Sport

Hefur ekki áhyggjur af Arsenal lengur

Mourinho var mjög sáttur við sigurinn á Highbury í dag
Mourinho var mjög sáttur við sigurinn á Highbury í dag NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho segir að með sigrinum á Arsenal í dag, þar sem Chelsea náði 20 stiga forskoti á granna sína, geti hann hætt að hafa áhyggjur af Arsenal í toppbaráttunni og muni þess í stað horfa til Manchester United og Liverpool framvegis.

"Bilið milli liðanna er nú orðið mjög breitt og ég hef ekki áyggjur af Arsenal lengur. Jafntefli fyrir okkur í dag, hefði þýtt að United og Liverpool hefðu verið komin óþægilega nálægt okkur og því er ég ánægður með að United vann í gær, því ég vissi að mínir menn mundu bregðast við því í dag," sagði Mourinho, sem hrósaði Arjen Robben sérstaklega fyrir frammistöðu sína í dag.

"Robben átti mjög stóran þátt í sigrinum í dag. Hann var mjög þreyttur eftir mikið álag undanfarið, en hafði viku til að hvíla sig fyrir þennan leik og árangurinn lét ekki á sér standa."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×