Manager 2006 Staðfestar nýjungar 9. ágúst 2005 00:01
Sports Interactive og SEGA hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu varðandi þær nýjungar sem staðfestar eru í Football Manager 2006 á PC/Mac. Gaurarnir hjá Sports Interactive hafa unnið hörðum höndum að því að gera þessa næstu útgáfu sem besta. NÝJUNGAR Í PC ÚTGÁFUNNI: • Lýsingar á leikjunum hafa verið teknar í gegn – Nýjar setningar hafa verið settar inní lýsingarnar til að bæta stemminguna í leikjunum og einnig til að draga fram frekari smáatriði, þannig að spilarar leiksins fái betri tilfinningu fyrir því hvað sé að gerast á vellinum. • "Player Form" & "Player Stats" skjámyndir – Ítarlegri upplýsingar um form leikmanna og hversu vel þeir hafa staðið sig í leikjum, sett fram á nýjum, einföldum skjámyndum. • "Quick" möguleiki í uppsetningu leikkerfa – Nú geta knattspyrnustjórar öskrað af hliðarlínunni til að gera litlar eða stórar breytingar á leik liðsins, án þess að þurfa að stoppa leikinn. • Hærra raunveruleikastig í spilun leikjanna – SI fengu Ray Houghton, fyrrum leikmann Liverpool og írska landsliðsins, til að greina hvert atriði vélarninnar sem keyrir leikina, til að leikmenn fái sem raunverulegasta spilun. • Allt sem viðkemur meiðslum hefur verið uppfært – Nú þarf ekki lengur að biðja sjúkraþjálfarana um skýrslur, heldur koma þeir til þín með mjög nákvæma skýrslu um meiðslin. Spilarar leiksins geta svo tekið ákvörðun um hvernig meðhöndlun þeir kjósa. • Valmyndir leiksins bættar – Allt notendaviðmót leiksins hefur verið bætt, þannig að auðveldara er að rata um leikinn og minna um músasmelli. • Upplýsingaskjár – Nú renna allar helstu upplýsingar neðst á skjánum, ekki aðeins staðan í leikjum, heldur einnig fréttar úr knattspyrnuheiminum. • Þáttur fjölmiðla bættur – Nákvæmari og meira spennandi fréttir frá fjölmiðlum. Nú tekur tölvan meira mið af árangri þegar fréttir eru gefnar út til að hafa þær sem nákvæmastar. • Spjall við leikmenn að loknum leik – Nú geta knattspyrnustjórar lesið yfir liðinu í hálfleik, en ekki nóg með það, því hægt er að ræða við liðið í búningsklefanum eftir leik og láta leikmenn vita hvaða álit þú hefur á spilamennsku þeirra. Football Manager 2006 fyrir PC/Mac verður gefinn út 4.nóvember 2005. Frekari upplýsingar má finna á www.sigames.com eða www.sega.com
Franz Geim-Fréttir Leikjavélar Leikjavísir Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fleiri fréttir Laufey lifnar við í Fortnite Festival Sjá meira