Sport

Íslandsmeistarar þriðja árið í röð

Haukar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki í handknattleik í gærkvöldi eftir sigur á Eyjamönnum, 28-24, í þriðja leik liðanna um titilinn. Haukar unnu alla þrjá leikina og árangurinn er glæsilegur því líkt og kvennalið félagsins sem varð meistari í síðustu viku unnu Haukarnir alla sjö leikina í úrslitakeppninni. Birkir Ívar Guðmundsson varði 23 skot í marki Hauka en Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur, skoraði níu mörk. Svavar Vignisson var markahæstur hjá ÍBV með átta mörk. Þetta var þriðji Íslandsmeistaratitill Hauka í röð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×