Sport

Kalandaze hetja ÍBV

Tite Kalandaze tryggði Eyjamönnum sæti í undanúrslitum í DHL-deildar karla þegar hann skoraði sigurmarkið með þrumuskoti á síðustu sekúndu oddaleiks ÍBV og Fram í Vestmannaeyjum í gær. Enn einu sinni í einvígi liðanna var jafnt á öllum tölum og stefndi allt í eina framlenginguna til viðbótar. En á síðustu sekúndu leiksins reif Tite Kalandaze sig á flug og þrumaði knettinum í samskeytin – lokatölur 25-24. "Ég vil þakka Fram-liðinu fyrir verulega verðugt verkefni en þetta eru án efa með erfiðari leikjum sem við höfum spilað í vetur," sagði Samúel Ívar Árnason, hornamaður hjá ÍBV sem var að vonum ánægður með að vera kominn áfram í undanúrslit þar sem liðið mætir ÍR.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×