Tíska og hönnun

Verður að geta hent sér í hné­beygju

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ljósmyndarinn Elísabet Blöndal ræddi við blaðamann um tískuna.
Ljósmyndarinn Elísabet Blöndal ræddi við blaðamann um tískuna. Aðsend

„Með árunum leyfi ég mér meira að vera eins og ég vil en ekki eins og ég hélt ég ætti að vera,“ segir Elísabet Blöndal, ljósmyndari. Hún velur þægindi fram yfir allt annað þegar kemur að klæðaburði þar sem hún þarf að treysta á hinar ýmsu stellingar í starfi sínu.

Elísabet er 33 ára gömul og er einn alheitasti ljósmyndari landsins, hvort sem það eru árshátíðir, tískuviðburðir eða einkapartí stjarnanna. Hún ræddi við blaðamann um fataskáp sinn og tískuna.

Elísabet starfar sem ljósmyndari og sækir mikið í klassísk og þægileg föt.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Tjáningin og að líða vel. Ég dressa mig upp fyrir hlutverkið hverju sinni.

Elísabet elskar tjáningarform tískunnar.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég elska alla vintage-jakkana mína, það er bara eitthvað við það að finna góðan vintage-jakka.

Elísabet á tilkomumikið safn af yfirhöfnum.Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Nei, í rauninni ekki, ég er rosa mikið að vinna með sömu flíkur aftur og aftur og fer bara í það sem ég veit að mér líður vel í. Ég mixa því saman en grunnurinn er yfirleitt sá sami, nema ég sé í einhverju extra stuði.

Elísabet vinnur yfirleitt með sömu grunnflíkur en leikur sér stundum að því að poppa upp á lúkkið.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Frekar afslappaður, kannski smá töffaralegur með hint af „chic“.

Afslöppuð, töffaraleg og chic.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Já og nei, með árunum leyfi ég mér meira að vera eins og ég vil en ekki eins og ég hélt ég ætti að vera.

Elísabet verður samkvæmari sjálfri sér með árunum.Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Já, ég elska það. Það er svo góð tilfinning að líða vel og gott fit getur gefið manni svo skemmtilega orku inn í daginn.

Gott fitt getur gert daginn betri.Aðsend

Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði?

Fyrst og fremst að líða vel. Svo fyrir mig persónulega verð ég að velja mér flíkur sem ég get unnið heilu vinnudagana í. Ég er alveg mikið að henda mér í hnébeygjur í vinnunni og bera þunga hluti, svo fötin mega ekki vera hamlandi. 

Ég klæði mig voða svipað fyrir vinnu og ef ég er að fara eitthvað fínt, svo ég hef það alltaf í huga þegar ég versla mér eitthvað nýtt að flíkin gangi fyrir bæði.

Elísabet þarf að geta teygt sig og beygt í starfi og því verða fötin að vera þægileg.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Ef ég sé eitthvað sem mér líkar á förnum vegi þá er það yfirleitt mesti innblásturinn.

Ertu með einhver boð og bönn þegar kemur að klæðaburði?

Ég get ekki óþægileg föt.

Þú sérð Elísabetu ekki í óþægilegum fötum.Aðsend

Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys?

Nei, ég held ég sé ekki nógu mikið „out there“ til að skilja eftir mig rosaleg tískuslys. Þegar ég fletti í gegnum gamlar myndir fæ ég stundum svona: „Æææ, nei,“ móment en það er meira bara út af því að ég sé það á mér hvað ég var engan veginn að fíla mig.

Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali?

Það gerði það rosalega hér áður fyrr, en í dag er mér alveg sama svo lengi sem ég er að fíla það.

Elísabet fylgir eigin sannfæringu í klæðaburði.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Ljósi vintage-leðurjakkinn minn, sem ég á reyndar ekki ein. Við frænkur fundum hann á flóamarkaði úti í LA í sumar og rifumst um hver fengi að eiga hann. Niðurstaðan var sú að við ætlum að skiptast á að nota hann, einn mánuð í senn. 

Jakkinn er því orðinn meira en bara gamall leðurjakki með pennastrikum sem við fundum á klink á flóamarkaði og er orðinn að mjög svo lifandi minningu um geggjaða frænkuferð í Ameríkunni, táknmynd af bestu LA-ferðinni okkar.

LA-jakkinn umræddi.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar kemur að tísku?

Finndu út úr því hvaða sniðum þér líður vel í og rúllaðu á þeirri uppskrift þegar þú kaupir nýtt. Ég er löngu hætt að líta við því sem ég veit að ég fýla ekki á mér, hvort sem það er efni, litur, snið eða einhver smáatriði sem eru ekki fyrir mig.

Svo er alltaf gaman að eiga eitthvað einstakt og þá þarf að kíkja á notuð föt og þræða vintage búðir annað slagið. Þegar þú lendir á einhverju gulli er það svo frábær tilfinning og er ákveðin þerapía að mínu mati.

Elísabet fann þennan einstaka jakka í nytjaverslun.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.