Innlent

Lögregla fann snáka í Kópavogi

MYND/Róbert

Tveir stórir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi voru meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Hún naut meðal annars aðstoðar sérsveitarmanna frá Ríkislögreglustjóra við aðgerðina. Tveir menn voru handteknir á staðnum en sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum, en lögreglan lagði hald á byssurnar og hassið auk amfetamíns. Snákarnir sem hvor um sig er hátt í metri á lengd eru vistaðir á lögreglustöðinni og bíða aftöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×