflutningur á smápökkum í ESB hefur dregist saman um 60 prósent frá því að gjaldið tók gildi í byrjun júlí 2026.

Nýja gjaldið er aftur á móti varanlegt og óháð kostnaði vörunnar. Gjöldunum er ætlað að stemma stigu við smápakkainnflutningi frá Kína Einnig á gjaldið að standa undir kostnaði við tollafgreiðslu á vörunum.

Íbúar ESB fluttu inn tæplega sex milljarða smávara í fyrra og þar af komu rúm 90 prósent frá Kína, einkum frá sölusíðunum Temu og Shein að því er fram kemur í umfjöllun Euro News.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur reynt að stemma stigu við innflutningi frá Kína þar sem seljendur innan Evrópusambandsins eiga erfitt með að keppa við verð kínverskra samkeppnisaðila.

Í frétt írska ríkisútvarpsins kemur fram að tveggja evra gjald sé lagt á fyrir hverja vörutegund í sendingunni. Til dæmis leggst gjaldið aðeins einu sinni á sendingu sem inniheldur tíu stuttermaboli en tvisvar á sendingu með tíu stuttermabolum og tveimur húfum.

Evrópusambandið hefur sagt að gjaldið muni ekki leggjast á neytendur í sambandinu, heldur greiði seljendur gjaldið, þótt mögulegt sé fyrir þá að velta kostnaðinum í verðlagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×