Innlent

Um­ferðar­slys við N1 í Ártúnsbrekku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Töluverður viðbúnaður er í Ártúnsbrekkunni og umferðartafir.
Töluverður viðbúnaður er í Ártúnsbrekkunni og umferðartafir. Aðsend

Umferðarslys varð við N1 í Ártúnsbrekku í morgun. Slökkvilið og sjúkraflutningamenn eru á leið á vettvang. Samkvæmt sjónarvotti er um að ræða fjögurra bíla árekstur, einn strætó og þrír fólksbílar. 

Guðjón Ingason, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að slökkvilið og sjúkraflutningamenn séu að lenda á vettvangi og hann viti ekki umfangið.

Hann segir líklegt að slysið hafi áhrif á umferð í vesturátt en slysið varð þeim megin. 

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×