Innlent

Tveir útlendingar illa slasaðir

Pólverji og Portúgali slösuðust alvarlega þegar vinnupallur sem þeir voru á féll niður um átta til tíu metra við Kárahnjúkastíflu um klukkan eitt í dag. Mennirnir voru við við vinnu á pallinum ásamt tveimur öðrum mönnum sem sluppu með minni háttar meiðsl. Stálboltar sem notaðir voru til að festa vinnupallinn við steypumót gáfu sig með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega slasaðir mennirnir tveir eru en talið er að þeir hafi hlotið mörg beinbrot. Lögregla og fulltrúar Vinnueftirlits rannsaka tildrög slyssins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×