Íslenskt mótorhjólafólk er gott 29. nóvember 2004 00:01
Bókin hans Njáls heitir Þá riðu hetjur um héruð - 100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi. Þar er byrjað á sögu fyrsta hjólsins og síðan fjallað um þau sem á eftir komu. Meðal annars er þar kafli um herinn, annar um lögregluna og þriðji um mótorhjólaklúbba, til dæmis hinn fjölmenna skellinöðruklúbb Eldingu sem æskulýðsráð stóð fyrir og margir þjóðkunnir menn voru í á sínum ungdómsárum. Njáll brosir góðlátlega þegar hann er spurður í kerksni hvort mótorhjólagengin séu að reyna að bæta ímynd sína með þessari bók og svarar: "Íslenskt mótorhjólafólk hefur yfirleitt haft á sér jákvæðan stimpil enda er það gott fólk." Njáll er búinn að safna efni um mótorhjól síðan um 1990, bæði sögum og myndum og á gagnagrunni í tölvunni geymir hann upplýsingar um 2.000 íslensk hjól. Hann varð umsjónarmaður Sniglafrétta árið 1993 og hefur síðan skrifað óslitið um mótorhjól í dagblöð og tímarit. "Það stóð alltaf til að gefa út bók en ég sló því á frest því ég hafði ekki fundið út hver var tegund fyrsta hjólsins sem kom til Íslands 1905. Það var ekki fyrr en ég komst í kynni við sérfræðinga í Danmörku að það kom í ljós og með þessari bók er hulunni svipt af þeim leyndardómi," segir Njáll og sýnir mynd af slíku hjóli. Upplýsir líka að það hafi verið Þorsteinn Klemens, bílstjóri fyrsta bílsins á Íslandi, sem flutti hjólið inn. Mörg fleiri frækin hjól koma við sögu í bókinni og margir fræknir mótorhjólamenn. Til dæmis var það einn slíkur sem fór fyrstur á vélknúnu farartæki yfir Kjöl og náðist meira að segja á mynd nærri Gullfossi að þeirri ferð lokinni. Sú mynd prýðir hina nýju bók eins og rúmlega 200 aðrar sem margar hverjar eru að birtast á prenti í fyrsta sinn
Bílar Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira