Strompur í Norðurmýri fauk 13. október 2005 14:44
Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um hálfsjö í gærkvöld til aðstoðar vegna óveðurs. Tilkynnt var um að strompur í Norðurmýrinni í Reykjavík væri að fjúka, svo og þakplötur, skilti og grindverk í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Kallaðir voru út átta hópar og sinntu þeir á annan tug verkefna. "Við höfum verið í nær tuttugu verkefnum," sagði Gísli Ólafsson formaður svæðisstjórnar björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. "Auk skorsteinsins sem var að fjúka í Norðurmýrinni fóru af stað þakplötur, gluggar, auglýsingaskilti, grindverk og aðrir lausamunir." Gísli sagði, að fok lausamuna af völdum roksins hefði byrjað í Norðurmýrinni í Reykjavík, en síðan færst ofar í bæinn. Þurft hefði að sina verkefnum í Kópavogi og Hafnarfirði. Meðal annars hefðu þakplötur losnað á gamla pósthúsinu í Kópavogi. Síðan hefði strengurinn færst upp í Árbæ og Grafarholtið. "Þetta er greinilega strengur að ganga yfir," sagði Gísli, sem bjóst við að lægði með kvöldinu. Björgunarsveitirnar ætluðu að vera á vakt fram eftir kvöldi eins og þörf krefði.
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda Innlent „Hrikalegir“ biðlistar hjá golfklúbbum í höfuðborginni Innlent Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Kostnaður við nýja sánuklefa í Vesturbæ um 130 milljónir Innlent Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjöllum Innlent Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Innlent Íbúar í Garði ósáttir við uppbyggingu á þekktu flóðasvæði Innlent „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Innlent „Mogginn er ekki flokksblað Framsóknarflokksins“ Innlent Danir hafi sofnað á verðinum og Trump að hræra í pottinum Innlent Fleiri fréttir Nýtt hljóðmerki bílaeigendum til ama Kiðlingarnir Frosti og Snær bræða alla í kringum sig Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Völlurinn geti orðið ónothæfur á köflum Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjöllum Áhyggjur Icelandair af lokun flugbrautar og óþrjótandi píp-hljóð Mikilvægt að nýr formaður hafi breiða skírskotun Íbúar í Garði ósáttir við uppbyggingu á þekktu flóðasvæði Danir hafi sofnað á verðinum og Trump að hræra í pottinum Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda „Mogginn er ekki flokksblað Framsóknarflokksins“ Þrýstingur innan Framsóknar og veik staða Rússlands „Hrikalegir“ biðlistar hjá golfklúbbum í höfuðborginni Áhrif milljarðamæringa, áhugi á Grænlandi og brotthvarf Bjarna Kostnaður við nýja sánuklefa í Vesturbæ um 130 milljónir Lögreglan hljóp uppi ólátabelg í nótt Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd „Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Segir mótmælin ólögmæt og bótaskyldu til skoðunar Íbúar upplifa sig svikna af Icelandair Meint ólögmæt mótmæli og alþjóðleg vernd Þungt hljóð í sálfræðingum sem felldu samning í gær Stjórn Virðingar mótmælir ósönnum fullyrðingum í fjölmiðlum Fiskibátur í neyð í mynni Ólafsfjarðar Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli Lögregla kölluð til vegna mótmæla Eflingar í Kringlunni Sjá meira