Neituðu að fara að heiman 3. janúar 2005 00:01
Nokkrir íbúa þriggja húsa við Dísarland í Bolungarvík neituðu að yfirgefa heimili vegna snjóflóðahættu þegar lögreglu bar að garði síðasta sunnudagskvöld. Alls voru það sex sem ekki yfirgáfu heimili sín, þar á meðal eitt barn, þrettán ára gömul stúlka. Gylfi Þór Gíslason, varðstjóri hjá lögreglunni í Bolungarvík, segir að í kjölfarið verði heimilisfeðurnir á hverjum stað boðaðir til skýrslutöku um málið, en gerði ekki ráð fyrir frekari eftirmálum. "Það eru engin viðurlög við þessu," segir hann og bætir við að ákveðið hafi verið að grípa ekki til handtaka á sunnudagskvöldið, en lögregla hefur til þess heimild fari fólk ekki að boðum hennar. "En það er háð mati hverju sinni." Ásgeir Sólbergsson sparisjóðsstjóri var einn þeirra sem ekki fóru að heiman, en hann segir ekki hafa verið hættu á ferðum í norðaustanáttinni sem var ríkjandi þá um kvöldið. "Það var okkar mat, sem höfum búið þarna í 25 ár," sagði hann og taldi að ekki væri hætta á ferðum nema að fennti í norðanátt. "Það var hins vegar hætta á gamlárskvöld og menn hræddir fram undir kvöldmatarleyti, en þá var ekkert rætt um rýmingu húsa," sagði Ásgeir.
Fréttir Innlent Lög og regla Veður Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Sjá meira