Menning

Tíma­mót hjá Árna Má

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Myndlistarmaðurinn Árni Már opnar nýja vinnustofu í Hafnarstræti. Hér er hann ásamt syni sínum Una.
Myndlistarmaðurinn Árni Már opnar nýja vinnustofu í Hafnarstræti. Hér er hann ásamt syni sínum Una. Saga Sig

„Ég fór að þreifa fyrir mér af góðu fólki sem væri til í að stökkva á þetta með mér og nú er þetta að verða myndarlegur hópur fólks sem er með starfsemi þarna,“ segir myndlistarmaðurinn Árni Már sem er að opna nýja vinnustofu í rými í miðbænum sem verður vægast sagt fullt af lífi.

Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í Hafnarstræti 8 og verður fagnaðurinn laugardaginn 24. október frá klukkan tvö til fimm.

Nýja rýmið er í Hafnarstræti 8.Saga Sig

„Ég átti í samtali við Eik fasteignafélag en þeir höfðu verið í sambandi við mig tengdu öðru verkefni. Það leiddi til þess að þeir stungu upp á þessu húsi og ég fór að þreifa fyrir mér af góðu fólki sem væri til í að stökkva á þetta með mér og nú er þetta að verða myndarlegur hópur fólks sem er með starfsemi þarna. 

Ásamt vinnustofunni minni er Emmsjé Gauti, raftónlistarkonan Lúpína, The Reykjavík Grapevine eru að koma sér fyrir og okkar besti píanóleikari Magnús Jóhann. Þannig að það er óhætt að segja að það séu áhugaverðir tímar framundan í Hafnarstrætinu,“ segir Árni fullur tilhlökkunar.

Árni Már er staddur á tímamótum og er fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla.Saga Sig

Samhliða þessu opna Árni Már og kollegi hans Einar Viðar Thoroddsen Prentstofuna Hafnarstræti, en það er silkiþrykkverkstæði sem þeir kollegar eru í óðaönn að setja upp. Prentstofan mun bæði gefa út prentverk listamanna ásamt þeirra eigin. 

Fyrsta útgáfa verður sýnd næsta laugardag og er það myndlistarkonan Shoplifter sem verður með nokkur verk. Ásamt myndlistinni, prentverkunum og góðu fólki næsta laugardag mun Berndsen spila ljúfa tóna og Magnús Jóhann leika nokkur lög.


Tengdar fréttir

„Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“

„Nú er ég ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf, segja bless í bili, klára þetta alveg eða hætta við að hætta og klára mig endanlega. Þetta er ein leið til þess að lýsa síðustu vikum og mánuðum hjá ykkar bestu Portkörlum,“ segir Árni Már Þ. Viðarsson, stofnandi Gallerýs Ports, í tilefni af því að gallerýið lokar brátt dyrum sínum eftir tíu ára starfsemi.

Settu tærnar upp í loft og fengu knús

Myndlistarmennirnir Árni Már og Skarphéðinn standa á tímamótum eftir tíu ára rekstur af listrýminu Gallery Port. Þeir stóðu fyrir lokahófi um helgina eftir að hafa staðið að yfir 300 sýningum og viðburðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.