Markaðsvirðið yfir 1000 milljörðum 7. september 2004 00:01
Markaðsvirði félaga sem eru skráð í Kauphöll Íslands jókst um rúma 120 milljarða króna í síðasta mánuði og er nú komið yfir eitt þúsund milljarða króna, þrátt fyrir að félögunum fari fækkandi. Eitt þúsund milljarðar er líklega um það bil óskiljanleg hverjum meðal jóni því einn milljarður er eitt þúsund milljónir og þetta er eitt þúsund svoleiðis pakkar. Bankarnir eiga lang drýgstan þátt í hækkuninni. Landsbankinn hækkaði um nítján prósent og Íslandsbanki og KB banki um tæp níu prósent hvor. Samanlagt markaðsvirði stóru bankanna jókst því um rétt tæpa 50 milljarða króna og eru þá ekki taldir með 40 milljarðarnir í hlutafjárútboði KB banka. Actavis hækkaði um níu og hálft prósent sem þýðir rúmlega tólf milljarðar króna og Burðarás um níu prósent, eða tæpa fimm milljarða. Um áramót var markaðsvirði skráðra félaga 658 milljarðar og hefur því hækkað um rúm 58 prósent það sem af er árinu. Skráðum félögum fer hins vegar fækkandi og markaðsvirði þeirra félaga sem afskráð voru á árinu var röskir 15 milljarðar um áramót. Fyrir nokkrum misserum voru um það bil 75 félög skráð í Kauphöllinni en voru 47 um áramót. Síðan hefur þeim fækkað um sjö og fyrirséð er að þeim mun fækka niður í 37 fyrir árslok.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Sjá meira