Sport

Kemst Ólafur í úrslitaleikinn?

Ólafur Stefánsson og félagar í spænska liðinu Ciudad Real mæta franska liðinu Montpellier í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í Frakklandi dag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 15. Ciudad Real vann fyrri leikinn með sex marka mun þar sem Ólafur skoraði sex mörk. Montpellier er hins vegar ógnarsterkt á heimavelli og því óvíst hvort þessi munur dugi Ólafi og félögum. Sigurliðið mætir Barcelona í úrslitum Meistaradeildarinnar. Barcelona gerði sér lítið fyrir og sigraði Evrópumeistara Celje Pivovarna frá Slóvaínu, 31-26, og samanlagt 62-60 í leikjunum tveimur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×