Viðskipti innlent

Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunar­merki hjá fyrir­tækjum

Eiður Þór Árnason skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta er aukning frá síðasta ári þegar hagnaður nam 29,5 milljörðum á sama tímabili.

Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna en voru 49,4 milljarðar á fyrstu níu mánuðum 2025. Bein áhrif verðbólgu eru áfram „óvenju mikil“ að sögn stjórnenda. Hreinn vaxtamunur nemur 3,2 prósentum en var 2,9 prósent í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu Landsbankans til Kauphallar. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2026 var 11,1 milljarður króna. Hreinar þjónustutekjur námu 9,2 milljörðum króna út september og eru nær óbreyttar milli ára.

Þróunin sé áhyggjuefni

Virðisrýrnun útlána og krafna er sögð aukast milli ára og skýrast að mestu leyti af versnandi horfum í byggingariðnaði sem megi meðal annars rekja til hárra vaxta. Vanefndir hafi aukist hjá fyrirtækjum.

„Þótt vanskil einstaklinga séu enn lítil sjáum við skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auka fjármagnskostnað og geta gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja. Langvarandi samdráttur í uppbyggingu getur jafnframt haft áhrif á framboð íbúða þegar eftirspurn tekur við sér á ný. Þessi þróun er áhyggjuefni og undirstrikar mikilvægi þess að skapa aukinn stöðugleika í efnahagslífinu. Í uppgjöri bankans er aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð til að mæta mögulegum vanefndum, sér í lagi í byggingariðnaði,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, í tilkynningu.

Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 13,3 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 12,2 prósent á sama tímabili í fyrra.

Afkoma af vátryggingarsamningum var 2,1 milljarður króna á fyrstu níu mánuðum 2026 og eykst um 22,3 prósent á milli ára en tryggingafélagið TM er í eigu Landsbankans. Kostnaður sem hlutfall af tekjum samstæðunnar lækkar úr 33,2 prósentum í 30,5 prósent á fyrstu níu mánuðum 2026.

Á aðalfundi Landsbankans í mars var samþykkt að greiða 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa vegna reikningsársins 2025. Heildararðgreiðslur bankans frá árinu 2013 nema 245,5 milljörðum króna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Ríkissjóður á 98,2 prósenta hlut í bankanum.  

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×