Prófanir hjartalyfs jákvæðar 19. október 2004 00:01
Íslensk erfðagreining greindi í morgun frá jákvæðum niðurstöðum prófana á hjartalyfinu DG031. Í tilkynningu segir að lyfjaprófanir sýni að lyfið hafi marktæk áhrif á áhættuþætti hjartaáfalls og veldur ekki aukaverkunum. Markmið rannsóknanna var að kanna áhrif mismunandi skammtastærðar DG031 á ýmsa áhættuþætti hjartaáfalls. Niðurstöðurnar sýna að lyfið hefur tilætlaða virkni á fleiri en einn áhættuþátt hjartaáfalls. Allar skammtastærðir lyfsins sem prófaðar voru minnkuðu styrk bólguvakans LTB4 (leukotriene B4) sem er lokaafurð þess líffræðilega ferils sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt að tengist aukinni hættu á hjartaáfalli. Mesta skammtastærð lyfsins sem prófuð var minnkaði einnig styrk MPO (myeloperoxidase), en hár styrkur þess ensíms hefur verið tengdur aukinni hættu á hjartaáfalli í óskyldum rannsóknum. Áhrifin á báða þessa áhættuþætti voru háð skammtastærð DG031. Ennfremur kom í ljós að mesta skammtastærðin minnkaði styrk bólguvakans sICAM-I, sem er mikilvægt boðefni við virkjun bólgusvars og frumuíferðar. Engar alvarlegar aukaverkanir af völdum lyfsins komu í ljós í lyfjaprófununum. Í tilkynningu ÍE segir meðal annars orðrétt: „Niðurstöður erfðarannsókna okkar á hjartaáfalli gáfu til kynna að myndun bólguvakans LTB4 væri lykilatriði í breytingum í æðum sem leiða til hjartaáfalls. DG031 var hannað til að hindra virkni FLAP ensímsins sem stjórnar myndun þessa bólguvaka. Niðurstöður þessara lyfjaprófana lofa góðu því þær sýna að DG031 hefur ekki einungis áhrif á myndun LTB4 heldur einnig á styrk MPO sem aðrar rannsóknir hafa sýnt að hefur spágildi varðandi hættu á hjartaáfalli," sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. "Sú staðreynd að DG031 hefur áhrif á MPO segir okkur að við getum notað mælingar á styrk þessa ensíms til að meta á óbeinan hátt hverjir séu í aukinni hættu á að fá hjartaáfall vegna breytileika í myndunarferli LTB4. Slíkur óbeinn mælikvarði mun auðvelda okkur áframhaldandi prófanir á lyfinu í fasa III. Markmið þeirra rannsókna verður að kanna hvort lyfið fækki hjartaáföllum í hópi þátttakenda.“ Skipulag lyfjaprófananna Markmið lyfjaprófananna var að kanna áhrif mismunandi skammtastærða DG031 á ýmsa bólguþætti sem tengdir hafa verið hjartaáföllum. Í grein sem birtist í hinu virta vísindatímariti Nature genetics fyrr á árinu lýstu vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar algengum breytileika í erfðavísi sem kemur að myndun LTB4 bólguvakans og tengist aukinni hættu á hjartaáfalli. Líklegt er talið að aukin áhætta stafi af bólgum í æðum við æðaskellur. DG031 var þróað til að hindra virkni FLAP (5-lipooxygenase activating protein) sem kemur að stjórnun á myndun leukotriene boðefna. Virkni mismunandi skammta lyfsins var prófuð í 172 Íslendingum og borin saman við lyfleysu. Prófanirnar voru bæði tvíblindar og víxlaðar, þ.e. hluta meðferðartímans fengu þátttakendur lyf og jafnlangan hluta hennar lyfleysu, en hvorki þátttakendur né stjórnendur rannsóknarinnar vissu fyrirfram hvort lyfið eða lyfleysan voru tekin á undan. Þátttakendur í lyfjaprófununum voru einstaklingar sem hafa fengið hjartaáfall eða kransæðastíflu og eru með einn eða fleiri erfðaþætti sem vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa tengt við hjartaáfall. Fyrstu fjórar vikurnar fékk helmingur þátttakenda eina af þremur mismunandi skammtastærðum af DG031, þ.e. eina, tvær eða þrjár 250 mg töflur á dag. Hinn helmingur hópsins tók lyfleysu á sama tíma. Eftir hálfsmánaðar hlé var prófununum víxlað á þann hátt að hópurinn sem í upphafi tók lyfleysu fékk mismunandi skammtastærðir DG031 og hópurinn sem upphaflega byrjaði á lyfinu fékk lyfleysu. Mat á aukaverkunum Engar alvarlegar aukaverkanir komu í ljós í lyfjaprófununum. Enginn munur sást heldur á starfsemi lifrar hjá þeim sem tóku lyfið miðað við lyfleysu. Einn þátttakandi fékk hjartaáfall á þeim tíma sem hann tók inn DG031 og einn þátttakandi lést á þeim tíma sem hann fékk lyfleysu. Algengasta aukaverkunin sem þátttakendur lýstu var vægur svimi sem kom fram hjá sex þátttakendum á meðan þeir voru á virkri lyfjameðferð. DG031 er lítil lyfjasameind sem hindrar virkni FLAP og var upprunalega þróuð af þýska lyfjafyrirtækinu Bayer AG. Íslensk erfðagreining öðlaðist nýtingarrétt á DG031 í nóvember 2003 og skráning Bayer á lyfinu var færð til Íslenskar erfðagreiningar í desember sama ár. Íslensk erfðagreining áætlar að kynna ítarlegar niðurstöður úr rannsókninni á vísindaráðstefnu innan skamms, auk þess sem þær verða birtar í vísindagrein. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar munu ræða niðurstöður lyfjaprófananna á símafundi sem sendur verður út í beinni útsendingu á heimasíðu Íslenskrar erfðagreiningar (www.decode.is) í dag kl. 15. Einnig verður hægt að hlusta á upptöku frá fundinum í síma +1 320 365 3844 frá klukkan 18:30 í dag til þriðjudagsins 26. október. Aðgangskóðinn að upptökunni er 751668.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Jón Ólafur nýr formaður SA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent