
Ekki benda á mig
Allir helstu forkólfar fjármálalífsins mæta og hlýða á boðskapinn. Þetta eru samkomur hinna háttvísu og menn fara fínt í að gagnrýna hver annan á slíkum samkomum. Hagstjórn og leiðir til jafnvægis í þjóðarbúskapnum eru flókin mál og því fátt eðlilegra en að menn skiptist á skoðunum um slík mál. Að vel takist til varðar alla landsmenn.
Sökum háttvísinnar og kurteislegrar rökræðu þarf oft að lesa á milli línanna í málflutningnum. Í ár má segja að yfirskriftin hafi verið: Ekki benda á mig! Forsætisráðherra sagði ekki benda á mig þegar leitað er orsaka þenslunnar. Styrking krónunnar er vaxtahækkunum Seðlabankans að kenna. Lánsfé streymir inn í landið og styrkir krónuna vegna vaxtamunarins. Halldór benti á að innstreymi erlenda fjárins vægi mun þyngra í styrkingunni, en innstreymi vegna fjárfestinga í stóriðju.
Birgir Ísleifur sagði hins vegar að ekki þýddi að benda á Seðlabankann. Hann væri að bregðast við þenslunni sem væri vegna stóriðjuframkvæmda og aukinna útlána vegna íbúðakaupa sem aftur væri Íbúðalánasjóði (lesist ríkinu) og bönkunum að kenna. Bankarnir svara og segja: Ekki benda á mig. Við urðum að bregðast við þegar Íbúðalánasjóður boðaði 90 prósenta lánin, annars hefðum við orðið undir í samkeppninni. Bankarnir eru fullir af peningum sem þeir verða að koma í vinnu ef hluthafarnir eiga ekki að verða fúlir. Hlutafarnir vilja auðvitað ekki að bent sé á þá. Þeir geri bara kröfu um það að fá arðsemi af fjárfestingu sinni.
Forsætisráðherra sagði líka að ríkið hefði staðið sig vel í að halda aftur af útgjöldum. Sveitarfélögin væru hins vegar að auka útgjöld sín. Sveitarfélögunum er hins vegar vandi á höndum þegar eftirspurn eftir húsnæði eykst og menn fá skammir fyrir lóðaskort. Þá þarf að auka útgjöld vegna lóðaframkvæmda. Svo þarf að byggja nýjan leikskóla og skóla fyrir nýja íbúa í nýbyggðu hverfi. Sveitarfélögin eiga því bágt með að halda aftur af útgjöldunum í núverandi þenslu. Þau mættu hins vegar reyna meira og gætu sparað talsvert með því að sameinast.
Seðlabankinn bendir aftur á Íbúðalánasjóð. Hlutverk hans þurfi að endurskilgreina svo hann hætti að keppa við bankana.
Svona kasta menn á milli sín þensluboltanum í umræðunni um hagstjórnina. Stóriðjan er náttúrlega það sem ýtir þenslunni af stað. 90 prósenta lánin ýttu svo bönkunum af stað og skattalækkanirnar klingja undir og hefa deig verðbólgunnar enn frekar.
Seðlabankinn verður að hækka vextina til að sporna gegn þenslunni meðan íslenska eyðsluklóin hans Margeirs Péturssonar kaupir sér lúxusjeppa frá Ameríku. Vill fá hann strax, þó hún ætli líka með tvær risaferðatöskur á mann í fjölskyldunni til Florída í sumarfrí. Loftkældu mollin eru svo notaleg svona þegar sólin er hæst á lofti þarna í Florída. Svo er komið heim með fullar töskur af raftækjum, fötum og skóm keyptar fyrir útsöludollara. Eyðsluklóin segir auðvitað líka ekki benda á mig. Ég greip bara tækifærið, endurfjármagnaði yfirdráttinn með fjörtíu ára láni (yfirdrátturinn er reyndar aðeins byrjaður að tikka aftur), nýtti mér þennan hagstæða dollara og er loksins komin á almennilegan bíl.
Auðvitað eiga allir að vera ábyrgir og skynsamir. Staðreyndin er hins vegar sú að ábyrgð á hagstjórn hvílir á stjórnvöldum. Þau marka efnahagsstefnuna og það sem hinir gera eru einfaldlega viðbrögð við því umhverfi sem er hverju sinni. Einstaklingar hegða sér í samræmi við tækifæri sín. Fyrirtæki og bankar reyna að hámarka arð sinn og styrkja samkeppnisstöðu sína. Bankarnir eru í samkeppni á frjálsum markaði og stjórmálamenn geta ekki lengur beitt þá þrýstingi í gegnum pólitískt skipuð bankaráð.Sveitarfélögin reyna að bregðast við kröfum íbúanna og Seðlabankinn tekur vaxtaákvarðanir í samræmi við ástandið í efnahagslífinu. Þessir aðilar geta með þokkalegri samvisku sagt að ekki sé rétt að benda á þá. Fyrir ríkisstjórn dugar hins vegar ekki að hrópa: Ekki benda á mig! Og ekkert frekar þótt hrópað sé oft og hátt.
Hafliði Helgason -haflidi@frettabladid.is
Skoðun

Töfrakista tækifæranna
Hrefna Óskarsdóttir skrifar

Dómskerfið reynir að þegja alla gagnrýni á sig í hel
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Frelsið er yndislegt þegar það hentar
Jens Garðar Helgason skrifar

Borgaralegt og hernaðarlegt
Bjarni Már Magnússon skrifar

Áskorun til Reykjavíkurborgar um matvæli í leik- og grunnskólum
Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar

Gervigreind er síðasta von íslensks heilbrigðiskerfis – munum við grípa tækifærið?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Við erum ennþá hvalveiðiþjóð, hvenær ætlar ríkisstjórnin að grípa í taumana?
Micah Garen skrifar

Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum
Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir skrifar

Grafið undan grunngildum
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar

Samúð
Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Allskonar núansar
Lilja Kristín Jónsdóttir skrifar

Íslensk framleiðsla á undanhaldi - hver græðir?
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Magnús Karl Magnússon – öflugur málsvari Háskóla Íslands
Arna Hauksdóttir,Þórarinn Guðjónsson skrifar

Tungumálakort – leitin að tungumálaforðanum 2025
Renata Emilsson Peskova,Þorbjörg Halldórsdóttir,Kristín R. Vilhjálmsdóttir skrifar

Byggjum meira á Kjalarnesi
Gunnar Alexander Ólafsson skrifar

Hæstaréttardómari kallar Gróu á Leiti til vitnis
Heimir Már Pétursson skrifar

Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Hugleiðingar um listamannalaun V
Þórhallur Guðmundsson skrifar

Úr hörðustu átt Rósa Guðbjartsdóttir!!!
Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar

Olíunotkun er þjóðaröryggismál
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Mokum ofan í skotgrafirnar
Teitur Atlason skrifar

Kennarastarfið óheillandi... því miður
Guðrún Kjartansdóttir skrifar

Jafnrétti sem leiðarljós í starfi Háskóla Íslands
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Skattspor ferðaþjónustunnar 184 milljarðar árið 2023
Pétur Óskarsson skrifar

Kynskiptur vinnumarkaður
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Við kjósum Magnús Karl
Lotta María Ellingsen,Jón Ólafsson skrifar

Harka af sér og halda áfram
Hulda Jónsdóttir Tölgyes skrifar

Mjólkursamsalan færir hundruð milljóna til erlendra bænda
Ólafur Stephensen skrifar

Gulur, rauður, blár og B+
Jón Pétur Zimsen skrifar

Í hverjum bekk býr rithöfundur – Ísland, land lifandi ævintýra
Einar Mikael Sverrisson skrifar