Sport

Tiago til Lyon

Frakklandsmeistarar Lyon í knattspyrnu hefur fest kaup á portúgalska landsliðsmanninum Tiago hjá Chelsea fyrir 6.5 miljónir punda og boðið honum 5 ára samning Tiago er ætlað að fylla skarð Michaels Essiens sem Lyon seldi til Chelsea í síðustu viku fyrir nær fjórum sinnum hærra verð. Tiago, sem er 24 ára, var keyptur til Chelsea í júlí í fyrra og hann kom við sögu í 34 af 38 leikjum félagsins í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×