Breytingar breytinganna vegna 26. september 2004 00:01
Forsvarsmenn íþróttahreyfinga Reykjavíkur óttast að breytingar á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar dragi úr fjármagni til íþrótta- og tómstundamála sé litið til lengri tíma, segir Ragnar Reynisson formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir R-listann hafa staðið í mörgum lítt hugsuðum breytingum á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Ragnar segir núverandi kerfi ekki flókið. Með breytingunni gæti hins vegar orðið erfiðara að ná til manna sem hafi raunverulegan áhuga á íþróttum: "Við hræðumst að áherslunum verði breytt og meiri peningar verði settir í menningarmálin en íþróttamálin. Við hræðumst að eiga erfiðara með að þoka okkar málum áfram í kerfinu," segir Ragnar. Hann segir að þó hægt sé að finna sameiginlega snertifleti íþrótta og menningarmála séu málefnin í heildina ólík. Forkólfar menningarmála nefni til dæmis oft til sögunnar að nú hafi nægilega verið byggt af íþróttahöllum og fótboltavöllum, að komið sé að byggingu tónlistarhallar. Vilhjálmur segir nauðsynlegt að leitað verði samráðs um breytingarnar. "Markmiðið með breytingum á stjórnkerfi borgarinnar á að vera að bæta og efla þjónustu við borgarbúa og auðvelda þeim aðgengi að stjórnsýlslunni. Ekki aðeins að gera breytingar breytinganna vegna."
Fréttir Innlent Sveitarstjórnarmál Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira