Sport

Eiður Smári á varamannabekknum

Eiður Smári þarf að vera á bekknum hjá Chelsea í dag
Eiður Smári þarf að vera á bekknum hjá Chelsea í dag NordicPhotos/GettyImages
Jose Mourinho hefur kallað Claude Makelele inn í byrjunarlið Chelsea á kostnað Eiðs Smára í dag, en auk þess hefur William Gallas tekið stöðu hins meidda Asier del Horno í bakverðinum og Didier Drogba byrjar frammi í stað Hernan Crespo. Arsene Wenger gerði aðeins eina breytingu á sínu liði. Mathieu Flamini kemur inn í stað Gilberto Silva sem er í banni. Dennis Bergkamp er á bekknum hjá Arsenal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×