Innlent

Keppst um 1. sætið hjá Framsókn

Enn bætist á lista þeirra sem stefna á 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Linda Bentsdóttir, forstöðumaður hjá Frjálsa fjárfestingabankanum, hefur nú ákveðið að gefa kost á sér í sætið en hún hefur undanfarin ár starfað inna flokksins og meðal annars verið fulltrúi framsóknarmanna í umhverfisnefnd Kópavogs. Una María Óskarsdóttir og Hjalti Björnsson höfðu þegar lýst yfir framboði sínu í efsta sæti lista framsóknarmanna í Kópavogi. Svo virðist sem slagur verði um hver fái að taka við sæti Sigurðar heitins Geirdals, fyrrum bæjarstjóra í Kópavogi, sem lést fyrir tæpu ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×