Sport

Mikilvægur sigur hjá Düsseldorf

Düsseldorf sigraði Minden 26-24 í miklum falllslag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi. Alexander Petterson skoraði átta mörk fyrir Düsseldorf og Markús Máni Michaelsson tvö. Düsseldorf er í 14. sæti með 21 stig og sleppur að öllum líkindum við fall vegna sigursins í gær. Þá sigraði Lemgo Wihelmshavener 33-31. Logi Geirsson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo og Gylfi Gylfason eitt fyrir Wihlemshavener en Robertas Pauzoulis, fyrrverandi leikmaður Hauka, fjögur. Jaliesky Garcia skoraði fimm mörk þegar Göppingen beið lægri hlut á útivelli fyrir Lubecke, 33-31. Andreas Stelmokas, fyrrverandi leikmaður KA, skoraði jafnmörg mörk fyrir liðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×