Hærri álagning á minnihlutahópa 6. ágúst 2004 00:01
Ný könnun leiðir í ljós að Honda í Bandaríkjunum mismunaði svörtu fólki og fólki af suðrænum uppruna á árunum 1999 - 2003 við bílakaup. Könnun þessi var framkvæmd af viðskiptaprófessornum Mark A. Cohen í Vanderbilt-háskólanum. Hann komst að þessum niðurstöðum eftir að hafa skoðað 383.652 lánaskýrslur Honda-viðskiptavina um öll Bandaríkin. Í niðurstöðum Cohen kemur fram að á lánum sem svart fólk tók var meðalálagning um áttatíu þúsund íslenskra króna um leið og meðalálagning á lánum sem hvítt fólk tók sér var um fimmtíu þúsund krónur. Meðalálagning á lánum sem fólk af suðrænu bergi tók var svo aftur rúmlega sextíu þúsund krónur. Að sögn Cohen var þetta fólk allt með svipaða skuldastöðu. Honda hafnar þessum ásökunum og segir enga mismunun eiga sér stað í bílaumboðum þeirra. Þó er staðreynd að lánaálag er ekki fastbundið í Bandaríkjunum og geta bílaumboð bætt allt að sjötíu þúsund krónum ofan á lánin, sem er þó hærra en meðalálagning Honda á svart fólk. Í febrúar á þessu ári samdi General Motors, annar stærsti bílaframleiðandi Bandaríkjanna, um sex ára gamla kröfu þess efnis að fyrirtækið hafi leyft sölumönnum að setja alltof háa lánaálagningu á svart fólk og fólk af suðrænu bergi brotnu.
Bílar Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Lífið Fleiri fréttir Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira